Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 59
Viðar]
HVAÐ MÁ GJÖRA
9
53
hlið hans með hrákakrukku, bolla, skál eða annað ílát og
láta hann skyrpa í. í annarri hendi heldur hann á munn-
þurrku og þerrar vit sjúklingsins eftir hverja hóstakviðu.
Ef hóstinn er mjög harður, er rétt að aðstoðarmaðurinn
styðji við brjóst hins sjúka, og lyfti koddanum með höfði
sjúklingsins til þess að honum verði léttara að skyrpa.
Heita bakstra skal íorðast, en kaldir bakstrar á brjóstið
saka ekki, ef þeir eru hafðir stutt, og stundum sefar það
sjúklinginn. Séu til ópíumsdropar, er gott að gefa sjúk-
lingnum 15—20 dropa, bæði draga þeir úr hósta, sefa hug-
ann og undirbúa súklinginn undir svefn.
Fara skal með hráka, hrákaílát, þurrkur o. þ. h. sem
smitandi hluti, og nauðsynlegt er að geyma sýnishorn af
blóðuppganginum, unz læknir kemur. Bezt er að loftinu sé
haldið röku með gufu, þurrt loft espar hóstann.
4. Þá komum við að skyndilegum einkennum frá kviðarholi.
Er þar um allauðugan garð að gresja og einkenni, sem
oft eru mjög afdrifarík.
Helztu sjúkdómarnir, er valda skyndilegum og hastar-
legum einkennum frá maga, eru:' Botnlangabólga, garna-
flækja, sprungin maga- og garnasár, gallsteinar, nýrna-
steinar, magablæðingar og inniklemmd kviðslit.
Um meðferð almennings á þeim einkennum, er þessir
sjúkdómar valda, vil ég gefa nokkrar almennar reglur.
1. Gefið aldrei lexerolíu né setjið sjúklingi pípu, ef um
er að ræða skyndilegar kvalir í kviðarholi, slíkt gæti kostað
hann lifið.
2. Leggið aldrei heitan bakstur á kvið sjúklings, sem
kastar uyp blóði, hversu mikla verki, sem hann hefur.
3. Gefið aldrei sjúklingi, sem hefur kvalir í kviðarholi,
morfín, ópíum eða önnur sterk kvalastillandi meðul, fyrr
en læknir er búinn að skoða sjúklinginn og leyfa það.
4. Gefið aldrei sjúklingi, sem vitað er um að hafi maga-
sár, mikið af sódapúlveri í einu. Sódapúlver og magasýra