Morgunn - 01.12.1979, Page 30
108
MORGUNN
kærleikans. 1 sambandi við það dró hún fram í myndunum
ýmislegt af samskiptum mínum við systur mína. Þar kom
fram, að stundum hafði ég sýnt af mér eigingirni, en einnig
voru þar þættir þar sem ég sýndi henni ástúð og skipti rétti-
lega með henni.
Veran lagði áherslu á að mér bæri að vinna öðrum ailt það
gagn sem ég mætti. Allt að einu gætti hvergi ádeilu í þessum
ábendingum. Þegar veran kom að atriðum, sem sýndu eigin-
girni í fari mínu, var afstaða hennar mörkuð af því viðhorfi
að ég mætti sjálf eitthvað af þeim læra.
Þá virtist ljósveran hafa mikinn áhuga á allri þekkingu og
lagði áherslu á ýmis atriði sem að henni lutu, hvatti mig til
þess að halda áfram námi og sagði, að þegar hún myndi nálg-
ast mig aftur (en þá hafði veran þegar sagt mér að ég ætti í
þetta sinn að hverfa aftur til jarðlífsins) myndi lögð áhersla á
aukna þekkingu. Hún sagði að þekkingarleitin væri órofin
þróunarbraut, og mér tók að skiljast að þeirri leit lyki ekki við
líkamsdauðann. Ég tel að ljósveran hafi reynt að nota þessa
æviupprifjun til þess að veita mér fræðslu og aukna innsýn.
Þetta var sannarlega ákaflega einkennilegt. Þarna var ég og
horfði á þessa upprifjun ævi minnar. Ég fylgdist af nákvæmni
með öllu og þó gekk þetta svo örhratt fyrir sig. Birtubjarminn
umlukti mig þegar ég tók að fylgjast með upprifjuninni, og
svo var birtan þarna aftur i fullum ljóma. Hvort þetta tók
fimm mínútur eða fimm sekvindur, það er mér um megn að
ákveða.
Ég var óneitanlega nokkuð áhyggjufull meðan ég hélt að
mér ætti ekki að veitast náð til þess að lifa lengur á jörðinni,
og það vakti mér kvíða um hríð. En ég naut þess að fylgjast
með þessari upprifjun. Það var reglulega skemmtilegt, og þá
ekki síst það að hverfa aftur til minna fyrstu bernskuára, nán-
ast eins og ég endurlifði þau til fulls. Allt virtist þetta stefna
að þvi að sýna mér ævi mína þarmig, að mér myndi ekki unnt
að skoða hana og meta betur með öðru móti“.
1 þessari frásögn er bersýnilegt að Ijósveran leggur áherslu