Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 18
14
BJARNI Á LAUGARVATNI PIMMTUGUR
[Viðar
Þessi áhrifamáttur Bjarna á aðra menn er um leið sig-
uraflið í allri skólastjórn hans og veldur því, að hann á
sérstaklega auðvelt með að sveigja menn undir vilja sinn
án þess, að um þvingun eða þrælsótta sé að ræða. Það
kemur af sjálfu sér, getur ekki öðru vísi verið.
Annað einkenni Bjarna sem skólastjóra og manns er
hæfileiki hans að auka víðsýni og þroska nemenda sinna
með því að sýna þeim traust og láta þá finna, að til þeirra
séu gerðar miklar vonir. Traust Bjarna verður mörgum
aflvaki til dugnaðar og framtakssemi, sem þeir vissu ef til
vill ekki áður að með þeim byggi. í þessu kemur skýrt fram
bjartsýni Bjarna á mönnunum, trú hans á manndóminn í
hverjum manni. Eitt meginhlutverk skólans verður þá það,
að manna nemendurna, skapa hjá þeim fegurðartilfinningu,
temja þeim prúðmannlega framkomu og kenna þeim að
hugsa rökrétt. Til þess að komast sem lengst áleiðis með
nemendur sína í þessa átt er Bjarni ekki aðeiris kröfu-
harður um það, að námið sé vel rækt, heldur gengur hann
líka hiklaust eftir því, að öllum skólareglum sé hlýtt út
í æsar.
Allur agi og reglusemi er mjög fullkomin á Laugarvatni,
eftir því sem þekkist í skólum hér á landi. Kemur þar til
greina ágætt samstarf og hnitmiðaður samleikur skóla-
stjóra og kennara, en einnig það, að Bjarni er mjög glöggur
á menn, fljótur að kynnast öllum nemendum sínum, þekkja
þá og skilja. Hann hefur nákvæmt auga með hverjum
þeirra, meðan þeir dveljast í skólanum, og gerir sér far
um að fylgjast með þeim, er þeir eru horfnir þaðan út í
lífið og starfið. Þá eiga þeir hauk í horni, þar sem Bjarni
er. Hjálpfýsi hans og samhugur við nemendur sína, eldri