Morgunn - 01.12.1979, Blaðsíða 55
ÞORGRIMUR ÞORGRÍMSSON, RITARI S.R.F.Í.:
MYNDIR GERÐAR I MIÐILSÁSTANDI
Á aðalfundi S.R.F.l. s.l. vor sýndum við fundarmönnum
nokkrar myndir. Þær eru gerðar í djúptrans eða miðilsástandi
af brasiliska miðlinum Luiz Gasparetto hinn 2. sept. 1978
í Froebel College i bænum Roehampton á Englandi, þar sem
við vorum á þingi, sem var hið 16. i röðinni, haldið þriðja
hvert ár af Alþjóða Spíritistasambandinu, sem á ensku heitir
The International Spiritualist Federation.
Luiz Gasparetto er 28 ára að aldri og vinnur almannaþjón-
ustustörf í sálfræði. Síðastliðin 14 ár hefur hann teiknað og
málað myndir í djúptrans og notað til þess bera fingurna eða
pensla með acryl eða olíulitum.
En svið listar hans virðist frekar sjaldgæft. Fer best að
kalla hana sálrœna list.
Luiz hefur ekki stundað sölu á myndum þessum eða gert
tilraun til þess — enda hefur hann aldrei lært að teikna. Ein-
mitt þetta tvennt er óvenjulegt varðandi Luiz Gasparetto, það
að hafa aldrei lært til málaralistar og aldrei stundað sölu á
framleiðslu sinni. En hann hefur gert yfir 4000 myndir, sem
hann bara geymir.
Vitað er um ýmis tilfelli, þar sem listamenn hafa fallið í
trans og gert myndir ólikar þeim, sem þeir gerðu í vöku. Má
þar nefna nöfn eins og William Blake, sem mun hafa verið i
trans mikinn hluta ævi sinnar. Á nítjándu öld var ekki óal-
gengt að óþjálfaðir miðlar máluðu i trans, en notuðu hæfileik-
ana til að pretta náungann.
Þá vöktu mikla athygli myndagerðir Victorien Sardou og
hins óviðjafnanlega Skota, David Duguid. Á þessari öld hafa