Morgunn


Morgunn - 01.12.1979, Page 25

Morgunn - 01.12.1979, Page 25
UM DAUÐANN 103 í þessu afmælisriti er einnig birt útvarpsleikrit mitt / ljósa- skiptum, sem flutt var hér í hljóðvarpi i janúar 1978, en það gerist að öllu leyti eftir dauðann. Ég hef i þessum erindum minum minnst á tvenns konar rannsóknir til dæmis um þetta. Það eru rannsóknir á sýnum fólks á banabeði, sem annast hafa vísindamennirnir dr. Karlis Osis og dr. Erlendur Haraldsson og rannsóknir drs. Ians Steven- sons á endurholdgunarkenningunni. Þá er eftir að minnast nokkuð á rannsóknir af frásögnum manna, sem lifað hafa líkamsdauðann, ef svo má að orði komast. Hér á ég við það fólk, sem læknar hafa lýst yfir að væri dáið, en engu að siður hefur lifnað við og horfið aftur til lífsins og haldið áfram að lifa i skemmri eða lengri tima og sagt frá þvi sem það upp- lifði meðan það var að mati læknanna látið. Dr. med. Elisabeth Kúbler-Ross er kunnust þeirra vísinda- manna, sem nú leggja fyrir sig hin nýju dauðafræði með rann- sóknum á frásögnum manna sem lifað hafa likamsdauðann. Bókum hennar hefur enn ekki verið snúið á islensku, en tals- vert hefur verið birt hér i blöðum um rannsóknir hennar og hefur það vakið mikla athygli. Dr. Kubler-Ross hefur lýst því yfir opinberlega, að rannsóknir hennar hafi sannfært hana gjörsamlega um það, að annað líf hljóti að taka við að þessu loknu. Árið 1977 kom hin athyglisverða bók LÍFIÐ EFTIR IÁFIÐ eftir Raymond A. Moody í íslenskri þýðingu Ólafs H. Einars- sonar. t þeirri bók skiptir höfundur rannsóknum sinum í þrjá að- greinda flokka: 1) Reynsla fólks, sem liafði verið endurlifgað eftir að lækn- ar þess töldu það látið, úrskurðuðu það látið eða lýstu það læknisfræðilega látið, 2) Reynsla fólks, sem við slys eða alvarlegar lemstranir nálg- aðist mjög andlátsmörkin, og 3) Reynsla fólks, sem meðan það var í andarslitrunum lýsti þvi fyrir viðstöddum sem fyrir það bar. Síðan sendu þeir,

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.