Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 178
172
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
[Viðar
að unnt yrði að halda uppi smíðakennslunni, en þó ekki af því tagi
og gæðum, er þurft hefði.
Saumar og hannyrðir (13 stúlkur) : 9 náttföt, 7 pils, 6 blússur,
7 kjólar, 15 sóffapúðar, 9 dökkir borðdúkar, 6 kaffidúkar, 1 bakka-
dúkur, 1 Ijósadúkur, 1 peysa prjónuð.
Próf.
Miðsvetrarpróf fór fram 16.—21. janúar, vorpróf 20. marz—5. apríl.
Fræðslumálastjóri skipaði prófdómara við vorpróf, þá séra Friðrik A.
Friðriksson á Húsavík og Kristján Jakobsson bónda á Narfastöðum.
Um handavinnu stúlkna dæmdu Kristjana Pétursdóttir forstöðukona
Húsmæðraskólans og frú Katrín Kristjánsdóttir, Laugum. Undir bæði
prófin gengu allir nemendur, er eigi höfðu eða höfðu haft sérstök
forföll vegna veikinda. Þó fengu fáeinir nemendur heimfararleyfi,
áður en vorprófum væri að fullu lokið, þar eð skipsferðir voru
mjög óhagstæðar eftir skólaslit, og einn nemandi fyrir vorpróf vegna
sérstakra heimilisástæðna.
SJcólallf.
Fyrirsettir skólahættir voru sömu og undanfarið.
Tvö félög störfuðu í skólanum, Laugamannafélagið, er sá um al-
mennt félagslíf, og tóbaksbindindisfélag. Eru hér bannaðar reykingar
innan húsa og ekki gerðar aðrar bindandi kröfur um meðferð tóbaks,
en unnið gegn nautn þess með frjálsum félagsskap, er nær allir nem-
endur tóku nú þátt i, og virtust þeir halda bindindi sitt vel.
Erindi voru flutt og myndir sýndar af allmörgum mætum mönnum,
er heimsóttu skólann. Er þar að nefna F. Braae Hansen, hinn danska
skiptikennara, er dvaldi hér nokkra daga, Snorra Sigfússon skóla-
stjóra, Ólaf Ólafsson kristniboða og aðstoðarmann hans Gunnar Sig-
urjónsson, Pétur Sigurðsson kennimann, Eirík Pálsson stud. jur.,
Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli, síra Friðrik A. Friðriksson o. fl.
— Ráðið hafði verið, að tvær bekksagnir frá Menntaskóla Akureyrar
heimsæktu Laugaskóla, er nú vildi einhverju launa hið ánægjulega
heimboð til Akureyrar í fyrra. En svo meinlega vildi til, að eigi gat
af orðið, fyrst vegna veikindatilfellis hér, en síðar tók fyrir færi.
Nokkur bót varð í máli, er brautskráðir stúdentar ásamt skólameist-
ara og frú hans og ýmsum öðrum aðstandendum Menntaskólans komu
hér við í vor á kveðjuför frá skólanum og stöldruðu nokkuð sam-
kvæmt boði skólaráðs Laugaskóla.
Haldnar voru tvær samkomur með aðgangi fyrir almenning. Arði
af annarri var varið til styrktar nemanda, er orðið hafði að dvelja
í sjúkrahúsi, eii af hinni rann hann í hljóðfærasjóð skólans.