Morgunn


Morgunn - 01.12.1979, Síða 13

Morgunn - 01.12.1979, Síða 13
UM DAUÐANN 91 virði, að hún var reiðubúin að fórna fyrir það lifi sínu og eigin barni. Þegar eiginmaður hennar kom inn í herbergið, þá sneri hún sér til hans og sagði: „Þú lætur ekki drenginn okkar í hend- urnar á neinum sem elskar hann ekki, er það?“ En þegar hann nálgaðist hana, vék hún undan honum og sagði: „Leyfðu mér að horfa á þessa yndislegu birtu“. Nú vaknar spurningin um það, hvort hér hafi einungis verið um óskhyggju að ræða, sem komið hafi fram i formi ofsjónar. Dr. Barrett velti slíkri skýringu fyrir sér, en hafnaði henni, sökum þess að meðal þess látna fólks, sem Doris sá, var mann- eskja sem hún átti ekki von á að sjá þarna. En þannig var mál með vexti, að systir hennar, Vida, hafði látist þrem vikum áður. Hins vegar ha fði þess vandlega verið gætt að Doris frétti þetta ekki, sökum þess hve heilsu hennar var ábótavant. Doris varð þvi mjög hissa, þegar það gerðist sem hér verður lýst. Lafði Barrett lýsir því með þessum orðum: „Hún ávarpaði föður sinn heitinn og sagði: „Ég er að koma“. Um leið sneri hún sér til mín og sagði: „Ö, hann er svo ná- lægur“. Svo leit hún aftur á sama stað og sagði með undrunar- svip: „Hann er með Vidu hjá sér“. Svo sneri hún sér aftur að mér og sagði: „Vida er hjá honum“. Síðan sagði hún: „Þú vilt fá mig, pabbi — ég er að koma“. Dr. Barrett varð fyrir svo miklum áhrifum af því að Doris skyldi sjá Vidu, að hann safnaði saman öllum slíkum frásögn- um, sem hann gat fundið, og gaf þær svo út í bók sem bar nafnið BANABEÐSSÝNIR og út kom 1926. Þetta var fyrsta kerfisbundna rannsóknin á þess konar fyrir- bærum. Niðurstöður Barretts voru þær, að hinir deyjandi hafi séð í sýn látnar persónur, sem hafi komið til þess að færa þá til sinna himnesku heimkyuna. Hann komst þannig að þeirri niðurstöðu, að slíkar sýnir eru algengari þegar hugur sjúklingsins er skýr og skynsamlegur, og stundum komi það fram i slíkum sýnum sem hinn deyjandi eigi alls ekki von á. Til dæmis undruðust deyjandi börn oft að sjá engla án vængja. Einnig kom fram í tilfellum Barretts að sýnunum fylgdu upp-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.