Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 98
92
ÆSKAN OG UPPELDIÐ
[Viðar
eru öðrum fremur heillandi. Og engar íþróttir heimta
frekar jafnvægi og fegurð í hreyfingum en listhlaup á
skautum. Skíðafarir og skautahlaup koma iðulega að góðu
gagni í daglegu lífi.
í Laugarvatnsskólanum er ein stund daglega ætluð til
útiveru. Þegar snjór eða ís leyfir, er farið á skíðum eða
skautum. í nokkra vetur hefur verið leikinn knattleikur á
ísnum og gefizt vel. Leiknum (íshockey)'svipar til knatt-
spyrnu, en allir eru leikmenn á skautum og með knatttré,
sem knettinum er leikið með.
Flestum drengjum er í blóð borin hvöt til þess að reyna
sig við aðra. Gætir þess mikið í leikum og íþróttum. Ekki
er rétt að kæfa hana heldur halda henni innan takmarka.
Og sjálfsagt er að fá sem flesta með í kappleikana, unga
og gamla, litla og stóra. Jafnir leika bezt. Því er áríðandi,
að hver og einn fái sinn jafningja að þreyta við. Þá dugar
ekki að flokka eftir aldrinum einum, en jafnframt eftir
hæð og þyngd. Menn verða því að vita meðalhæð og meðal-
þyngd nemenda á öllum aldri. í heilbrigðisskýrslum árið
1926 eru töflur yfir þetta eftir mælingum Carls Schiötz,
sem er yfirskólalæknir í Oslo. Þær ná yfir áldurinn frá
7—18 ára. Talið er, að þær komi vel heim við sænskar og
amerískar töflur samskonar og líklegt er, að svipað gildi
hér. Hér er tekið eitt dæmi um það, hvernig drengjum er
skipað niður í keppni eftir aldri, hæð og þunga.
Drengir, sem eru rúmlega 11 ára að aldri, eru að jafnaði
tæpir 137 cm. á hæð og allt að því 31 kíló á þyngd. Nú mæl-
ist drengur á sama aldri að vera viðlíka hár og þungur
eins og 15 ára meðaldrengur og ríflega þó. Enginn sann-
girni er í því, að meðaldrengur, jafnaldri hans, keppi við
hann. Leikurinn yrði áreiðanlega ójafn. En ekki er heldur
rétt, að hann þreyti við 15 ára meðaldreng, sem aldursins
vegna hefur meiri æfingu til brunns að bera. Sennilega er
réttast,að aldurinn hafi tvöfalt gildi móts við hæð og þunga.
Dæmið lítur þá þannig út: