Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 191
Viðar]
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
185
um, er var sleppt. — Ritreglur Preysteins notaðar við kennsluna í
báðum deildum. Kennarinn fór með frásögn og viðtali yfir bók-
menntasögu íslands frá upphafi og fram undir siðaskipti. — Einn
stíll í viku hverri, ritgerð eða stafsetningaæfingar.
Saga. — Yngri deild. — íslendingasaga Arnórs Sigurjónssonar út að
siðaskiptum og Veraldarsaga H. G. Wells, bls. 11—84.
Eldri deild. — íslendingasaga Arnórs frá siðaskiptum og út bókina
og Veraldarsaga Wells, valdir kaflar um 75 blaðsíður
Landajrœði. — Yngri deild. — Kennslubók í landafræði eftir Bjarna
Sæmundsson, lesið. um ísland og Norðurlönd; ennfremur kaflarnir
um sjóinn og gufuhvolfið.
Eldri deild. — Sama bók, bls. 1—159.
Reikningur. — Yngri deild. — Lesin reikningsbók Ólafs Daníels-
sonar aftur að jöfnum, sumt tvílesið.
Eldri deiid. — Sama bók. Pyrri hlutinn hraðlesinn. Lesið vandlega
um jöfnur, flatarmál og rúmmál.
Heilsufrœði. — Yngri deild. — Lesin Líkams- og heilsufræði eftir
Ásgeir Blöndal með miklum viðaukum frá kennaranum.
Náttúrufrœði. — Yngri deild. — Dýrafræði eftir Bjarna Sæmunds-
son út að kaflanum um manninn. — Plönturnar eftir Stefán Stefáns-
son, bls. I—108 og frá bls. 158 og út bókina.
Félagsfrœði. — Yngri deild. — Þjóðskipulag íslendinga eftir Bene-
dikt Björnsson, bls. 1—82. Kennarinn jók við um einstök atriði.
Eldri deild. — Sama bók frá bls. 82 og til enda. Ennfremur Hag-
fræði eftir Charles Gide um 300 bls., valdir kaflar, efni þeirra
rætt og skýrt.
Eðlisfrœði. — Eldri deild. — Fysik for Mellemskolen I—II eftir Th.
Sundorph notuð við kennsluna..
Bókfœrsla. — Eldri deild. — Kennd einföld bókfærsla og undir-
stöðuatriði tvöfaldrar bókfærslu.
Söngur. — Æfður samsöngur karla og kvenna og ennfremur samkór.
fþróttir. — Fimleikar. Nemendum var skipt í fjóra flokka. Sund-
kennsla fór fram að aflokinni leikfimi. Kennt bringusund, baksund,
skriðsund og björgunarsund. Tilsögn veitt um björgun og lifgun. —
Knattspyrna var iðkuð daglega, þegar veður og færi hamlaði eigi.
Handavimia. — Hannyrðir. Stúlkur prjónuðu 26 muni, en saumuðu
131. Þar af voru 9 veggteppi. Vélsaumaðar voru 77 flíkur. Af þeim
voru 22 vesti útsaumuð, 2 kjólar og 1 blússa. — Smíðar. Piltar smíð-
uðu 21 skrifborð, ennfremur töskur, skápa, koffort, hillur, borð o. fl.
— Bókband. Nemendur bundu alls 270 bækur, aðallega fyrir sjálfa
sig, en einnig nokkuð fyrir bókasafn skólans.
Erlend tungumal. — Eins og að undanförnu var ekki skylda að læra
erlend mál, en nemendur gátu, eftir sjálfsvali, lært dönsku, ensku