Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 7
Viðar]
Þórður Kristleifsson:
Inngangsorð.
Félagar nemendasambanda héraðsskólanna ásamt Eiða-
skóla hafa tekid höndum saman í þvi skyni að eignast
sameiginlegan vettvang til þess að flytja efni um ýmis-
konar menningar- og framfaramál. Auk þess birtir ritið
skýrslur um starfshœtti skólanna, greinargjörðir og frá-
sagnir um helztu viðburði og framkvœmdir á vegum þeirra
o. s. frv. Ritið mun einnig birta fréttaþœtti af félögum i
nemendasamböndunum. Munu þœttirnir enn sem fyrr njóta
almennra vinsœlda meðal lesenda ritsins.
Með Viðari vilja kennarar og nemendur skólanna treysta
félagsheild sína, beita sameinuðum kröftum að ýmsum
óleystum viðfangsefnum til sóknar á andlegum og verk-
legum sviðum.
Þótt þeim, sem rit þetta gefa út, sé fullljóst, að margt
er nú fœrt í betra horf frá því, sem áður var okkar á meðal,
þá eru félagar jafn sannfœrðir um hitt, að lífið heldur
áfram að gjöra sínar kröfur til athafna og sífelldrar fram-
sóknar. Ef við hugsuðum sem svo, að skólamál okkar og
önnur þroskaviðleitni vœri komin á þann rekspöl, að öllu
vceri borgið án frekari aðgjörða, þá mundi slikt leiða af
sér tilslökun á mörgu þvi bezta, sem þegar hefur áunnizt.
Ritið og skólarnir munu vinna í sameiningu gegn undan-
haldi, hiki, afskiptaleysi og sérhlífni. Skólarnir vilja glœða
gáfur nema, veita þeim frœðslu í mörgum greinum, þroska
hœfileika þeirra eftir megni, svo að þeir verði fœrari til
þeirrar baráttu, sem biður þeirra að skólavist lokinni.
Viðar á að vera tengill milli nemenda og skólanna. Hann
á að halda við þeirri glóð, sem skólarnir veittu nemum i
veganesti og auka þeim útsýn til nýrra, ónuminna landa,