Morgunn


Morgunn - 01.06.1989, Page 27

Morgunn - 01.06.1989, Page 27
MORGUNN DRAUMAR fratager de Hjertenskære"; hann þekkti ég ekki og hafði aldrei heyrt hann. Ég þóttist þess viss í svefninum, að þetta unga fólk, sem þarna var inni, væri börn Velschows og systur minnar, enda þekkti ég þar glöggt Kristján, William og Gerdu, börn þeirra, eftir ljósmyndum, sem ég hafði séð af þeim á Sauðanesi. Ekkert varð mér þá í svefninum hugsað til þess, að þessi börn þeirra væru öll dáin. — Ég spyr svo Velschow, hvort hann geti ekki sagt mér hvar systir mín (kona hans) sé; hann segir mér, að hún sé í Kaupmannahöfn. Þá man ég allt í einu, að hún er fyrir löngu flutt í burt frá Skagaströnd, og allt orðið breytt. Síðan segir Velschow við mig: ,J>ú átt að skrifa systur þinni, berðu hjartanskveðju frá okkur; segðu að allt sé svo gott, svo gott, (tvítók það með áherslu), við sjáumst bráðum.“ Mér þótti hann, eða þau öll vera á einhverju ferðalagi. Svo var draumurinn á enda. Þennan draum skrifaði ég systur minni til Kaupm.hafnar, 4. febr. 1913; oghafðiþáenga vitneskjuumdauða Williams, sonar hennar. í næsta bréfi sínu segir hún mér frá láti hans, en nefnir ekki dánardaginn þar. 6. júní s.á. segir hún mér í bréfi, að hann hafi dáið 21. des. næstl., og sendir mér þá jafnframt tvo sálma sérprentaða, sem hafi verið sungnir við jarðarförina; eru það sömu sálmarnir sem mig dreymdi. Þann síðari kannaðist ég ekkert við. — Systir mín segir mér, að hann sé í nýrri útgáfu sálmabókarinnar dönsku. — Um- getið bréf og sálmana geymi ég enn. — Þau Velschow og systir mín áttu saman 14 börn (að mig minnir), þar af munu hafa verið dáin 6 á undan William, og 7 með honum, er ég sá hann í svefninum ásamt hinu unga fólki í kontórnum á Skagaströnd. — Upphafshendingarnar tvær af óþekkta sálminum skrifaði ég strax upp samdægurs, meðan ég myndi þær; er það blað geymt enn. (Morgunn 1920, 1. hefti) 25

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.