Organistablaðið - 02.12.1978, Síða 53
ISLENSK ÞÁTTTAKA 1 XII. NORRÆNA
KIRKJUTÖNLISTARMÓTINU I HELSINKI
Dagana 17.—20. ágúst sl. var XII. Norræna kirkjutónlistar-
mótið haldið í Helsinki í Finnlandi. Af íslands hálfu tóku þátt
í mótinu að þessu sinni Guðni Guðmundsson organisti, sem lék
orgelpartitu eftir Hallgrím Helgason, og Kór Langholtskirkju,
sem flutti 6 sálmalög í útsetningu dr. Róberts Á. Oltóssonar,
(úr Tuttugu og tveimur helgisöngvum) og þrjú ný islensk verk:
„Davíð 92“ og „Hósianna" eftir Þorkel Sigurbjörnsson og „Ur
orðskviðunum“ eftir Jón Ásgeirsson, Þessi verk keypti Kór Lang-
holtskirkju af tónskáldunum sérstaklega fyrir þessa ferð.
Þar sem fjölmiðlar hafa flestir birt útdrátt úr umsögnum
finnskra gagnrýnenda um þessa tónleika, ætla ég ekki að fjöl-
yrða um það hér, en vil þó bæta við einu atriði, sem ekki hefur,
að mínu mati, komið nægilega fram í þessum frásögnum, en
það er hversu lofsamlega dóma þessi verk fengu sem tónsmíðar.
Það er, eins og flestum er kunnugt, helsta hlutverk þessara móta,
að gefa sem gleggsta mynd af nýjungum i kirkjutónlist, svo
þessar þjóðir geti lært hver af annarri, og skiptst á hugmyndum.
Það var okkur því mjög mikið ánægjuefni hversu góðar undir-
tektir þessi verk fengu.
Þetta kostaði kórinn að vísu u. þ. b. 10% af árstekjum sínum,
en við teljum þeim peningum vel varið þar sem við höfurn
auðgað íslensku kirkjuna af tónlist, og ætlum að halda áfram
á sömu braut.
Aftur á móti langar mig til að benda á það, að þar sem þessi
mót eru haldin af organistafélögum og kirkjukórasamböndum
norðurlandanna, mætti F.Í.O. fara að athuga með framlag til
næsta móts, stm haldið verður í Danmörku 1982. Hætt er við
að framlag Islands hefði orðið heldur rýrt, ef Kór Langholts-
kirkju hefði ekki keypt þessi verk.
Ég hafði því miður ekki tök á að heyra alla konserta mótsins,
en það vakti athygli mína, ef ég ber saman reynslu mína af
fyrri mótum, að sú tónlist er nú var kynnt, virtist vera nær
ORGANISTANI.AÐIÐ 53