Morgunn


Morgunn - 01.12.1979, Side 85

Morgunn - 01.12.1979, Side 85
RADDIR LESENDA 163 er svo óvenjuleg og fögur, að Morgunn birtir hana með á- nægju og óskar Guðmundi allrar guðs blessunar i nútíð og framtíð um leið og honum er þakkað fyrir bréfið. Til tímaritsins Morguns. Kæri hr. Ævar R. Kvaran. Mig langar til að segja frá eigin reynslu af huglækning- um sem ég varð fyrir núna nýlega. Siðast i ágústmánuði þurfti ég að leggjast inn á Landa- kotsspitala í Reykjavík, vegna skurðaðgerðar við skjald- kirtli. Vinkona mín frá því í bamæsku á Siglufirði spurði mig, hvort ég vildi að hún talaði við huglækni, sem stund- aði lækningar úr fjarlægð, hún meinti, að ég þyrfti ekki að fara til hans. Hún kallaði það fjarlægðarlækningu. Ég játti því undireins, því mér finnst sama hvaðan gott kemur. Hún sagði mér, að maður þessi væri í stjórn Sálarrannsóknafé- lagsins í Reykjavík. Aðgerðin fór fram kl. 10:00 um morgun og var búin kl. 12:00. Þegar ég rumskaði eftir svæfinguna fannst mér stofan, sem ég lá í vera eins og böðuð í sólskini og loftið vera eins og geislavirkt. Ég fann ekki fyrir því, að ég hafði verið ný- uppskorinn. Þar sem ég lá í sjúkrarúminu glaðvakandi var sem mér birtist sýn og sé að maður stendur við rúmgaflinn og fannst mér það vera læknir. Hann var hávaxinn og svip- mikill. Gaf hann mér bendingu um að gera augnæfingar, sem ég kannaðist við úr yogaæfingum. Móðir mín sat í stól við rúmið. En mér fannst einhver maður sitja gengt rúm- inu, sem ég beindi athygli minni að og talaði ég stöðugt til hans eitthvað, sem ég vissi ekki hvað var, en hann eins og lét mig tala stöðugt. Þegar ég rankaði við mér varð ég undrandi yfir þvi, að þar var enginn stóll og enginn maður. Maður sá, sem ég sá sitja á stólnum var ekki sá sami, sem hafði staðið við rúm-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.