Morgunn - 01.12.1979, Blaðsíða 58
136
MORGUNN
en notar ekki pensla heldur bera puttana. Og á ofsahraða beitir
hann báðum höndum samtímis. Og ég sýndi mynd á veggn-
um. Myndin er eftir franska impressionista meistarann Monet
og líkist sumum myndum hans mjög og rithöndin er eins og
á myndum í málverkabók með verkum hans.
Luiz Gasparetto heldur áfram að mála og lýkur við hverja
myndina eftir aðra og þær eru undirritaðar af framliðnum
meisturum eins og Rembrandt, Monet, Manet, Modigliani,
Degas, Bruegel, Chagall, Tolouse-Lautrec, Van Gogh og
Renoir.
Ekki þarf sérfræðing í myndlist til að sjá að myndirnar eru
greinilega i ætt við listamannanöfn þau, sem rituð eru á
myndirnar.
Nú er stund þessari lokið — og þessi myndlistariðkun í djúp-
trans eða sambandsástandi hefur tekið rúman klukkutíma.
Gasparetto er auðsjáanlega dauðþreyttur, enda kófsveittur.
Þeim sextán myndum, sem Luiz Gasparetto gerði þarna, er
dreift um sviðsgólfið, svo að allir geti skoðað þær; En mynd-
irnar eru ekki falar — eru ekki til sölu, hvað sem í boði hefði
verið.
Oft hafa honum verið boðnar drjúgar fjárfúlgur fyrir mynd-
ir, en hann hefur jafnan staðist freistingarnar. Er skýring
hans sú skoðun hans, að þeir sem hafa yfirskilvitlegar náðar-
gáfur, eigi ekki að hagnast á þeim fjárhagslega. Taldi hann
þetta útbreidda skoðun meðal spíritista í Brasilíu.
Luiz Gasparetto sagði mér að hann hefði gert um 4000
myndir og hann geymir þær allar. Hann sagði að einhvem-
tíma yrðu þær boðnar til sölu, en þegar það verður ætlar hann
að nota andvirðið til að efla starfsemi spiritistahreyfingarinnar
í Brasilíu.
Áður en Luiz Gasparetto kvaddi ráðstefnu þá, sem við vor-
um samankomin á, þá gaf hann Alþjóða Spíritistasambandinu
nokkrar myndir og gaf jafnframt leyfi sitt til þess að fjórar
þeirra skyldu slegnar á uppboði meðal þátttakendd ráðstefn-
unnar. Síðan sýndi ég á þessum fundi S.B.F.l. þrjár þessara