Morgunn - 01.12.1979, Blaðsíða 41
ÍSLENDINGAR Á ALÞJOÐAFUNDI
119
þremur börnum sínum en það yrði of löng saga að segja frá
því hér, hvað skeði á heimili þeirra.
En í stuttu máli sagt fluttust hlutir til í ibúð þeirra, borð,
stólar, sængurfatnaður, rúmin og börnin þeyttust upp úr
rúmunum, pottar og pönnur flugu í loftinu um herbergin.
Lögreglan hafði afskipti af máli þessu og mikið var um þetta
mál rætt i blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Andarnir fengust
til að tala og það var tekið upp á segulband, sem við fengum
að heyra. Einnig tók hann fjölda mynda af fynrbrigðum
þessum, sem hann sýndi okkur. Fyrirlesarinn heitir Maurice
Gross.
Þriðji dagurinn hófst með fyrirlestri Gordons Higginsons
um útbreiðslustarfsemi sálarrannsókna við upphaf nýrrar
aldar. Var erindi þetta hið athyghsverðasta enda ekki við
öðru að búast, þar eð i hlut átti sá maður, sem fremst stend-
ur, og er þá mikið sagt, í röðum sálarrannsóknamanna á
Bretlandseyjum, bæði hvað varðar miðilshæfileika á mörg-
um sviðum og fyrir baráttumálum þeirra.
Það hreint gneistaði af ræðumanni og var það hrein og
einstök upplifun að hlusta á þvílíka mælsku. Eftir hádegis-
verð hélt Gordon Higginson áfram fyrirlestri sínum, en að
honum loknum létu áheyrendur í ljós hrifningu sína.
Að kvöldverði loknum hélt David Hopkins erendi um
kennsluaðferðir Sálarrannsóknafélags Bretlands, sem á ensku
heitir The Spiritualist National Union.
Annar dagur hófst með fyrirlestri George Clausure um
vísindalegar sannanir um líf eftir dauðann. Eftir hádegi
flutti J. Oyanedel fyrirlestur, sem bar heitið „Bygging orku-
sviðslikamans“.
Eftir kvöldverð talaði Gordon Higginson og hélt skyggni-
lýsingafund. Hann er þekktur fyrir svo nákvæmar skyggni-
lýsingar, að honum nægir ekki að lýsa nákvæmlega fólki og
staðháttum, heldur gefur hann upp húsnúmer og símanúm-
er, ef því er að skipta.
Fjórði dagurinn var notaður til skemmtiferðar. Farið var
til Cambridge og heimsótt spíritistakirkjan þar. Leiðtogar