Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is K aup dótturfélags Magma Energy á 32% hlut Orkuveitu Reykja- víkur í HS orku gengu í gegn í stjórn OR á mánudag. Fyrr í sumar hafði dótt- urfélag Magma keypt 11% hlut í fé- laginu af Geysi Green Energy og á það því 43% hlut í HS orku. Forsagan Forsaga málsins er sú að Sam- keppniseftirlitið úrskurðaði að Orku- veitan mætti aðeins fara með 10% hlut í HS orku, en hlutur OR var þá þegar 16% og samningar lágu fyrir við Hafnarfjarðarbæ um kaup á 15% til viðbótar á genginu 7. Þegar þetta varð ljóst reyndi OR að bakka út úr kaupunum af Hafn- arfjarðarbæ, en tapaði málaferlunum fyrir héraðsdómi og var ekki aðeins gert að standa við gerða samninga heldur einnig að greiða dráttarvexti. OR áfrýjaði til Hæstaréttar, en báðir deiluaðilar urðu sammála um að eyða ágreiningnum með því að selja hlutinn í HS orku. Samið var um að OR stæði við kaupin á hlut Hafn- arfjarðarbæjar í HS orku með láni á 4,5% verðtryggðum krónuvöxtum. Í janúar fór OR með hlutinn í HS orku í opinbert söluferli, sem mið- aðist við frest samkeppnisyfirvalda fram að áramótum. Svo fór að ein- ungis tvö erlend félög skiluðu inn bindandi tilboði, en beiðni OR um lengri tímafrest fékk dræmar und- irtektir hjá Samkeppniseftirlitinu. Svo fór að Magma keypti hlut OR í HS orku á rúma 12 milljarða á geng- inu 6,31 og staðgreiðir 30% af kaup- verðinu, en fær 70% lánuð frá OR til sjö ára. Salan verður tekin fyrir í borgarráði á fimmtudag og í borg- arstjórn 15. september. Gagnrýnin Gagnrýnin hefur m.a. falist í því að það sé Magma Energy Sweden, sænskt dótturfélag, sem kaupi hlutinn í HS orku, en ekki kanadíska móður- félagið. En það er tilkomið vegna tak- markana íslenskra laga, sem heimila ekki fjárfestingar aðila utan EES í þessum geira. Þá séu einungis bréfin í HS orku lögð að veði fyrir láninu, sem beri að greiða með eingreiðslu eftir sjö ár. Á móti kemur að 30% kaupverðsins verða staðgreidd, þannig að skuld- binding liggur þegar fyrir af hálfu Magma. Kveðið er á um það í samn- ingnum að eigandinn megi ekki taka nein verðmæti út úr HS orku með eignasölu og jafnframt að arð- greiðslur fari inn á vörslureikning sem standi undir tryggingabréfinu. Þá verður árlega ráðist í virðisrýrn- unarpróf og fari virði veðsins undir ákveðin viðmiðunarmörk í gefinn tíma, þá þarf kaupandinn að leggja fram auknar tryggingar eða greiða inn á lánið. Annars hefur OR heimild til gjaldfellingar og eignast þá selda hlutinn aftur, auk þess að halda eftir 3,5 milljarða staðgreiðslu. Gagnrýnin hefur einnig falist í því að vextirnir á láninu til Magma, sem eru 1,5%, séu mun lægri en vextirnir sem OR greiðir til Hafnarfjarðar- bæjar vegna kaupanna á hlutnum í HS orku. Þá gagnrýni verður þó að skoða í því ljósi að þessir samningar eru ótengdir með öllu; tilboð Magma hafði ekkert með kaup OR á hlutnum í HS orku að gera. Munurinn á vaxta- kjörum skýrist af því að kaup Magma eru fjármögnuð í dollurum og vextir á skuldabréfum í dollurum eru hverf- andi, öfugt við vexti krónubréfa. Þess má geta að OR greiðir um 1% vexti af lánum sínum í erlendri mynt. En vextirnir eru þó ekki algildur mælikvarði á lánskjörin, því lánið sem OR veitir Magma er tengt álverði og aðeins til hækkunar. Viðmið- unarverðið hljóðar upp á 1.750 dollara á tonnið, en álverð hefur hækkað síð- an í 1.950 dollara, sem leiðir til hækk- unar skuldabréfsins um 6%. Til dæmis um hvaða áhrif ólíkar breytur geta haft á samninginn, þá lækkar verðmæti bréfanna í 5,6 ef ál- verð stendur í stað á næstu sjö árum, en ef álverð hækkar upp í þakið í samningnum, 3.250 dollara, þá fer verðmæti bréfanna í 7,1. Önnur leið fyrir OR væri að kaupa framvirkan samning og eyða þannig áhættu tengdri álverðsþróuninni, en sam- kvæmt heimildum bæri þá skulda- bréfið 4,3% vexti í dollurum. Þeirri spurningu hefur verið velt upp hvers vegna OR hafi keypt hlut- inn í HS á genginu 7 á sínum tíma, en verðmætið hafi lækkað síðan í 6,3. En þá ber að hafa í huga að eiginfjárhlut- fall félagsins var 51% árið 2007 og skuldir 13,5 milljarðar. Nú er eig- infjárhlutfallið mun óhagstæðara eða 18% og skuldirnar hafa vaxið í 29,2 milljarða, en þær rúmlega tvöföld- uðust með hruni krónunnar. Forsend- urnar eru því gjörbreyttar. Á það er bent að kaupverðið á sínum tíma hafi verið 16 sinnum EBITDA félagsins, sem hafi þótt mikið þá, en gengið í kaupsamningnum núna sé um 23 sinnum EBITDA. Eina leiðin til að ná því virði út úr rekstrinum fyrir nýjan eiganda sé að hann hafi aðgang að fjármagni til frekari uppbyggingar og til þess þurfi að verða viðsnúningur í rekstrinum, því fyrirtækið hafi verið ofurselt lán- ardrottnum um nokkurt skeið með of lágt eiginfjárhlutfall og virkar gjald- fellingarheimildir. Loks er gagnrýnt að auðlindin hafi færst í meirihlutaeigu einkaaðila. En veruleikinn er annar því Reykjanes- bær keypti auðlindina af HS orku og leigði hana aftur til HS orku til 65 ára, sem er hámarkstími samkvæmt lög- um sem samþykkt voru á Alþingi í fyrra að frumkvæði Össurar Skarp- héðinssonar iðnaðarráðherra. Kaupverðið helst í hendur við auð- lindagjaldið, þannig að ef auðlinda- gjaldið hefði verið hærra, þá hefði það vísast komið til hækkunar kaupverð- inu til Reykjanesbæjar. Og til þess að fyrirbyggja að gengið sé of hratt á auðlindina, þá lækkar auðlindagjaldið með góðri umgengni um hana, til dæmis með niðurdælingu sem tryggir endingartímann. Morgunblaðið/G.Rúnar Epli og appelsínur?  Svara leitað við gagnrýni á sölu Orkuveitu Reykjavíkur á hlut í HS orku  Lánskjör tengd álverði sem hefur hækkað um 6%  Forsendur hafa gjörbreyst á undanförnum árum Svartsengi Enn er deilt um virkjanir hér á landi. Nú stend- ur styrinn meðal annars um orkuna úr Svartsengi. Í HNOTSKURN »Magma var stofnað í byrj-un ársins 2008 af forstjór- anum og stjórnarformann- inum Ross Beaty. »Félagið hefur fjárfest íýmsum jarðhitaverk- efnum, meðal annars í Ne- vada, Oregon, Chile, Perú og Argentínu. »Beaty segir lagt upp meðað eignast að minnsta kosti 50% hlut í HS orku og jafnframt sé stefnt að því að gera Magma að almennings- hlutafélagi. Sala Orkuveitu Reykjavíkur áeignarhlutnum í HS orku létt- ir undir með félaginu í fjár- mögnun á framtíðaruppbyggingu á Hengilssvæðinu, en tilraunabor- anir lofa góðu. „Það er mikilvægt að hafa náð að losa um þennan eignarhluta og semja við Hafn- arfjörð,“ segir Hjörleifur B. Kvar- an, forstjóri OR. „Nú strandar fjármögnunin fyrst og fremst á stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna. Bankar hafa ekki verið tilbúnir að lána peninga til framkvæmda á Íslandi, hvorki til okkar né annarra orkufyr- irtækja. Við eigum samt sem áður loforð um 27 milljarða lán frá Evr- ópubankanum frá því í september í fyrra og erum enn þeirrar trúar að bankinn muni efna það lán. Hann hefur ekki fellt það niður og bíður vísast eftir því að ró komi yfir efnahagsmál á Íslandi og fylgist grannt með aðgerðum stjórnvalda í því skyni.“ Fyrirséð er að setja þarf mikiðfjármagn inn í rekstur HS orku til að gera fyrirtækinu kleift að ráðast í þá uppbyggingu sem þarf til að selja orku til álversins í Helguvík og Norðuráls. Í því skyni eru á teikniborðinu 50 til 60 millj- arða framkvæmdir á Reykjanesi. Magma hefur lýst vilja til að taka þátt í þeirri uppbyggingu, en setja má spurningarmerki við bol- magn annarra hluthafa félagsins til þess. Ef ríkið hefði leyst til sín eignarhlutinn hefði ákvörðun um þátttöku ríkisins hafnað á borði fjármálaráðherra, sem hefði getað valdið óvissu um framtíð slíkrar uppbyggingar, ekki aðeins vegna þröngrar stöðu ríkissjóðs, heldur einnig yfirlýstrar andstöðu Vinstri grænna. Þegar tilkynnt var um sölu GGE á 11% hlut í HS orku til Magma, þá fylgdi sögunni að ráðist yrði í hlutafjáraukningu á genginu 4. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um það á stjórnarfundi, en ef það hefði gengið eftir, þá hefði svo lágt gengi rýrt eignarhlut OR í HS orku enn frekar. Nú þegar má segja að eigið fé hafi verið fært niður úr genginu 7 í 6,31. Óvissa um fjármögnun „ÞAÐ hefur þvælst fyrir okkur að ef dómur Hæstaréttar yrði neikvæður, þá féllu á OR tíu milljarðar vegna kaupanna af Hafnarfjarðarbæ og við hefðum aðeins nokkra daga til að efna það,“ segir Hjörleifur B. Kvaran, for- stjóri OR. „Sú óvissa hefur haft nei- kvæð áhrif á möguleika okkar til lán- töku erlendis og valdið óvissu matsfyrirtækja. En þetta sam- komulag leysir það og þá er það frá!“ Hann segir eignarhlutinn í HS Orku hafa verið í söluferli í langan tíma. „Engir innlendir fjárfestar sýndu áhuga,“ segir hann. „Þegar á reyndi voru það eingöngu tveir útlendir aðilar og þeir gerðu ráð fyrir að greiða í eigin mynt. Hinn var breskur verðbréfa- sjóður sem vildi greiða í pundum. En okkar niðurstaða var sú að Magma hefði gert hagstæðasta tilboðið. Og þar sem við skuldum 200 milljarða í erlendum gjaldeyri, þá fellur lán í dollurum vel að okkar eignasafni og minnkar gengisáhættuna.“ – Eruð þið að innleysa gengistap? „Ein spurningin frá borgarfulltrúum VG og Samfylk- ingar var sú hvert yrði verðmæti bréfsins ef gengi krón- unnar styrktist um 25%, 50% eða 100%!“ svarar hann.. „En ríkisstjórn sömu flokka hefur sent okkur þau skila- boð að gera ekki ráð fyrir neinni verulegri styrkingu krónunnar á næstu árum. Ef menn hafa þá trú að gengi krónunnar geti styrkst um 100%, þá eru það góð tíðindi fyrir OR með allar þessar skuldir í erlendri mynt. Salan á hlut OR breytir í raun engu til eða frá, því HS orka var þegar komin í meirihlutaeigu eins einkafyr- irtækis. OR hefði til dæmis engu ráðið um hugsanlega sameiningu Magma og GGE. Það var Reykjanesbær sem tók þá ákvörðun að HS orka yrði ekki í samfélags- legri eigu.“ Hjörleifur B. Kvaran Lánið fellur vel að okkar eignasafni Auður fyrir þig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.