Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 54
48
HVAÐ MÁ GJÖRA.... ?
tViðar
1. Bráðir sjúkdómar með sérstakri smithœttu.
Til þeirra teljast fyrst og fremst hinar eiginlegu far-
sóttir, svo sem mislingar, barnaveiki, skarlatssótt, tauga-
veiki o. s. frv. Sjúkdómar af þessari tegund byrja á ýmsan
hátt, en hafa þó ýmis sameiginleg einkenni. Flestir byrja
með hita, höfuðverk, beinverkjum, lystarleysi og máttleysi.
Sumum fylgir kalda og skjálfti. Staðbundin einkenni vanta
oft í fyrstu, eða svo lítið ber á þeim, að almenningi sést
hæglega yfir þau. Rétt er að fylgja þeirri reglu, veikist
maður þungt með þessum einkennum án þess, að önnur
einkenni komi bráðlega, er bendi á vissan stað eða visst
líffæri.eða þá t.d. útbrot, sem oft eru einkennandi fyrir vissa
sjúkdóma, að skoða hann þá sem grunsamlegan um að vera
haldinn af einhverri næmri sótt. Það er eigi á færi almenn-
ings að gjöra sér ljóst, hver sjúkdómurinn muni vera, fyrst
í stað að minnsta kosti. En það, sem hægt er að gjöra til
þess að bæta líðan sjúklingsins, meðan ekki næst til læknis,
er þetta: Gefa aspírin eða tilsvarandi lyf við höfuðverk,
beinverkjum og svefnleysi, allt að 1 töflu 3svar á dag, láta
hann nærast á léttum mat, svo sem eggjum og mjólk, láta
hann fá kaldan bakstur á ennið, athuga púls og öndun,
og sé honum þungt, þá að gefa honum svart kaffi, kam-
fórudropa, 40 dropa í senn eða meir. Halda honum heitum
á fótum með hitaflöskum, ef þörf krefur og gæta allrar
alúðar um hjúkrun. Séu svæsin hálsbólgueinkenni, er alltaf
til góðs að setja heitan bakstur undir kverk og um hálsinn,
og má nota graut eða kamillute til þeirra hluta. Sé þurr,
erfiður hósti, er gott að hafa gufu í herberginu með því að
setja ílát með heitu vatni á ofninn og láta það gufa upp
smátt og smátt. Setja má kamfóru í vatnið, ef hún er til.
Annað aðalatriðið við þessa sjúkdóma er að forðast, að
smitið nái að sýkja aðra. Til þess að reyna að forðast slíkt
verður að einangra sjúklinginn, hjúkrunin sé falin einni
manneskju, er fari úr kyrtli sínum eða hlífðarflík hvert
sinn, er hún fer út úr sjúkraherberginu og í hana aftur,
er hún fer inn. Hún verður að þvo sér um hendur úr lýsól-