Morgunn - 01.06.1989, Qupperneq 44
SPÍRITISMINN
MORGUNN
milli lifandi manna og framliðinna, eða með öðrum orðum,
að það sé hennar ætlunarverk, samkvæmt fyrirmælum Jó-
hannesar-bréfsins, að „trúa ekki sérhverjum anda, heldur
reyna andana, hvort þeir séu frá guði“. En þá er ekki fjarri
lagi, að því er mér virðist, að spyrja að hverju gagni vér
getum búist við, eða vonast eftir, að spíritisminn og fyrir-
brigði hans geti orðið.
„Ég nefni fyrst af öllu vissuna um ódauðleikann. Satt er
það að vísu, að mikill fjöldi manna hefur trúað því fastlega á
öllum öldum, ekki aðeins að andinn lifi eftir líkamlegan
dauða, heldur og að það líf sé ævarandi. En jafnvel um
kristna menn er það að segja, að þó að þeir hafi trúað á
persónulegan ódauðleika, þá hafa þeir oft óskað þess, að
sannanir fyrir ódauðleikanum væru betur sannfærandi en
þær eru.
„Merkilegur kafli er í „Ævisaga dr. Johnsons“ eftir
Boswell. Þar er sagt frá samræðu, sem fór fram í Oxford,
Iaugardaginn 12. júní 1784. Dr. Johnson var þá gestur dr.
Adams, yfirmanns Pembroke-collegísins. Boswell segir:
„Ég hef ekki nein skrif um samtalið þetta kvöld, nema eitt
brot. Ég minntist á sýn Lytteltons lávarðar, sýn, sem boðaði,
hvenær hann mundi deyja, og að fyrirboðinn hefði ræst
nákvæmlega. Þá sagði Johnson: Það er hið frábærlegasta,
sem gerst hefur á minni ævi. Ég heyrði það með mínum eigin
eyrum af vörum frænda hans, Westcote lávarðar. Mér þykir
svo vænt um hverja sönnun, sem ég fæ um andlegan heim, að
mér er ljúft að trúa henni. Dr. Adams svaraði; „Þér hafið
nægar sannanir, góðar sannanir, sem ekki þurfa neinn
stuðning“. Johnson sagði þá: „Mig langar til að fá þær
meiri“.
„Ef til vill hefur dr. Johnson aldrei verið í nánara samræmi
við hugsunarhátt og tilfinningar Englendinga, eins og þeir
gerast almennt, en þegar hann sagði, að hann langaði til að fá
meiri sannanir fyrir andlegum heimi. Það er einmitt þessar
sannanir, sem hugsanlegt er að spíritisminn færi mönnunum.
En auk framhaldslífs andans eftir dauðann getur verið að
spíritisminn fræði okkur eitthvað meira en trúarbrögðin hafa
42