Organistablaðið - 02.12.1978, Page 50

Organistablaðið - 02.12.1978, Page 50
THORALD JERICHAU: U M ERLEND ORGEL Eftirfarandi grein birtist í dönsku tónlistarblaði árið 1888. Hef ég undirrit- aður tekið mér fyrir hendur að þýða grein þessa, ef það mætti verða til gagns og gamans fyrir einhverja. Ég fæ ekki betur séð en lýsing sú er fram kemur á orgelum eigi alveg við orgel Fríkirkjunnar í Reykjavík, enda byggt af Sausr verksmiðjunni 1926. Höfundur þessarar greinar er Thorald Jerichau danskur organisti og tón- skáld fæddur 1. nóv. 1848 og dáinn 24. des 1809. Hann var við tónlistarnám 1 Dresden og hjá Matthison-Hansen, Thorald Jerichau var organisti í Assens á Fjóni og Horsens á Jótlandi og í Baltimore, Bandaríkjunum. — Hann hélt konserta í Austur-Indíum, Danmörku, Þýska- landi og í Bandaríkjunum. — Tónverk eftir hann er m. a. ,,Et Jule-Festspil“. Ritverk eftir hann er ,,Tillaga um endurbætur á nótnaskriftinni“ (þriggja línu kerfið). Á hljómleikaferðum mínum meðal þýskra í byrjun vetrar, fékk ég til afnota þau bestu orgel, sem völ var á. I Berlín valdi ég orgelið í „Neue Kirche“ (Deutscher Dom), vegna þess að það var besta orgelið, sem ég hafði séð og það hafði nýjan „mekan- isma“, sem ég vildi mjög gjarna kynnast nánar. Kosturinn við það er svo augljós að það ætti að vera áhugamál sérhvers orgel- vinar að heyra um það. Eins og kunnugt er krefst þessi nýtiskulegi organleikur allt öðruvisi og marghreytilegri notkunar registreringar (þ e. breyt- ingar á mismunandi hljómbrigðum, sem koma fram við það að maður opnar eða lokar fyrir útdragarana eða registrin). Gamli orge'lleikurinn krefst ekki mikilla registurbreytinga, en við það verður stíllinn stirður og einhliða, en einmitt á sinn hátt stórfenglegur og tilkomumikill. Til samanburðar má segja að hinn nýtískulegi organleikur nálgist eiginleika hljómsveitar, og fullkomleiki þess er undir þvi kominn hve æfður og leikinn organistinn er í að registrera og einnig í því hve auðvelt og þægilegt er að registrera orgelið. Við þau orgel, sem við eigum að venjast eru erfiðleikar sam- fara því að registrera, þvi það verður að flytja aðra hendina af hljómborðinu á meðan, eftir þörfum. 50 ORGANISTABI.AÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.