Morgunblaðið - 06.09.2009, Side 40

Morgunblaðið - 06.09.2009, Side 40
– meira fyrir áskrifendur Heimili og hönnun Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Í blaðinu verða kynntir geysimargir möguleikar sem í boði eru fyrir þá sem eru að huga að breytingum á heimilum sínum. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569-1105, kata@mbl.is Tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00 mánudaginn 14. september. Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Heimili og Hönnun föstudaginn 18. september 2009 Meðal efnis verður : Ný og spennandi hönnun.. Innlit á falleg heimili. Áberandi litir í haust og vetur. Lýsing á heimilum. Sniðugar lausnir á heimilum. Upprennandi hönnuðir. Stofan. Eldhúsið. Kósý hlutir fyrir haustið. Þjófavarnir. Ásamt mörgu öðru spennandi efni. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 ÞAÐ gengur væg- ast sagt mikið á í þessu samfélagi og nokkuð ljóst að hagsmunir almenn- ings hafa ekki alltaf setið í fyrirrúmi, svo vægt sé til orða tekið. Enn er vegið að hagsmunum al- mennings, nú í skipulagsmálum höfuðborg- arinnar. Hér er um að ræða til- lögu að nýju deiliskipulagi í mið- borg Reykjavíkur, nánar tiltekið tillögu að breyttu skipulagi Vall- arstrætis og Ingólfstorgs. Til- lagan byggist í grundvall- aratriðum á gildandi deiliskipulagi frá 1987, skipulagi sem heimilar niðurrif eða brott- flutning gömlu húsanna á svæð- inu. Í dag eru þetta úreltar hug- myndir. Tillagan byggist á því að sam- eina lóðirnar sem á standa húsin Aðalstræti 7 (Saumsprettan), Vallarstræti 4 (gamla Björnsbak- arí) og Thorvaldssenstæti 2 (gamla Sigtún) og að Reykjavík- urborg afhendi eiganda lóðanna að auki tæplega 600 fm af Vall- arstræti og Ingólfstorgi. Þannig verður til rúmlega 1680 fermetra lóð í einkaeigu við Ingólfstorg. Lagt er til að flytja tvö gömul hús og rífa NASA til að byggja 5 hæða, 6.587 fm nýbyggingu sem að stærstum hluta mun hýsa hót- elstarfsemi. Af þessum 6.587 fm eru 1.687 fm í kjallara. Að við- bættu rými í gömlu húsunum, húsum sem flytja á, verður bygg- ingarmagn á lóðinni allt að því 7.500 fm. Til samanburðar má nefna að hótel Reykjavík Centr- um við Aðalstræti 16 er alls 4.735 fm. Gömlu húsin við suðurenda Ingólfstorgs á að flytja til norð- urs yfir Vallarstræti, út á Ingólfs- torgið. Þar verða húsin end- urgerð. Thorvaldsenstræti 2 sem snýr að Austurvelli verður friðað á staðnum. Landssímahúsið, sem liggur að þessum lóðum, er í höndum sömu aðila. Er ætlunin að hafa einnig hótelstarfsemi þar? Ef svo er, væri rétt að það lægi fyrir núna og væri hluti þeirrar skipulagsheildar sem tekin er af- staða til. Það er fráleitt að ekki sé horft til alls Ingólfstorgs og aðliggjandi lóða, frekar en að taka til skipulags eina götu og eina hlið torgsins, svo ekki sé tal- að um að skoða eigi alla kvosina sem eina heild. Þetta eru ekki góð vinnubrögð. Til þess að koma þessu nýja hóteli fyrir verður:  Að minnka núverandi Ingólfs- torg um tæpan þriðjung og auka þar skuggavarp með nýj- um byggingum. Tal um að torgið verði jafnstórt eða stækki með tilfærslu bílastæða eða gatna er blekkingartal. Hið sýnilega og raunverulega torg, rammað inn af húsum sem við það standa, minnkar.  Að færa gömul hús sem ættu skilið vernd á staðnum vegna varðveislugildis gamallar götu- myndar. Sú vernd er reyndar á þeim og vart skiljanlegt að þau mega færa.  Að „lengja“ Vallarstræti sem er nú þegar þekkt fyrir að vera dimmt og næðingssamt.  Að „ýta“ elsta húsi Reykjavík- ur, Aðalstræti 10, út af Ing- ólfstorgi og um leið reisa yfir því háa skuggamyndandi bygg- ingu. Sömu örlög hljóta Að- alstræti 12 og Vallarstræti 3, þar er sjoppan Texas (áður Þöll).  Að rífa hinn gamla tónlistarsal (NASA) sem er helsti tónlist- arvettvangur miðbæjarins og hefur í raun unnið sér friðhelgi og rétt til friðunar, enda eini tónlistarsalur gamla miðbæj- arins sem eftir stendur og er þekktur fyrir einstakan hljóm- burð. Að vísu er lagt til að sal- urinn verði endurbyggður í kjallara nýrrar byggingar en óvíst er um hvort af því verður eða hvernig til tekst.  Að afhenda einkaaðila tæplega 600 fm af borgarlandi, vinsælu almenningsrými. Eru þessar breytingar til hags- bóta fyrir almenning í Reykjavík? Svarið hlýtur að vera nei. Það er langt því frá að verið sé að bæta aðstæður borgarbúa til dvalar og starfa í miðborginni. Það er verið að rýra gæði miðborgarinnar. Ingólfstorg og núverandi götu- mynd, með gömul timburhús að uppistöðu, eru menningarverð- mæti sem ber að varðveita á sín- um upprunalega stað. Skipulags- tillagan þjónar fyrst og fremst hagsmunum lóðareiganda og byggingaraðila en ekki almenn- ings. Þess vegna ber að mótmæla henni. Það er réttur okkar. Þann rétt hafa borgaryfirvöld gefið okkur kost á að nýta til 11. september. Þeir sem vilja mót- mæla sendi tölvupóst á skipu- lag@rvk.is. Þeir sem ekki and- mæla tillögunni teljast samþykykir henni. Til þess eru vítin að varast þau, sbr. turna við Höfðatorg. Klúðrum ekki fleiri svæðum í höfuðborginni. Eyðilegging á Ingólfstorgi Eftir Eirík G. Guðmundsson og Sölva Sveinsson » Í greininni er tillögu um breytt skipulag Ingólfstorgs og Vall- arstrætis andmælt og aðrir borgarar hvattir til þess sama. Eiríkur G. Guðmundsson Höfundar eru sagnfræðingar. Sölvi Sveinsson FJÖLMIÐLAR eru farnir að ræða það sem hvíslast hef- ur verið á um um skeið, steypurisa sem íhugar að hlamma sér niður við elstu hús Reykjavíkur og ýta húsum inn á Hallærisplan eða Ingólfstorg. Þeir sem fyrir þessu standa vísa til gamaldags deiliskipulags frá 1988. Eyðilegging miðborgahúsa átti sér stað víða í Vesturheimi á sjö- unda áratug síðustu aldar. Nú fjörutíu árum síðar er enn verið að vinna í þessum anda hér. Mið- bæjarmarkaðurinn skyggir síðan á þessum tíma á elstu hús Reykjavíkur við Aðalstræti og í Grjótaþorpi og nú stendur til að bæta við 5 hæða steypuhlunk sem nær frá smáhýsi við Austurvöll að Aðalstræti. Þetta er tíma- skekkja og voði. Myrkur og skuggi eru óvinir í landi sem hangir í heimskauts- baugi. Allir sem koma í miðbæinn skynja gæðin sem felast í birt- unni og skjólinu á okkar opna stóra Austurvelli. Svipuð lífsgæði eru á Ingólfstorgi sem skartar mannlífi árið um kring. Skugginn af nýja hótelinu og húsunum á Ingólfs- torgi verður stór á Jónsmessu svo ekki sé talað um skamm- degið. Þeir sem verja þessar framkvæmdir segja að torgið stækki þótt inn á það flytjist stórhýsið Hótel Vík og hús Saumsprettunnar. Þetta er álíka og að segja að maður sem missi fæturna stækki við það að fitna. Sem sagnfræð- ingur og íbúi fullyrði ég að leifar nítjándu aldar húsasögu og rými borgarbúa til framtíðar skaðist við þessa ráðagjörð. Ótaldar eru innvortis skemmd- irnar á salnum aftan við Nasa- Sigtún-Sjálfstæðishúsið- kvennaskólann sem snýr framhlið að Austurvelli. Gamlar innrétt- ingar reykvískra samkomuhúsa hafa verið fjarlægðar, nema kaffihús Mokka. Innviðir Nausts- ins, Hótel Borgar, Hressing- arskálans, Kaffi Traðar og Reykjavíkur apóteks hurfu – svo mætti lengi telja. Enga innan- hússsögu má lengur lesa úr inn- réttingum opinna staða. Borgir stæra sig af veitingahúsum sem standa óbreytt og vekja upp til- finningu fyrir liðinni tíð – nema Reykjavík. Salurinn í Nasa verð- ur lítils virði niðurgrafinn, því hann hefur sitt gildi af samheng- inu við framhúsið. Hver vill fara í neðanjarðarbyrgi með hálfu Nasa-Sigtúni að leita gleðinnar? Eftir hrun er sárt að sjá enn gengið á verðmæti fortíðar. Af hverju fær þetta glæsihótel og meistarasmíð eins okkar virtasta arkítekts ekki að standa hjá tón- listarhúsinu við höfnina? Þar eru dýrlegar lóðir með fínasta útsýni. Ráðamenn, íhugið ábyrgðina gagnvart framtíðinni þegar þið gerið mistök af þessu tagi. Upp- gjör framtíðar verður sárt, eins og eftir mistökin með Fjalakött- inn. Við eigum rétt á opinni og bjartri Kvos. Jafnt hjólabretta- krakkar, bifhjólasamtök lýðveld- isins, ísfíklar sem hlöllaelsk- endur, unnendur útitónleika og útifunda. Látum ekki taka af okkur fleiri sólskinsstundir. Ingólfstorg verði Skuggatorg? Eftir Þórunni Erlu- Valdimarsdóttur »Ráðamenn, íhugið ábyrgðina gagnvart framtíðinni þegar þið gerið mistök af þessu tagi. Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir Höfundur er sagnfræðingur og rithöfundur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.