Saga - 1967, Blaðsíða 78
370 BITFREGNIR
„Fiskveiði —¦ Fiskimenn". Fiskimannafélag' Færeyja gaf ritið út
á hálfrar aldar afmæli sínu, og verður það að teljast myndarlegt
framlag af þess hálfu til færeyskrar sögnritunar.
Áður en ég lýk þessu máli, vil ég geta um aðra bók eftir Erlend:
„Föroya söga — stjórnarviðurskifti frá landnámstíð til 1298". Þessi
bók kom út 1964. Hún er ekki stór, aðeins 60 blaðsíður. Meistara-
lega vel er þar á efni haldið. Slíkt er ekki öðrum hent en þaui-
reyndum og lærðum sagnfræðingum, sem jafnframt eru stilfærir vel.
Lúdvík Kristjánsson.
Sigurður Þórarinsson: Heklugosasaga.
Vísindafélag Islendinga. The Eruption of Hekla 1947
—1948. — I. Sigurður Þórarinsson: The Eruptions of
Hekla in Historical Times. A Tephrochronological
Study. — Appendix: Mineralogical and petrographical
characteristics of Icelandic tephra by Jens Tómasson.
Reykjavík 1967 — H.F. Leiftur.
183 bls. + 12 myndasíður, verð 250.00 kr.
Þetta er L, en síðast birta bindið af 5, sem Vísindafélagið hefur
gefið út og bera aðaltitilinn: The Eruption of Hekla 1947—1948.
I. bindi fjallar um sögu Heklugosa frá upphafi landsbyggðar.
II. — — — upphaf gossins 1947.
III. — — — áhrif þess almenn og efnafræðileg.
IV. — — — magn og gerð gosefna og orsakir gossins.
V. — — — athuganir á eðli gossins.
Síðustu hefti þessa ritsafns eru þó ófullgerð enn þá.
Höfundar eru þeir: Björn Sigurðsson, Gísli Þorkelsson, Guðmund-
ur Kjartansson, Jens Tómasson, Júlíus Sigurjónsson, Kristinn Stel-
ánsson, Páll A. Pálsson, Sigurður Þórarinsson, Tómas TiyggyaS°n
og Trausti Einarsson.
Hið mikla ritsafn Vísindafélagsins um Heklugosið 1947—48 vero-
ur gagnmerkt innan eldfjallafræðinnar, en þeirri fræði verður ek^
sinnt hér, heldur vikið að Heklugosasögu Sigurðar Þórarinssonar,
af því að hún er „kafli úr sögu íslenzkrar þjóðar, þáttur úr Þu°
und ára baráttu hennar við ís og eld", eins og Sigurður segir sjal ¦*
ur að bókarlokum. Heimildir okkar um sögu þjóðarinnar fyrir 16U
eru gríðarlega gloppóttar. Þannig er helzta ritaða heimildin u
fyrsta Heklugosið svohljóðandi annálsgrein við 1104: „EldsupP'
koma hin fyrsta í Heklufelli". Þetta gos eyddi Þjórsárdal og bygff
á Hrunamannaafrétt, en þeirra atburða er hvergi getið í íslenz
um heimildum, og þó gerast þeir á dögum Ara fróða og Sæmunda •