Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 48
42
HVAÐ MÁ GJÖRA.. ..?
[Viðar
leitt reyna að koma fram með festu, myndugleik og hlýju
hugarþeli. Allt þetta skapar traust hjá þeim sjúka.
Sá, er hjúkrar, — því að bezt er að felá það einni mann-
eskju að svo miklu leyti, sem hægt er, — á að halda sig
sem mest í herbergi sjúklingsins, helzt þannig, að hann
sjáist. Það veitir sjúklingnum aukið öryggi, er hann veit,
að hann getur fengið hjálp og aðstoð svipstundis, ef hann
þarf einhvers með.
Ef þess er nokkur kostur, þarf hinn sjúki að fá að vera
í herbergi fyrir sig, en sé það ekki hægt, bera að hafa svo
fámennt í sjúkraherberginu sem kostur er. Einkum er æski-
legt að koma börnum burtu úr því og hafa þau annars-
staðar. Bezt er að reyna að haga svo til, að herbergið sé
sólarmegin og hægt sé að opna glugga. Oft er vitanlega
ómögulegt að uppfylla þessi skilyrði, en reyna verður að
komast sem næst þessu.
Rúm hins sjúka er bezt að láta standa út frá vegg, svo
að hægt sé að komast að því báðum megin frá og gæta
verður þess, að birtan falli ekki beint í andlit sjúklingsins,
því að slíkt er þreytandi fyrir hann.
Hiti í herberginu á að vera 17—-18° á Celcius. Ráðlegt er
að viðra herbergið með því.að opna dyr og glugga í senn
2—3svar á dag, ef veður leyfir, 10—15 mín. í senn, helzt á
morgnana um leið og tekið er til, búið um og gólfið þvegið,
að kveldinu, þegar búið er að ganga frá sjúklingnum undir
nóttina og helzt líka um miðjan daginn eftir aðalmáltíðina.
Forðast skal að láta sjúklinginn verða fyrir dragsúg, og
verja skal hann fyrir súg með aukateppi, trefli eða sjali um
höfuðið eða þess háttar.
Þá ber að gæta þess að flytja út úr herberginu allt, sem
orðið getur til að spilla andrúmsloftinu, svo sem hægðir,
þvag, matarleifar og óhrein föt.
Sá, sem hefur hjúkrunina einkum með höndum, verður
að gæta þess, að hinn sjúki verði fyrir sem allra minnstu
ónæði af öðrum, og ganga ríkt eftir, að hann sé ekki þreytt-
ur um of, eða honum gefið tilefni til kvíða um sinn hag,