Morgunn - 01.12.1979, Blaðsíða 16
94
MORGUNN
holdgunar). En það þýðir auðvitað, að eftir að höfundur hefur
beitt á vísindalegan hátt öllum þeim skýringum öðrum en
endurholdgun sem fyrir finnast, þá segir hann í bókarheiti sínu,
að þessi tilfelli, sem hann hefur rannsakað svo vandlega, bendi
til endurholdgunarskýringarinnar, því hún er ein eftir.
Dr. Stevenson hefur rannsakað og skýrgreint ítarlega nálega
þúsund tilfelli, þar sem talið hefur verið að um endurholdgun-
arsannanir væri að ræða, og af þeim valdi hann svo tuttugu,
sem hann taldi rétt að rannsaka sérstaklega, eins og nafn bókar
hans ber með sér. Þannig rannsakaði hann persónulega sjö
tilfelli á Indlandi, þrjú á Ceylon, tvö í Brasiliu, sjö í Alaska
og eitt í Libanon. Ef til vill er síðasta tilfellið einna áhugaverð-
ast sökum þess, að það uppgötvaði Stevenson sjálfur. Þar átti
lítill drengur hlut að máli. Stevenson átti þar kost á því að
vera með barninu þegar fyrst var farið með það til þorpsins,
þar sem það virtist hafa eytt fyrra lifi sínu.
Frá þvi andartaki að drengurinn fór að geta talað, þá virtist
Imad Flawar (en það heitir hann) vita um hluti sem enginn
hafði nokkru sinni sagt honum eða kennt. Þannig nefndi hann
með nafni fjölda marga vini sem foreldrar hans þekktu ekki,
enda töldu þau hjónin að á þessu væri ekkert mark takandi,
þetta væru bara hugarórar í barninu.
En þá gerðist það einn daginn úti á þorpsgötunni í Komayel
að drengurinn hljóp í fangið á ókunnugum manni og faðmaði
hann að sér. Sá ókunni varð furðu lostinn og spurði: „Þekkir
þú mig?“ Og Imad svaraði: „Já, þú varst nágranni minn“.
Þessi maður bjó í 23 km fjarlægð handan við fjöll í þorpinu
Khrilby.
Upp frá því fóru foreldrar drengsins að taka hann alvarlega,
og þegar Stevenson kom til þorpsins þeirra, Kornayel, til þess
að rannsaka allt annað tilfelli, þá voru foreldrarnir komnir a
þá skoðun, að Imad sonur þeirra hefði eitt sinn verið Mahmoud
Bouhamzy, sem hefði verið kvæntur Jamile nokkurri. En
hann hefði orðið fyrir vöruflutningabíl og báðir fætur hans
hefðu brotnað í slysinu, en hann síðar dáið af völdum meiðsl-
anna sem hann varð fyrir.