Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 55
Auðlesið efni 55 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 Fjölskylduhjálp Íslands út-hlutaði 500 skóla-pökkum í síðustu viku. Um er að ræða skólapakka fyrir nemendur í grunn-skóla og framhalds-skóla. Þetta er af-rakstur söfnunar í Kringlunni sem Skóla-stoðin stóð fyrir. „Mark-miðið var að safna rit-föngum fyrir 100 börn en eftir helgina vorum við með skóla-töskur og rit-föng fyrir um 500 börn á aldrinum 6-18 ára,“ segir Íris Lind Sæmundsdóttir, einn að-standenda sam-vinnu-verkefnisins Skólastoðarinnar. „Við aug-lýstum fram-takið með tölvu-pósti og á Facebook og fengum að-stöðu í Kringlunni til að taka á móti varningi,“ segir Íris Lind. Hún segir að við-brögð almennings og fyrir-tækja hafi farið fram úr björtustu vonum, ekki hafi aðeins verið gefinn notaður skóla-varningur heldur hafi fyrir-tæki og almenningur einnig gefið nýjar vörur til söfnunarinnar. Aðstandendur Skólastoðarinnar eru auk Írisar Lindar þær Alma Tryggvadóttir, Hildur Sunna Pálmadóttir og Margrét Ágústa Sigurðardóttir. Skóla-pökkum út-hlutað Morgunblaðið/Árni Sæberg „Ég lagði upp með að gera trú-verðuga mynd um venjulegt fólk sem lendir í óþægilegum að-stæðum,“ segir Júlíus Kemp, leik-stjóri spennu-tryllisins „Reykjavík Whale Watching Massacre“ sem frum-sýndur var í Reykjavík, Keflavík, á Akureyri og á Selfossi síðast-liðinn föstudag. Myndin segir í stuttu máli frá hópi ferða-manna sem fara í hvala-skoðun en lenda í miklum ógöngum þegar þeir hitta snar-brjálaða hval-veiðimenn. Þótt töluvert af blóði flæði í myndinni, og ofbeldið sé mikið, segir Júlíus að þetta sé ekki „splatter“ eða svo-kölluð B-mynd, eins og margir hafa haldið. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að R.W.W.M. sé bönnuð börnum yngri en 16 ára, enda ansi óhugnanleg á köflum. Aðal-hlut-verk leika Helgi Björnsson, Stefán Jónsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Pihla Viitala, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Snorri Engilbertsson, Terrence Anderson, Nae Yuki og Aymen Hamdouchi. Handritið skrifaði Sjón og það er byggt á hugmynd eftir Torsten Metalstein Hvas og Sjón. Vönduð mynd eftir góðu handriti Slökkviliðs-menn í Kaliforníu eygja nú árangur í baráttunni við víðáttu-mikla skógar-elda sem hafa geisað í rúma viku í nágrenni Los Angeles. Eldarnir hafa þegar brennt yfir 50.000 hektara svæði en vegna aukins raka hefur starfið gengið betur. Enn mun þó nokkur tími líða þar til eldurinn verður haminn auk þess sem hann gæti blossað upp á ný. Eldurinn hefur eyði-lagt yfir 60 heimili og tveir slökkviliðs- menn létust er bifreið þeirra valt við bjarg-brún. Stað-fest hefur verið að skógar-eldarnir væru af völdum íkveikju. Eldar í Kaliforníu Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur stað-fest lög um ríkis-ábyrgð á láni Trygginga-sjóðs inni-stæðu-eigenda og fjár-festa frá breska og hollenska ríkinu. Um leið gaf hann út skrif-lega yfir-lýsingu. Þar er bent á að í lögunum um ríkis-ábyrgð séu marg-víslegir fyrir-varar. Sam-staða hafi náðst á Alþingi og utan þess um að af-greiða lögin í krafti þessara fyrir-vara. Eðlilega sé þó enn and-staða við málið „eins og undir-skriftir um 10.000 Íslendinga, sem forseta hafa borist, eru meðal annars til vitnis um“. Þá segir í yfir-lýsingunni: „Forseti hefur því ákveðið að stað-festa lögin með sérstakri áritaðri til-vísun til fyrir-vara Alþingis.“ Forsetinn skrifaði undir Icesave-lögin Eiður Smári Guðjohnsen er orðinn liðs-maður hjá franska félaginu Mónakó, fyrstur Íslendinga. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við liðið eftir að hafa gengist undir ítar-lega læknis-skoðun og Barcelona og Mónakó höfðu komist að samkomulagi um kaup-verðið sem getur orðið hæst 2 milljónir evra, 360 milljónir króna, en það er tengt árangri hans með félaginu. ,,Þetta er ný áskorun sem ég tekst á við. Mónakó á glæsi-lega sögu og ég hlakka til. Það sem þjálfarinn sagði varðandi hlut-verk mitt með liðinu fannst mér áhuga-vert. Ég get vonandi miðlað af reynslu minni til liðsins og get vonandi skorað mörg mörk. Ég vil bara fá að spila fót-bolta sem ég fékk ekki gera nógu mikið hjá Barcelona,“ sagði Eiður. Eiður Smári til Mónakó Jóhannes Kristjánsson, eftir-herma, einn vinsælasti skemmti-kraftur landsins, gekkst undir hjarta-ígræðslu á Sahlgrenska sjúkra-húsinu í Gautaborg í síðustu viku. Jóhannes fékk alvarlegt hjarta-áfall í byrjun júní. Til þess að bjarga lífi hans var flogið með hann til Gautaborgar þar sem grædd var í hann hjarta-pumpa til þess að halda hjarta hans gangandi. Síðan hefur hann beðið eftir nýju hjarta. „Það var hringt í okkur um fjögur-leytið á mánu-daginn og við vorum komin í loftið um hálf-sex-leytið. Jóhannes fór beint í að-gerðina þegar við komum til Gautaborgar eða um mið-nætti að íslenskum tíma,“ segir Halldóra. „Ég fékk að fara í mjög snöggt bað og síðan beint á skurðar-borðið. Að-gerðin gekk mjög vel og allt hefur gengið afar vel í kjöl-farið,“ sagði Jóhannes. Læknarnir eru að sögn eigin-konu Jóhannesar mjög ánægðir með hversu vel að-gerðin tókst. Jóhannes var kominn á gjörgæslu-deild um tólf klukku-stundum eftir að-gerðina. „Ætli þeir haldi mér ekki hér eitthvað áfram, a.m.k. meðan ég er á öllum þessum lyfjum,“ sagði Jóhannes Kristjánsson. Jóhannes Kristjánsson Fékk nýtt hjarta Niður-stöður kosninganna í Japan þykja sögu-legar því aðeins einu sinni á síðast- liðnum fimmtíu árum hafa frjáls-lyndir misst völdin. Jafnaðar-manna-flokkurinn vann meira en 300 sæti af 480 sætum í valda-mikilli neðri deild þingsins. Jafnaðar-menn hafa m.a. lofað almenningi að horfið verði frá hörðum kapítalisma og komið á fót öflugra félags-kerfi. Breytt utan-ríkis- stefna hefur einnig verið boðuð þar sem sjónum verði í auknum mæli beint til Asíu og unnið að meira sjálf-stæði gagnvart Bandaríkjunum. Kosningarnar eru taldar marka tíma-mót í sögu japansks lýð-ræðis. Kosningar í Japan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.