Viðar - 01.01.1939, Blaðsíða 61
Viðar]
HVAÐ MÁ GJÖRA. ... ?
55
Nýrnasteinum fylgja mikil kvalaköst, venjulega í baki
öðru hvoru megin. Kvalirnar leggja jafnan niður í blöðru,
getnaðarfæri og jafnvel niður í læri. Oft kemur blóð í
þvaginu og gefur það vísbendingu um, hvað sé að. Sé blóð
mikið í þvagi, má eigi leggja á heitan bakstur, sem ann-
ars er óhætt, en hinsvegar má þá gefa ópíum eða annað
kvalastillandi, því að sjúkdómsgreiningin er nokkurnveg-
in viss, ef þessi einkenni, ásamt blóði í þvagi, eru fyrir
hendi.
Magablæðingar lýsa sér með því, að hinn sjúki, sem
venjulega er vitað um að hefur þjáðst af magakvilla, verð-
ur fölari smátt og smátt, fær suðu fyrir eyrun, ógleði og
uppköst og kastar þá upp dökku, kaffilituðu eða jafnvel
tjörubrúnu magainnihaldi. Uppköst eru ekki nærri alltaf,
en hin einkennin: fölvi, máttleysi, suða fyrir eyrum, svimi,
hjartsláttur og hraður púls án hita, gefa til kynna að
manninum er að smáblæða út. Forðast skal að leggja heit-
an bakstur á slíkan sjúkling, sem fyrr var sagt, hann má
ekkert nærast, en má dreypa í vatn, sem er ískælt með
ísmolum eða gleypa íspillur. Leyfilegt er að leggja ískald-
an bakstur á kviðinn, en gagnið vafasamt. Aðalráðin eru
svelta og fullkomin kyrrð.
(Skyndileg einkenni frá þvagfærum eru, ef nýrum er
sleppt, helzt snöggleg þvagteppa, sem getur orsakast af
bráðri bólgu í næsta umhverfi þvagrásarinnar eða í blöðru-
hálskirtlinum. Slíkri bólgu fylgja venjuleg bólgueinkenni,
roði, þroti, verkir, hiti o. s. frv. Verður bezt dregið úr slík-
um einkennum með heitum bökstrum. Ef um bráða bólgu
er að ræða í blöðruhálskirtlinum, er reynandi að setja
sjúklingnum pípu með ca. 40° heitu vatni og láta hann
halda því inni sem lengst. Reynandi er, að leggja bakstra
neðst á kviðinn og milli fótanna, ýmist heita eða kalda,
hella vatni eða láta vatn renna í nánd sjúklingsins, en
oftast kemur slíkt að litlu gagni, ef um er að ræða ein-
hvern sjúkdóm, sem hindrar frárennslið eða lokar þvag-
rásinni að meira eða minna leyti. Tilgangslaust er að láta