Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 185
Viðar]
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
179
Framan af vetri reyndust nokkrir nemendur brotlegir við bann
skólans gegn reykingum, en síðari hluta skólaársins var skólareglum,
er að því lúta, trúlega fylgt.
Fyrsta febr. og 1. des. var að venju minnzt. Var það gert á þann
hátt, að fólki úr nágrenni var boðið til samkomu og kaffidrykkju í
skólanum. Nemendur fluttu allmörg stutt erindi og skemmtu með
söng og smásýningum.
Skólasamkovia var höfð að vanda, þar sem nemendur léku kafla
úr Jeppa á Fjalli, lásu upp og sungu. Ágóði varð enginn. í félags-
lífinu og félagsstarfinu í heimavistarskólunum gefst nemendum ágætt
tækifæri til þess að æfa og efla hjá sér ýmsar mikilsvarðandi borgara-
legar dyggðir. Skólaheimilið er dálítið ríki útaf fyrir sig og þar gefst
hverjum einstökum kostur þess að leggja sinn skerf til þess að skapa
þar viðeigandi heimilisblæ með prúðmannlegri framkomu og virð-
ingu fyrir þeim reglum, sem settar eru í því augnamiði og virðingu
fyrir manndómi sjálfs sín.
Skemmtanalíf í heimili heimavistarskóla er þýðingarmikill þáttur.
Gleðin í hvíldarstundunum frá námi er lifsnauðsyn, en varðar miklu
hver og hvernlg hún er. Hér skipta nemendur sér í sveitir, sem sjá
um skemmtiefni annaöhvort laugardagskvöld. Eru þá hafðir gaman-
leikir, skrautsýningar, útvarpsfréttir, leikir o. m. fl. En hitt laugar-
dagskvöldið er almennasta og eftirsóttasta skemmtunin, dansinn, sem
hefur þann kost að vera almenn og tiltækileg, en þann ókost að vera
einhæf og andlaus.
Héraðsskólarnir ættu að leggja stund á söngdansinn (vikivaka), að
dæmi frændþjóða okkar og útbreiða þjóðlegri og hollari skemmti-
efni en nú tíðkast og grípa má til, hvar sem æskumenn mætast svo
á grænum grundum sem í salakynnum.
Heilsufar.
Ein stúlka véiktist allhættulega af lungnabólgu. Henni batnaði
aftur, en hvarf frá námi rétt fyrir jólin. Að öðru leyti var heilbrigði
góð.
Vottorð héraðslœknis. Læknisskoðun fór fram á nemendum og kenn-
urum skólans að Núpi 21/10 ’38. Virtist heilsufar í góðu lagi. Um-
gengni og þrifnaður í ágætu lagi. Berklapróf var endurtekið í lok
skólaársins, 28/3 ’39. Höfðu engir orðið jákvæðir yfir námstímann
og því eigi um smitun að ræða.
Gunnlaugur Þorsteinsson.
Mötuneytið.
Nemendur höfðu eins og að undanförnu sameiginlegt mötuneyti með
12*