Morgunn - 01.06.1989, Blaðsíða 28
Einar H. Kvaran
SYSTIRIN OG SPRENGIKÚLAN
Ógrynni af dulrænum sögum eru sögð úr ófriðinum mikla.
Hér fer á eftir ein, sem fullyrt er í ensku tímariti, að sé
áreiðanlega sönn. írskur maður — Phil er hann nefndur í
frásögninni — lá með félögum sínum eina nótt sem oftar í
einni skotgryfjunni. Hann sá þessa nótt framliðna systur sína
mjög greinilega. Hún laut niður að honum og sagði: „Phil,
farðu í hinn endann á skotgryfjunni!“ Þetta var svo lifandi
fyrir honum, að hann stökk á fætur og sagði: „Heyrið þið,
piltar — við ættum heldur að flytja okkur héðan.“ „Er þig að
dreyma?“ spurðu félagar hans forviða. „Ég veit ekki“, sagði
Phil, ,,en ég held, að við ættum að komast héðan“. Og hann
fór í hinn endann á skotgryfjunni, en hinir hreyfðu sig ekki.
Jafnskjótt sem hann hafði flutt sig þetta, kom sprengikúla
niður nákvæmlega þar sem hann hafði legið, og handleggir
og fætur af félögum hans flugu í allar áttir. Sjálfan sakaði
hann ekki.
(Morgunn 1920, 2.+3. hefti)
26