Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 18
18 Leiklist
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
H
ekla gnæfir að venju yf-
ir Galtalækjarskógi
þar sem blaðamaður
og leikkona eiga
stefnumót fallegt síð-
sumarssíðdegi í ágúst. Þótt sólin
skíni í heiði er svalt í veðri og því er
ekki laust við að hrollur sé í gest-
inum þegar sest er niður í einum
lundinum. Því er kippt í liðinn með
því að smala í skyndifótboltamót og
stuttu síðar situr sú stutta kófsveitt
og rjóð í vöngum að spjalli við blaða-
mann.
Katrín Alfreðsdóttir fæddist
reyndar í Danmörku þar sem al-
íslenskir foreldrar hennar, Alfreð
Guðmundsson og Sólveig Karls-
dóttir voru við nám. Þegar hún var
tveggja ára fluttist fjölskyldan heim
en tók sig aftur upp og flutti út á ný
fyrir tæpum fimm árum þegar Katr-
ín var sex ára. Íslenskan er þó ekk-
ert vandamál en Kata viðurkennir að
reka af og til í vörðurnar. „Við tölum
íslensku heima en stundum tala ég
svona íslensku og dönsku, ef ég man
ekki öll orðin.“
Katrín hefur heldur betur þurft að
beita orðunum fyrir sig undanfarna
mánuði. Segja má að í byrjun ársins
hafi líf hennar tekið nýja stefnu, þeg-
ar hún var fengin til að leika aðal-
hlutverkið í sjónvarpsþáttunum
Thea og Leoparden, eins og sagt var
frá í Morgunblaðinu í febrúar, en
þeir verða á dagskrá danska rík-
issjónvarpsins í haust. Þar með
reyndist sagan ekki öll sögð.
„Jú, síðan er ég búin að leika í
einni bíómynd sem heitir Magtens
fyrster,“ uppljóstrar hún. „Þar leik
ég litla systur stráks, sem er aðal-
persónan. Hann er í ballett og lendir
í stríðni út af því. Strákarnir fara
m.a.s. að lemja hann svo ég byrja að
standa með stóra bróður mínum en
þá fara strákarnir að lemja mig.“
Í draugslíki í sjónvarpsmynd
Kata vill ekki segja meira um
söguþráðinn, enda verður eitthvað
að verða eftir þegar myndin kemur í
bíóhús á næsta ári. En verkefnunum
er hvergi nærri lokið. „Í haust leik
ég svo í stuttri sjónvarpsmynd sem
heitir Ský. Það er draugamynd sem
er fyrir börn og verður tekin upp í
Svíþjóð. Þar leik ég stelpu sem er
dáin en sá sem leikur pabba minn er
með aðalhlutverkið þannig ég verð
með svona „dáldið aðalhlutverk“.“
Í öllum hlutverkunum leikur Katr-
ín sér talsvert yngri stelpur og bend-
ir á að það hafi komið sér til góða að
vera heldur lágvaxin. Tökurnar hafa
verið mistímafrekar fyrir ungu leik-
konuna, en lengsta verkefnið var
sjónvarpsþáttaröðin sem tók fimm
vikur í upptökum. Myndirnar tvær
hafa hins vegar aðeins kallað á nokk-
urra daga frí frá skólanum. Og eins
og gefur að skilja hefur Kata þurft
að leggja á sig heilmikla vinnu. „Í
Thea og Leoparden æfðum við bara
um morguninn sama dag og við fór-
um í upptökurnar. Þá var ég bara
snögg að læra því við æfðum okkur
jafnóðum. Í Magtens fyrster var það
Morgunblaðið/Kristinn
Við Esjuna Maturinn, fjöllin og fólkið er það sem Katrín Alfreðsdóttir, 10 ára leikkona í Danmörku saknar mest frá Íslandi og hún fékk góðan skammt af því öllu í heimsókn sinni hingað í sumar.
Skemmtilegt að sjá
mig svona öðruvísi
Hún saknar fjallanna
enda búsett í einu flat-
asta landi norðursins.
Katrín Alfreðsdóttir er
þó alíslensk en þrátt
fyrir ungan aldur virðist
ferill hennar sem leik-
kona kominn á fulla
ferð í Danaveldi.
Hún talar eiginlega aldrei umhlutverkin sín og mynd-
irnar heldur fara þær einfald-
lega í „glemmebogen“ þar til
næsti maður minnist á þær,“
segir mamma Katrínar, Sólveig
Karlsdóttir, um leikferil dóttur
sinnar. „En vissulega fær hún
athygli út á þetta og það er allt-
af verið að spyrja hana hvort
hún sé að leika í mynd núna og
fleira í þeim dúr. Ég held samt
að hún vilji ekkert tala mikið um
þetta því þá er hún hrædd um
að verða kölluð merkikerti eða
eitthvað slíkt.“
Sólveig segir það hálfgerða
tilviljun að sú stutta var rifin
inn í kvikmyndaheiminn. „Vin-
kona hennar í skólanum benti
umboðsmanni á hana sem leist
svona vel á hana fyrir hlutverkið
í sjónvarpsþáttunum. Sú kona
vinnur fyrir marga aðila og læt-
ur þá vita ef hún hefur barn á
sínum snærum sem hún telur
að geti passað í ákveðið hlut-
verk. Þannig hefur þetta undið
upp á sig.“
Aðspurð segir Sólveig hlut-
verkin vissulega hafa valdið
svolitlu róti fyrir Katrínu og fjöl-
skylduna, meðan á tökum hefur
staðið, ekki síst með tilliti til
skólagöngu. „Sennilega hefði
ég ekki tekið í mál að hún tæki
fleiri hlutverk að sér ef þau
hefðu kallað á jafn mikla fjar-
veru frá skóla og það fyrsta, en
þá þurfti hún að fá fimm, sex
vikna frí.“ Það hafi þó gengið
vel að vinna upp það sem þurfti.
Og hún skilur vel að Kata
íhugi annars konar störf en leik-
listina í framtíðinni. „Hún er
nefnilega búin að átta sig á því
að þetta er miklu erfiðara en
flestir halda. Tökurnar taka
langan tíma og það þarf mikla
þolinmæði þannig að þetta get-
ur verið erfitt. Þetta er ekki
bara glansmynd eins og sumir
halda heldur heilmikil vinna.“
Engin
glansmynd
heldur vinna
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið í Galleríi Fold á Rauðarárstíg virka daga 10–18, laugard. 11–16 og sunnud. 14–16
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn 7. september,
kl. 18.15 í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
ÞorvaldurSkúlason
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
Verkin verða sýnd:
sunnudag 12–17 og mánudag 10–17