Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 17
R
af
m
ag
ns
-o
g
tö
lv
uv
er
kf
ræ
ði
de
ild
12,5%
40
45
Ta
nn
læ
kn
ad
ei
ld
47,4%
38
56
G
uð
fr
æ
ði
-o
g
tr
úa
rb
ra
gð
ad
ei
ld
82,6%
23
42
Fjöldi nýnema haust 2008
Fjöldi nýnema haust 2009
Fjölgun milli ára
Morgunblaðið/Kristinn
Háskóli Íslands Fjórtán þúsund
manns munu leggja stund á nám við
skólann á nýhöfnu haustmisseri.
arnám,“ segir Ágúst en áréttar að
vitaskuld hafi hvergi verið slegið af
kröfum. „Inntökuskilyrði eru eftir
sem áður ströng og við vísum fjölda
nemenda frá.“
Rektor segir skólann hafa mætt
fjölguninni með hagræðingu í
rekstri. „Þetta hefur ekki verið auð-
velt á tímum aukinnar verðbólgu en
dæmið hefur gengið upp og við erum
réttum megin við strikið. Skólinn
skilaði hagnaði fyrstu sex mánuði
þessa árs. Það hefði ekki verið hægt
nema vegna þess að allir lögðust á
eitt. Það er hinn eini sanni Bifrastar-
andi.“
Skiptinemum fjölgar á ný
Ágúst segir það hjálpa til að nem-
endur á Bifröst ljúki námi sínu upp
til hópa á eðlilegum hraða. Fyrir vik-
ið sé auðveldara að hleypa nýju fólki
að. Þrátt fyrir fjölgunina segir Ágúst
Háskólann á Bifröst ekki stefna að
miklum vexti í framtíðinni. Skólinn
muni frekar leggja áherslu á að efla
námið.
Rektor segir augljóst að háskóla-
nemendur hafi minna milli handanna
en áður og þeir hafi þurft að laga sig
að breyttum aðstæðum. Hann kveðst
ekki sjá annað en að það gangi
þokkalega en brýnt sé að Lánasjóður
íslenskra námsmanna standi þétt við
bakið á fólki á þessum erfiðum tím-
um í þjóðfélaginu.
Ágúst segir það til marks um
aukna bjartsýni námsmanna að
skiptinemum hafi fjölgað á ný. „Við
hrunið snarhættu íslenskir náms-
menn að fara utan sem skiptinemar
en nú í haust er þetta komið í eðlilegt
horf á Bifröst, þ.e. fjöldinn er svip-
aður og fyrir hrunið.“
17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009
Bodrum í Tyrklandi
Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Heimsferðir bjóða enn eitt aukaflug til hins einstaka áfangastaðar Bodrum í
Tyrklandi á ótrúlegum kjörum. Aukaferðin sem við buðum 15. október í 9 nætur
seldist upp á tæpum tveimur dögum svo nú er um að gera að tryggja sér sæti undir
eins! Um er að ræða 10 nátta ferð í beinu leiguflugi og á hreint frábærum kjörum.
Bodrum hefur notið einstakra vinsælda meðal farþega Heimsferða í sumar og allar
ferðir haustsins eru löngu uppseldar. Þetta er frábær tími í Bodrum, hitastigið ein-
staklega notalegt og yndislegt að njóta alls þess sem staðurinn hefur að bjóða.
Í boði eru einstök sértilboð á frábærum fjögurra og fimm stjörnu hótelum með
„öllu inniföldu“. Gríptu tækifærið og skelltu þér til Bodrum og njóttu haustsins í
Tyrklandi við frábæran aðbúnað á hreint ótrúlegu verði.
Síðasta aukaflu
g seldist
upp á 2 dögum
!
með allt innifalið í 10 daga
24. okt. – Aukaflug
frá 139.900 kr.
Ótrúleg sértilboð– glæsileg gisting!
Frá kr. 139.900
– með allt innifalið í 10 daga
Netverð á mann m.v. gistingu í tvíbýli með „öllu
inniföldu“ á Hotel Mandalinci **** í 10 nætur.
Aukalega fyrir gistingu á Yelken Spa Hotel *****
með „öllu inniföldu“ kr. 10.000. Aukalega fyrir
gistingu á Hotel La Blanche ***** með „öllu
inniföldu“ (ultra all inclusive) kr. 20.000.
Ath. Verð getur hækkað án fyrirvara.
Skógarhlí› 18 • Sími 595 1000 • heimsferdir.is
La Blanche Resort & Spa
Yelken Spa Hotel
Mandalinci Spa & Wellness
La Blanche Resort & Spa
Yelken Spa Hotel
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
90
3
7
Metfjöldi hefur hafið námvið Háskólann í Reykja-vík á þessu ári, um fjór-
tán hundruð manns. Svipaður fjöldi
nýnema hóf nám við skólann nú í
haust og undanfarin ár, um ellefu
hundruð manns, en á móti kemur
að um þrjú hundruð manns innrit-
uðust um áramótin sem er mun
meira en áður, að sögn Jóhanns
Hlíðar Harðarsonar forstöðumanns
almannatengsla HR.
Hann segir umsóknir hafa verið
heldur færri í vor en árið áður en
umsóknir voru aftur á móti nokkuð
fleiri um síðustu áramót en vant er
á þeim árstíma. „Á ársgrundvelli
var þetta svipaður fjöldi og und-
anfarin ár, um tvö þúsund umsókn-
ir.“
Jóhann segir þennan aukna
fjölda nemenda hafa kallað á að
HR hafi forgangsraðað hlutunum,
þannig að nemendur upplifi enga
skerðingu á kennslu eða þjónustu
við skólann. „Það hefur m.a. verið
gert með miklu aðhaldi og hagræð-
ingu, t.a.m. hafa laun starfsmanna
verið lækkuð á árinu. Þá hafa
kennarar og aðrir starfsmenn tekið
á sig aukið vinnuálag til að mæta
þessari fjölgun.“
Jóhann segir ekki hafa komið til
álita að fjölga nemendum í skól-
anum meira í vetur enda sé í gildi
samningur við ríkið um ákveðinn
heildarfjölda, þ.e. um þrjú þúsund
nemendur. Þá setji húsakostur
skólans honum ákveðnar skorður.
„Kennslan í Háskólanum í Reykja-
vík er afskaplega einstaklingsmiðuð
og það er mikið lagt upp úr verk-
legri og hagnýtri kennslu. Skólinn
verður því að halda sér innan
þeirra marka sem hann hefur sett
sér til að viðhalda þeim gæða-
viðmiðum sem hann hefur í
kennslu,“ segir Jóhann. Jóhann Hlíðar Harðarson
Metfjöldi nýnema í HR