Morgunn


Morgunn - 01.12.1979, Side 16

Morgunn - 01.12.1979, Side 16
94 MORGUNN holdgunar). En það þýðir auðvitað, að eftir að höfundur hefur beitt á vísindalegan hátt öllum þeim skýringum öðrum en endurholdgun sem fyrir finnast, þá segir hann í bókarheiti sínu, að þessi tilfelli, sem hann hefur rannsakað svo vandlega, bendi til endurholdgunarskýringarinnar, því hún er ein eftir. Dr. Stevenson hefur rannsakað og skýrgreint ítarlega nálega þúsund tilfelli, þar sem talið hefur verið að um endurholdgun- arsannanir væri að ræða, og af þeim valdi hann svo tuttugu, sem hann taldi rétt að rannsaka sérstaklega, eins og nafn bókar hans ber með sér. Þannig rannsakaði hann persónulega sjö tilfelli á Indlandi, þrjú á Ceylon, tvö í Brasiliu, sjö í Alaska og eitt í Libanon. Ef til vill er síðasta tilfellið einna áhugaverð- ast sökum þess, að það uppgötvaði Stevenson sjálfur. Þar átti lítill drengur hlut að máli. Stevenson átti þar kost á því að vera með barninu þegar fyrst var farið með það til þorpsins, þar sem það virtist hafa eytt fyrra lifi sínu. Frá þvi andartaki að drengurinn fór að geta talað, þá virtist Imad Flawar (en það heitir hann) vita um hluti sem enginn hafði nokkru sinni sagt honum eða kennt. Þannig nefndi hann með nafni fjölda marga vini sem foreldrar hans þekktu ekki, enda töldu þau hjónin að á þessu væri ekkert mark takandi, þetta væru bara hugarórar í barninu. En þá gerðist það einn daginn úti á þorpsgötunni í Komayel að drengurinn hljóp í fangið á ókunnugum manni og faðmaði hann að sér. Sá ókunni varð furðu lostinn og spurði: „Þekkir þú mig?“ Og Imad svaraði: „Já, þú varst nágranni minn“. Þessi maður bjó í 23 km fjarlægð handan við fjöll í þorpinu Khrilby. Upp frá því fóru foreldrar drengsins að taka hann alvarlega, og þegar Stevenson kom til þorpsins þeirra, Kornayel, til þess að rannsaka allt annað tilfelli, þá voru foreldrarnir komnir a þá skoðun, að Imad sonur þeirra hefði eitt sinn verið Mahmoud Bouhamzy, sem hefði verið kvæntur Jamile nokkurri. En hann hefði orðið fyrir vöruflutningabíl og báðir fætur hans hefðu brotnað í slysinu, en hann síðar dáið af völdum meiðsl- anna sem hann varð fyrir.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.