Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 45
VERSLUNAR- OG ATVINNUHÚSNÆÐI – TIL LEIGU – SMIÐJUVEGUR 3, KÓPAVOGI (á móti Orkunni, Bónus og BYKO) 4000 fm verslunar- og atvinnuhúsnæði. Þar af allt að 2300 fm á einu gólfi og í einum sal. Allt að 5,5 m lofthæð og góð bílastæði. Hugsanlegt að skipta í minni einingar. Nánari upplýsingar í síma 892 1529 og 892 1519 BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 Landfestar ehf. óska eftir tilboðum í Sætún 8 í Reykjavík. Hægt er að gera tilboð í: a) Heildareignina, þ.e. allt svæðið með byggingum b) Kaaberhúsið eitt og sér, með sérafnotalóð c) heildareignina, að Kaaberhúsinu undanskildu Hægt er að skoða eignirnar milli klukkan 11 og 12 alla virka daga. Nánari upplýsingar um stærðir, eignaskiptasamning, afstöðumyndir og aðrar forsendur má nálgast á www.landfestar.is Tilboðum skal skila fyrir kl. 16:00 þann 11. september á skrifstofu félagsins, Suðurlandsbraut 22 á 3. hæð. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Landfestar ehf. eru fasteignafélag í eigu Nýja Kaupþings banka. Markmið félagsins er að þróa öflugt fyrirtæki á fasteignamarkaði. Félagið hefur til umráða um sextíu þúsund fermetra af góðu húsnæði. Stærsti hluti þess er skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meðal helstu leigutaka félagsins eru bæði ríkisstofnanir og nokkur af stærri fyrirtækjum landsins. Landfestar ehf. sími 422 1400 www.landfestar.is F A S T E I G N A F É L A G Til sölu Sætún 8 í Reykjavík Mosfellsbæ Laugavegi 170, 2. hæð • Opið virka daga kl. 9:00-17:00 Sími 552 1400 • Fax 552 1405 • www.fold.is • fold@fold.is Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasaliEinar Páll Kjærnested löggiltur fasteignasali Sími 586 8080 • Kjarna Þverholti 2 • 207 Mosfellsbær www.fastmos.is Allar nánari uppl. veita Einar Páll Kjærnested í síma 899-5159 og Viðar Böðvarsson í síma 694-1401 Fallegt 299,7 m2 einbýlishús á einni hæð við Skálahlíð í Mosfellsbæ. Húsið stendur á einstökum stað með óhindruðu útsýni til Reykjavíkur, yfir Sundin og Esjuna. Húsið skiptist í forstofu, gang, sjónvarpshol, stóra stofu m/arni, víngeymslu, borðstofu, eldhús m/mikilli vinnuaðstöðu, svefnherbergisgang, tvö góð svefnherbergi, stórt hjónaherbergi, tvö baðherbergi og gestasalerni, auk þess er rúmgóður bílskúr og geymsla inn af honum. Þetta er án efa eitt af betri húsum á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Skálahlíð - Mosfellsbæ UNDIRRITAÐUR á sparifé til efri ára sem lífeyrissjóðurinn Gildi varð- veitir og ávaxtar. Stjórnarmenn og starfsmenn sjóðsins hafa komið því svo fyrir að störf þeirra fyrir sjóðinn hafa gefið þeim milljónir í aðra hönd. Þótt þeir geri vel við sig stjórnend- urnir höfum við sjóðsfélagarnir tap- að milljörðum á þessum mönnum. Fjármálaeftirlitinu ber að hafa eftirlit með gjörðum þeirra sem fengin voru völd og ábyrgð til að fara með eignir okkar sjóðsfélag- anna. Sjálfur hef ég ítrekað reynt að afla mér upplýsinga sem varpað gæti ljósi á ráðslag stjórnenda sjóðs- ins, án árangurs. Því beindi ég nokkrum spurningum til fjármála- eftirlitsins fyrir tveimur mánuðum. Svör hafa engin borist. Því endurtek ég spurningarnar hér: 1. Hefur FME farið yfir stöðu og kynnt sér ítarlega lífeyrissjóðinn Gildi? 2. Telur FME að fjárfesting- arstefna lífeyrissjóðsins uppfylli all- ar þær kröfur sem til er ætlast í rekstri sjóðsins samkvæmt lögum? 3. Hver er afstaða FME gagnvart vogunarsjóðum? Uppfyllir sjóðurinn þær reglur, hafa hugsanleg brot ver- ið framin, samkvæmt grein 8.1.7 þar sem segir að sjóðnum sé heimilt að fjárfesta í fjárfestingarsjóðum sem fjármagni sig með lántöku eða skortsölu. 4. Telur FME að það sé heimilt samkvæmt lögum að neita sjóðs- félaga um skýrslu endurskoðenda? Málið var tekið fyrir á fundi og því neitað alfarið af stjórn sjóðsins). 5. Samræmist þessi fagafgreiðsla lögum? 6. Telur FME eðlilegt að skulda- bréfasafn sé fært niður um 12 þús- und og þrjúhundruð miljónir króna? Ekkert er getið um það í ársskýrslu hvaða fyrirtæki eiga hér í hlut). Viðbótarspurningar eru þessar: Hyggst Fjármálaeftirlitið svara þessum spurningum? Telur FME að starfsemi Gildis standist lög. nr 161/2002? Spurningar eru settar fram vegna þess að undirritaður á beinna hags- muna að gæta vegna rekstrar lífeyr- issjóðsins Gildis. Spurningarnar eru sömuleiðis fram settar til að freista þess að tryggja samræmi á milli ábyrgðar stjórnenda og þess sem þeir bera úr býtum í vandasömum störfum sínum. Ábyrgðarvæðing þeirra sem stjórna er ein leið almennings til að stöðva liðið sem hefur leikið lausum hala undanfarin ár, og er aftur kom- ið á kreik, nú til að selja undan okk- ur auðlindir, lönd og lóðir sem áður voru torg, og aðgang að sjúkrastofn- unum og fagþekkingu sem almenn- ingur hefur greitt fyrir. Takið eftir: sem almenningur hefur greitt fyrir. Þetta lið þarf að stöðva strax og þess vegna mun ég ekki gefast upp. JÓHANN PÁLL SÍMONARSON, sjómaður og sjóðsfélagi í Gildi. Opið bréf til forstjóra FME Frá Jóhanni Páli Símonarsyni. LAS hinn 3. september sl. í opnu Morgunblaðsins grein Jóns Steins- sonar. Hér mun vera um að ræða margverðlaunaðan hagfræðing. Átta mig ekki á hvað hann er að fara. Eins og ég skil hann þá fá kröfuhaf- ar alltaf sitt, annað hvort með greiðslu frá skuldurum eða með greiðslu frá skattborgurum. Því ef skuldarar greiða ekki þá greiða skattborgarar. Hag- fræðikenning hans gengur út á að aldrei sé hægt að veita afslátt af því þá sé ekki hægt að mæta óumflýj- anlegum afföllum af lánasöfnum bankanna (auk þess sem Íbúðalána- sjóður fékk engan afslátt). Finnst þessi grein óskiljanleg og finnst inntakið vera „ekki í neinu“. Þætti vænt um ef hann gæti orðað hugsun sína betur og jafnframt upp- lýst okkur um hvort hann telji grein- ina vera um hagfræði því eins og ég skil hana þá er hún skrifuð eins og greinarhöfundur sé stjórn- málamaður í forsvari fyrir rík- isbankana. Þætti vænt um að vita hvort hann er kannski í bankaráði nýju ríkisbankanna. Þætti líka vænt um að hann upplýsti um árangur stjórnvalda á síðustu mánuðuðum og hvar hann sé að finna. Því hann nefnir í greininni að þeim „árangri“ megi ekki kasta á glæ (sic). Að minnsta kosti tel ég alveg ljóst að þessi maður veit lítið eða ekkert um Ísland. EINAR GUÐJÓNSSON, Bjargarstíg 14, Reykjavík. „No-do hagfræði“ Jóns Steinssonar kröfuhafa Frá Einari Guðjónssyni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.