Morgunn - 01.12.1979, Blaðsíða 23
UM DAUÐANN
101
börunum sínum“. Dr. Brinkley, hinn konunglegi stjörnufræð-
ingur Irlands, sagði um þennan pilt þegar hann var átján ára:
„Dg segi ekki, að þessi ungi maður verSi, heldur sé mesti stærð-
fræðingur, sem nú er uppi“.
Það er ekki hægt að ganga fram hjá snilligáfu á unga aldri
á þeim einum forsendum, að hún sé svo sjaldgæf. Það þarf
ekki nema einn hvítan hrafn til þess að sanna að ekki séu allir
hrafnar svartir. Þetta krefst skýringar.
Með því að fallast á fyrri tilveru, þá er vel hægt að ímynda
sér að slikir afburðahæfileikar séu afleiðing fyrri lærdóms og
þroska á ákveðnum sviðum, sem færst hafi yfir i þetta líf að
einhverju eða öllu leyti. Getum við hér minnst kenningar
Platos um endurminninguna. Þeirrar skoðunar, að sú þekking
sem okkur reynist auðvelt að tileinka okkur sé gömul þekking,
sem hið ódauðlega sjálf okkar hafi aflað sér á fyrri tilverusvið-
um. Þegar á hinn bóginn um er að ræða þekkingu, sem við
eigum erfitt með að meðtaka eða höfum ekki áhuga á, þá kunn-
um við nú að vera að kynnast henni i fyrsta sinn. Þannig kann
einnig að vera, að innblástur geti hugsanlega byggst á visku,
sem safnað hefur verið í lífsreynslu fyrri æviskeiða.
Eins og allir kannast við, þá verður oft vart við mikinn mis-
mun á fólki innan sömu I jölskyldu, og er það nokkuð forvitni-
legt. Mismunandi likamseinkenni, að menn séu likir eða ólíkir
stjórnast vafalaust af erfðalögmálunum. En stundum kemur
fram mikill mismunur á hinum dýpri sviðum hugsunar, sið-
ferðis og listrænna eiginleika og virðist alveg óútskýranlegur
á liffræðilegum grundvelli. Þetta verður hins vegar ekki eins
óskiljanlegt, ef gengið er út frá því, að hver sál eigi sér langa
fortið að baki og hafi dregist til að fæðast aftur í samræmi við
karmisk lögmál í fjölskyldu, þar sem foreldrarnir geta veitt
henni likama og umhverfi, sem best hentar áframhaldandi
þroska hennar og þróun.
Á það hefur verið bent, að Johan Sebastian Bach hafi fæðst
í fjölskyldu, sem átti sér langa tónlistarhefð að baki. Ein af því
þarf ekki endilega að leiða, að hægt sé að útskýra snilld hans
sem erfða eiginleika. Það má alveg eins imynda sér, að tón-