Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 183
Vifiarl
ÚTDRÁTTUR ÚR SKÓLASKÝRSLUM
177
iðar samgöngur o. fl. olli því, að stöðin gat ekki starfað í heilan
mánuð. Eftir það varð tíðarfarið þess valdandi, að kröp stífluðu oft
ána mjög bagalega. Er nú verið að undirbúa breytingu á stíflunni
sem tilraun til umbóta í þessu efni.
Námið og tilhögun þess.
Tilhögun kennslunnar var svipuð því, sem verið hefur undanfarna
vetur, fyrirlestrar, samtöl, yfirheyrslur og verklegar úrlausnir, og til-
raunir með hjálp áhalda, einkum í eölisfræði. Skólastjóri kenndi rétt-
ritun og bókband í e. d., bókmenntasögu í y. d. og í báðum deildum
sameinuðum eðlisfræði, framsögu og ensku. Séra Eiríkur kenndi rétt-
ritun í y. d., bókmenntasögu, málfræði og reikning í e. d. og í báðum
deildum föðurlandssögu, landafræði og dönsku. Tveir nemendur lásu
þýzku hjá séra Eiríki. Jón Guðmundsson kenndi bókfærslu í e. d.,
málfræði í y. d. og í báðum deildum mannkynssögu og dýrafræði. Þrír
nemendur lásu sænsku hjá Jóni. Viggó Nathanaelsson kenndi leik-
fimi, sund, ísl. glímu og handavinnu piltum í yngri deild. Hann hafði
og eftirlit með útivistartímum og leiðbeindi í leikjum, þegar því varð
við komið.
Hólmfríður Kristinsdóttir kenndi stúlkunum handavinnu, hvítan
og mislitan skrautsaum, fatasaum, leðuriðju, flos og skrautmálningu
í dúka. Haukur Kristinsson kenndi söng í báðum deildum og æfði
allmörg lög í blönduðum kóri.
Til undirbúnings næsta dags eru ætlaðar þrjár stundir á degi
hverjum. Eru þá skólastofurnar hljóðir lestrarsalir, þar sem hver
situr við sína vinnu undir umsjón og leiðbeiningu kennara. Hafði
Jón Guðmundsson það starf að mestu leyti með höndum.
Námsgreinar og bœkur.
Sameiginlegt nám beggja deilda var í þessum námsgreinum:
Fööurlandssögu, 2 st. á viku. Lesin bók Arnórs Sigurjónssonar, fyrri
hluti. Jafnframt margir fyrirlestrar.
Mannkynssögu, 2 st. á v. Lesið ágrip Þorl. H. Bj. en mjög miklu
bætt við munnlega. Lesið út að stjórnarbyltingunni frönsku.
Eðlisfrœði, 2 st. á v. Var hún kennd að mestu í fyrirlestrum með skýr-
ingum á töflu og tilraunum.
Dýrafrœði, 2 st. á v. Lesin Dýrafræði Bj. Sæmundssonar. Farið yfir
mest alla bókina.
Landafrœði, 2 st. á v. Bók Karls Finnbogasonar lesin. Miklu bætt
við munnlega, einkum um ísland og jarðmyndun þess.
Framsögn. Æfingar voru hafðar í því að flytja kvæði og skilja efni
þeirra, svo og sjálfstæðri erindagerð og flutningi þeirra, 1 st. á viku.