Morgunn


Morgunn - 01.12.1979, Side 17

Morgunn - 01.12.1979, Side 17
UM DAUÐANN 95 Stevenson skrifaði allt niður, sem foreldrarnir liéldu fram, og reyndi eftir bestu getu að greina það frá því sem drengur- inn sjálfur hafði raunverulega sagt. Og svo fóru þeir Stevenson og fimm ára snáðinn saman til Khrilbyþorps handan við fjöllin. Það var afar lítið samband milli þessara þorpa, og þegar Stevenson kom þangað komst hann að raun mn að Mahmoud Bouhamzy bjó þarna virkilega, en hann var bara bráðlifandi! Hins vegar var honum einnig sagt frá því að maður með þessu nafni hefði virkilega dáið á þann hátt sem drengurinn lýsti, og að besti vinur þess manns væri frændi hans, Ibrahim Bou- hamzy, sem hefði tekið lát frænda síns mjög nærri sér, en síðar dáið sjálfur úr berklum. Ibrahim hafði aldrei kvænst en átt hjákonu, Jamile að nafni, og var hann nágranni manns- ins, sem Imad litli hafði kannast við í Kornayel. Stevenson rannsakaði nú húsið sem Ibrahim hafði búið í og svo lítinn gulan bíl, tvær skemmur, sem notaðar voru sem bílskúrar, og óvenjulegan olíulampa. Minnisblöð Stevensons sýna, að Imad hafði ekki beinlínis sagt að hann hafi farist i bilslysi, heldur einungis að hann myndi glögglega eftir því. Hann hafði talað með hrifningu um Jamile og næstum likt henni við móður sína. En liann hafði aldrei haldið þvi fram að hann hefði kvænst henni. Þær ályktunarvillur, sem fram komu hjá foreldrum Imads, benda raunar einmitt á heiðarleik þeirra, og gera það ákaflega ósennilegt að hjónin hafi byggt upp alla söguna í blekkingar- skyni, eða að þau hafi óafvitandi verið sú upplýsingalind sem Imad hafi fengið þessar upplýsingar úr um Khrilbyþorpið. Þegar allra staðreynda er gætt í þessu máli, þá er niðurstað- an þessi: Það er ljóst, að það er samræmi milli minninga Imads litla og lífsreynslu Ibrahims, sem ekki er hægt að útskýra sem tilviljun, svik eða venjulegt minni. I samskiptum fólks skapast oft mjög áberandi vinátta eða andúð, sem ekki virðist hægt að gera grein fyrir með neinum sálfræðilegum útskýringum. Þótt nú á dögum sé vafalaust hent gys að skáldsagnahöfundum, sem lýsa í verkum sínum ást við fyrstu sýn, þá er lítill vafi á því, að slíkt kemur iðulega

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.