Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 06.09.2009, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 2009 – meira fyrir áskrifendur Glæsilegt sérblað um börn og uppeldi fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 11. september Börn & uppeldi Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16 mánudaginn 7. september. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 netfang: kata@mbl.is Víða verður komið við í uppeldi barna bæði í tómstundum þroska og öllu því sem viðkemur börnum. Meðal efnis: • Öryggi barna innan og utan heimilis. • Barnavagnar og kerrur. • Bækur fyrir börnin. • Þroskaleikföng. • Ungbarnasund. • Verðandi foreldrar. • Fatnaður á börn. • Þroski barna. • Góð ráð við uppeldi. • Umhverfi barna. • Námskeið fyrir börnin. • Barnaskemmtanir. • Tómstundir fyrir börnin. • Barnamatur. • Ljósmyndir. • Ásamt fullt af spennandi efni um börn. Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 jsb@jsb.is • www.jsb.is Dansstudio JSB Innritun hafin á haustnámskeið! Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili að Frístundakorti Reykjavíkurborgar. E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Í boði er spennandi og krefjandi 12 vikna DANS og PÚL námskeið fyrir þá sem elska að dansa og hafa áhuga á að koma sér í form. • Kennt er í lokuðum hópum • Tímar fyrir byrjendur og lengra komna • Kennarar eru LOVÍSA ÓSK GUNNARSDÓTTIR og PETER ANDERSON, dansarar við Íslenska dansflokkinn. Námskeið hefst 10.september Vertu með! Skráning í síma 5813730 og á jsb@jsb.is Tímar eru 2 x í viku, frjáls aðgangur að tækjasal meðan á námskeiði stendur. Dansstudio 1: Byrjendur, mánudaga kl.19:40 og fimmtudaga 19:40, sal 2. Dansstudio 2: Framhald, mánudaga kl. 20:40 og fimmtudaga kl.20:40, sal 1. Verð: 29.900 kr. Nýtt! STUDIOKORT er árskort sem gildir á öll dansnámskeið í Dansstudioi JSB. Kortið veitir einnig frjálsan aðgang að tækjasal JSB. Verð: 56.900 kr. DANSSTUDIO JS B www.jsb.is TÓNLISTARMAÐURINN Sverrir Guðjónsson, einn þriggja búkslátt- armanna The Human Body Percus- sion Ensemble, segist muna glöggt eftir stofnun sveitarinnar og umfjöll- un um hana í bresku pressunni. „Þetta var eitthvert nafn sem Jakob hafði hugsað sér að nota einhvern tíma þannig að hann var með þetta bara á takteinum eins og þetta væri algjörlega sjálfsagt mál,“ segir Sverrir og hlær að því uppátæki Jakobs að kynna sveitina fjölmiðla- fulltrúa án þess að hún væri til. „Þá var ég að klára framhaldsnám í London, í tónlist og var þá fyrst og fremst að einbeita mér að barokk- og nútímamúsík þannig að ég var ekkert að hugsa um þetta. En hon- um tókst að tengja okkur saman. Ragga var náttúrlega á staðnum og Diddi fiðla var á leiðinni með eitt- hvað allt annað atriði.“ Búinn að bóka hópinn í viðtöl „Síðan hóaði hann okkur saman á sínu heimili og þar ræddum við þetta og veltum fyrir okkur hvernig við gætum unnið þetta. Það voru skiptar skoðanir, við vorum ekkert alveg endilega öll viss um það að þetta væri góð hugmynd. En síðan var kominn það mikill áhugi í fjölmiðla- heiminum í London að okkur fannst eiginlega að það væri kjörið tæki- færi til að láta á það reyna hvernig þetta kæmi út. Þá var Jakob Frí- mann hreinlega búinn að bóka alls konar viðtöl og uppákomur og sjón- varpsstöðvarnar stóðu bara í röð og vildu fá okkur til þess að perform- era. Og hann kom þessu atriði meira að segja inn á Jonathan Ross (spjall- þáttarstjórnanda hjá BBC, innsk.blm.) eins og frægt er.“ Sömdu í leigubílnum Sverrir segir að hann, Diddi fiðla og Ragga hafi staðið í þessu í tæpa viku, brunað milli sjónvarps- og út- varpsstöðva og dagblaða. „Við vor- um bara á leiðinni í leigubílnum að semja það sem við ætluðum að gera næst og Diddi fiðla skrifaði og skrif- aði nótur og við unnum þessi atriði. Það má segja að þetta hafi verið gjörningar fyrst og fremst,“ segir Sverrir kíminn. Þetta hafi þurft að virka sannfærandi, eins og þau hefðu gert þetta frá fæðingu. Hvert sóttuð þið grunnhugmynd- ina að þessum gjörningum? „Í grunninn er þetta náttúrlega e.k. frumbyggjahugsun þar sem þú notar líkamann eins og hljóðfæri og sérstaklega í sambandi við rytma. Við ákváðum að nota okkar rætur sem að eru þjóðlögin. Við vorum allt- af með einhver þjóðlög í grunninn sem við unnum út frá, tókum línur úr þjóðlögunum og gerðum þetta á svolítið abstrakt hátt. Sem var nátt- úrlega eina leiðin til að vinna með þetta af einhverju viti.“ Sverrir segir það hafa verið mjög gaman að taka þátt í þessu verkefni. Spurður að því hvort hver sem er geti stundað búkslátt segir Sverrir það velta á því hvort viðkomandi geti sleppt sér og hvort hann sé með til- finningu fyrir rytma. „Þú verður bara að skutla þér fram af klett- inum,“ segir hann hvetjandi.  Sverrir Guðjónsson segir búksláttarsveitina hafa samið atriði sín í leigubíl á þeytingi milli fjölmiðla í London Bókað fyrst, samið svo Morgunblaðið/Ómar Barið á bumbu Blaðamaður Morgunblaðsins, Arnar Eggert Thoroddsen, reynir fyrir sér í búkslætti með tilkomumiklum hreyfingum og hljóðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.