Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 17
Viðar]
BJARNI Á LAUGARVATNI PIMMTUGUR
13
arskólann og var síðast skólastjóri barnaskólans þar viö
ágætan orðstír.
Á Laugarvatni opnaðist Bjarna nýr starfsheimur. Verk-
efnin voru mörg og möguleikarnir óteljandi fyrir þrótt-
mikinn athafnamann. Og Bjarni var vandanum vaxinn.
Undir stjórn hans óx Laugarvatnsskólinn hröðum skrefum.
Húsakostur var aukinn af miklum stórhug og myndarbrag,
en aðsókn að skólanum óx að sama skapi. Fiest árin munu
fleiri hafa sótt um skólavist en kostur hefur verið að veita
viðtöku. Síðastliðinn vetur voru rösklega 170 nemendur á
Laugarvatni, eða helmingi fleiri en fyrsta ár Bjarna þar.
Kunnugum er ljós ástæðan fyrir þessum miklu vinsældum
Laugarvatnsskólans. Þótt fegurð staðarins sé mikil og
lega hans hagkvæm miðað við Reykjavík, vita þeir þó, að
það ræður ekki úrslitum, eins og sumir virðast álíta, heldur
hitt, að Bjarni á Laugarvatni er óvenjulega duglegur og
góður skólastjóri.
Hann hefur sýnt í verki, að það er rangt, að héraðsskól-
arnir þurfi að vera litlir, aðeins fyrir 40—60 nemendur,
til þess að þeir geti orðið góðir skólar. Hitt er hinsvegar
rétt, að það er ekki á allra færi að stjórna 170 nemenda
heimavistarskóla, svo að í lagi sé, en það virðist vera leikur
einn fyrir Bjarna. Þetta verður ekki skilið til hlítar nema
þekkja manninn sjálfan. En það, sem einkennir Bjarna
mest og ekki verður komizt hjá að taka eftir, jafnvel við
stutt viðtal, er karlmennskan, — þrótturinn og festan, sem
streymir út frá honum. Hann vekur þegar við fyrstu kynni
ótakmarkað traust, og með hinum sterku áhrifum sínum
magnar hann sjálfstraust og vilja þeirra, sem með honum
eru.