Morgunn - 01.12.1979, Side 20
98
MOHGUNN
mikið af slíkum bókum. Hitt er þó miklu sjaldnar rætt, hvort
við höfum átt nokkra tilveru áður en við fæddumst í þennan
heim. Við skulum nú velta þessari spurningu ofurlítið fyrir
okkur og byrja á grunni sem ekki verður um deilt.
Við erum hér á jörðinni og göngum í likamlegri mynd í
gegnum ýmis konar reynslu ásamt milljónum annarra. Við
fæðumst inn í þessi skilyrði hjá einhverri þjóð og í sérstaka
fjölskyldu. Og að því sem við best getum séð ráðum við engu
um það.
Við skulum þá fyrst líta á hina sorglegu hlið lífsins, því hún
vekur hugsandi manni miklu fleiri efasemdir og vandamál en
hin bjartari. Við vitum að börn fæðast í heiminn við ólíkustu
skilyrði. Sum hafa heilbrigða og hrausta líkami, eru vel gefin,
dugleg, áhugasöm og fjörug, og geta jafnvel með auknum
þroska orðið merkilegir hugsuðir. öðrum er blinda, heymar-
leysi, sjúkdómar og greindarleysi frá upphafi fjötur um fót.
Sumir fæðast i umhverfi sem býður þeim ást og öryggi, hvatn-
ÍJigu, menningu og áhuga á fögrum hlutum; annarra bíður
spilling, sóðaskapur og ljótleikur; þeim er að engu sinnt eða
jafnvel beitt hryllilegri grimmd af sjálfum foreldrum sínum.
Sumra bíða tækifærin við dyrnar til þess að bjóða þau vel-
komin; hjá öðrum ganga tækifærin hjá eða knýja of seint að
dymm.
Er þetta allt saman hreinni tilviljun undirorpið eða hefur
Guð lagt á ráðin um þetta? Sé hvorugt hægt að fallast á, hvaða
skýringa eigum við þá að grípa til, sem hafa í sér fólgna sæmi-
lega fullvissu þess, að endanlega ríki réttlæti í tilverunni?
Sé Guð réttlátur, góður og kærleiksríkur, þá blasir mikið
vandamál við þeim sem trúir því að sérhver sál sé ný sköpun
Guðs. Því það er ekki minnsta vafa undirorpið að þær kringum-
stæður, sem sumar sálir fæðast í, útiloka rétta möguleika til
þroska í þessu lífi. I sumum tilfellum er líkaminn vesæll bú-
staður. Og hvað um hálfvitann og aðra andlega vanskapaða
vesalinga? 1 sumum tilfellum hlýtur umhverfi þar sem ríkir
ótti, grimmd og ruddaskapur að hafa eyðileggjandi áhrif áður
en persónuleiki barnsins getur veitt nokkurt viðnám. Getur