Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 164
158
FRÉTTIR AF LAUGVETNINGUM
[Viðar
Grímur Gíslason var heima í Saurbæ í Vatnsdal. Var á námskeiði
Framsóknarmanna s. 1. vetur.
Guðbjarni Þorvaldsson var mjólkurbústjóri á ísafirði.
Guðfinna Guðmundsdóttir var heima á Fjalli á Skeiðum.
Guðmundur Guðmundsson Hnífsdal stundar sjómennsku sem fyrri.
Var á vélstjóranámskeiði í Reykjavík í vetur.
Guðni Örvar Steindórsson ekur bíl í Reykjavík á vetrum, en vinnur
við símalagningu á sumrum.
Guðrún og Guðleif Jörundsdætur frá Skálholti hafa haft atvinnu
í Reykjavík.
Grímur Ögmundsson býr á föðurleifð sinni, Syðri-Reykjum í Bisk-
upstungum. Hefur hann byggt þar vandað íbúðarhús og gróðrar-
skála við hverinn.
Gísli Bjarnason hafði atvinnu við bifreiðarakstur i vetur. Vinnur
heima í Lambhúskoti í Biskupstungum í sumar.
Guðmundur H. Magnússon, Tröllanesi í Neskaupstað, stundaði sjó-
mennsku heima.
Gerður Guðmundsdóttir er að læra hjúkrunarstörf í Reykjavík.
Guðrún Jakobsdóttir vann við áfengisverzlun ríkisins, sem áður.
Friðrik Guðmundsson var í Samvinnuskólanum, en er nú tollþjónn.
Guðmundur Guðmundsson Móum á Kjalarnesi hefur verið í Sjó-
mannaskólanum.
Frímann Guðmundsson Kópaskeri var í Samvinnuskólanum, en i
kaupavinnu norður í Eyjafirði í fyrra sumar.
Guðrún Þjóðbjörg Jóhannsdóttir vann í Rvík s. 1. vetur, en hefur
verið heima hjá foreldrum sínum , Hveragerði, síðan.
Guðmundur Þórarinsson frá Vorhúsum lauk námi í Kennaraskólan-
um s. 1. vor.
Grímur Thorarensen var við verzlunarstörf í Þýzkalandi í sumar.
Gunnlaugur Jónsson, Bjargasteini, og Gunnlaugur Jóhannsson, Úlfs-
stöðum, voru hér í skólanum s. 1. vetur, og munu hafa verið heima
í sveitum sínum í sumar.
Gunnar Guðbjartsson á Hjarðarfelli var í búnaðarskólanum á
Hvanneyri s. 1. vetur, en Guð'björg, systir hans, var í Reykjavík.
Halldór Guðbrandsson í Skálmholti hefur byggt nýbýli niður í
Flóa og býr þar.
Haukur Jörundsson frá Skálholti var kennari á Hvanneyri.
Helgi Geirsson er skólastjóri barnaskólans í Hveragerði. Hann er
giftur Sigríði Áskelsdóttur úr Hrísey. Þau voru hér í skólanum
samtímis.
Heiðbjört Pétursdóttir úr Reykjavík er gift Ara Jónssyni frá Norð-
firði. Hann er klæðskeri í Stykkishólmi. Eitt Laugarvatnsskólahjóna-
bandið enn.