Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 100
94
ÆSKAN OG UPPELDIÐ
[Viðar
Árangurinn var þannig: Börn í skóla fátækra, 7—8 ára
gömul, höfðu gáfnaldurinn 6,1, en í skóla þeirra efnaðri
8,9. Það er að segja, gáfur þeirra eftir prófinu að dæma
svara til gáfna meðalbarna rúmlega 6 ára og tæplega 9
ára. Börn 11—12 ára höfðu gáfnaldur 9,6 og 12,1, og 14 ára
11,6 og 14,2. Mismunurinn á gáfnaaldri þeirra er ekki langt
frá því að vera tvö ár til jafnaðar. Hraustum börnum geng-
ur námið betur en veikluðum og auðveldara er að hafa
heilbrigð áhrif á skapgerð þeirra. Ef menn stinga hendinni
í eigin barm, og minnast þess, þegar þeir voru lasnir eða
illa fyrirkallaðir, skiist þetta fljótlega.
Vansvefta og veikluð börn þola ekki erfiði, sem íþrótt-
irnar heimta. Hér þarf skólalæknirinn að vera á verði, og
segja til um það, ef einhver nemandi má ekki stunda íþrótt-
ir. íþróttakennarinn og skólalæknirinn þurfa að vera í
náinni samvinnu og skilja hvor annars hlutverk. Skólar
og heimili verða að leggjast á eitt með að venja börnin á
holla lifnaðarhætti, annars er hætt við, að allt, sem reynt
er að byggja upp, hrynji í rústir. Næturvökur, kaffi, tóbak
og áfengi á ekkert skylt við heilbrigði og íþróttir og er
sérstaklega veiklandi fyrir þá, sem ekki erú fullvaxnir.
En það er fátt, sem heldur unglingunum frekar frá þessu,
en glaðvært og laðandi íþróttalíf, þar sem æskufjörið fær
útrás við viðfangsefni, sem flestum heilbrigðum eru hugð-
næm. Sumir hafa ímugust á íþróttum, bera því við, að þær
geri menn ruddalega, mikla á lofti og keppni skapi sundur-
lyndi og illindi. En víst er þó, að jafnoft gefst tækifæri
til prúðmennsku, lítillætis, samheldni og velvildar. Það
fer eftir því, hvernig sá veldur, sem á heldur.
Til þess að ná nokkrum árangri í íþróttum, þarf skap-
festu, þolinmæði og athygli. Allt eru þetta kostir, sem
prýða hvern mann. En það er ekki rétt að einblína á af-
rekin. Maðurinn er þó dálítið meira en hold og bein. Það
eru einmitt mannkostirnir, manngildið, sem leitazt er við
að þroska með iðkun íþrótta. Það er stefnan, sem ekki má
víkja frá.