Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 63
Viðar]
HVAÐ MÁ GJÖRA.. .. ?
57
Bláæðabólga er bólga, sem kemur í æðar þær, er flytja
blóðið til baka frá hverjum stað áleiðis til hjartans. Ekki
er óalgengt að bláæðabólga komi í sambandi við æða-
hnúta á fótum og fótasár eða í sambandi við bólgur í ná-
grenni við bláæðarnar. Strax og slíkrar bólgu verður vart
skal sjúklingurinn fara í rúmið, heitir bakstrar eða spritt-
bakstrar settir við bólguna, limurinn settur í fullkomna
kyrrð og hækkaður upp til þess að létta blóðinu rásina.
Aspirín eða tilsvarandi lyf má gefa við þrautum, eins og
raunar öllum þrautum í útlimum, svo sem liðagigt, vöðva-
og taugagigt, tognunum, bólgum o. s. frv. Sinaskeiðabólga
er ekki fátíð hjá þeim, sem fara að fást við eríiði, sem þeir
eru óvanir. Hún lýsir sér með sársauka við ákveðnar hreyf-
ingar og marri, sem bæði má heyra og finna með fingrun-
um. Gjöra má hvort sem er að bera joðáburð rækilega á
staöinn eða nota bakstra, en þýðingarmest er, að hinn
sjúki staður fái fullkomna kyrrð. Er hún bezt tryggð með
spelkum. Bjúgur er venjulega afleiðing hjarta eða nýrna-
sjúkdóma, en kemur þó einnig í sambandi við æðabólgur,
helzt í fætur. Leita skal viðeigandi lækningar og hafa hátt
undir fótunum á nóttunni, ef bjúgurinn er þar, sem oftast
er og vefja fæturna frá tám og upp eftir. Neyta skal lítillar
vökvunar, drekka lítið, forðast saltmeti og krydd.
Tognanir á liðaböndum eru algengar, vatn í liðum og
blæðingar í liði sömuleiðis. Hinum sjúka lið skal haldið
í kyrrð með spelkum eða traustum umbúðum, nota skal
bakstra, annaðhvort heita eða þá blývatnsbakstra, gjarnan
með arniku. Sömuleiðis má bera joð umhverfis liðinn. Blý-
vatnsbakstra má yfirleitt nota við lokaðar bólgur, tognanir,
mar og þess háttar, en aldrei við opin sár, sökum hættu
á blýeitrun. Aspirín og önnur gigtarmeðul má nota við
þrautum.
Gigtin svonefnda er þá einnig kunningi fjölda manna
og kvenna. Gigtveikir menn skulu fyrst og fremst klæða
sig vel, helzt í ull hið næsta sér, reyna að sneiða hjá vos-