SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Síða 29

SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Síða 29
10. janúar 2010 29 En hver var lærdómurinn? En var þá enga frétt að hafa úr viðbrögðum þeirra sem fréttamenn reyndu að kreista einhver svör út úr? Jú, svo sannarlega. En innantómar og óljósar hótanir voru bara froða og dapurlegt að slíku væri helst slegið upp til að hræða fólk. Því það mátti lesa athyglisverða hluti út úr orðum manna gegnum froðuna. Hvað gera menn venjulega ef þeir standa frammi fyrir því að sá sem þeir telja að skuldi sér virðist ekki ætla að greiða, þrátt fyrir langar og strangar samningaviðræður? Jú þeir tilkynna að fyrst skuldarinn þráist við muni þeir fara með málið þegar í stað fyrir dómstóla. Það gera allir þeir sem telja sig vera með lögmæta kröfu. Urðu þetta viðbrögð breska bankamálaráðherrans, manns sem enginn Íslendingur hafði áður heyrt nefndan? Nei, ó nei. Hann reyndi að hnykla vöðv- ana aðeins framan í Íslendinga (aðferð handrukk- ara) og sagði eitthvað á þá leið að „alþjóða- samfélaginu“ yrði ekki skemmt, rétt eins og hann hefði fengið einhvers staðar umboð til að tala fyrir það. Sama gilti um hollenska fjármálaráðherrann (sem hafði áður óviljandi viðurkennt að ríki gætu ekki borið ábyrgð á bankainnistæðum samkvæmt Evrópureglum við kerfishrun). Og hvernig stóð á þessu? Svarið liggur í augum uppi. Báðir þessir menn vita fullvel að engin lög standa til greiðslu- skyldu Íslands. Hundruð embættismanna þeirra hafa árangurslaust reynt að finna slíka lagastoð. En þeir sem eru búnir að hlusta á skelfingarhróp ríkisfjölmiðilsins sem rekinn er til öryggis hér á landi, en ekki til að stuðla að uppþotum og óeirð- um eins og hann gerði haustið 2008, hljóta að spyrja: Var þá engu hótað? En hótuðu þessir tveir þá engu? Jú, ein hótun var handföst. Þeir kröfugerðarfélagar sögðust myndu leggja stein í inngönguferil Íslendinga í Evrópu- sambandið! Vissulega jafnast slík hótun á við boð- un heimsenda fyrir RÚV og Samfylkinguna, en flestir aðrir góðir og gegnir Íslendingar láta sér fátt um finnast. Og meirihluti þeirra tekur reyndar slíkum „hótunum“ sem fagnaðartíðindum. vegna? K allað er eftir áliti hagfræðinga og sérfræðinga í fréttaskýringu Péturs Blön- dals í Sunnudagsmogganum í dag á því hvað það hefði í för með sér ef þjóðin samþykkir eða fellir samninginn um Icesave í þjóðaratkvæðagreiðslu. Eftirtektarvert er að fimm af sjö sérfræðingum vilja taka upp viðræður á ný. Daniel Gros, hagfræðingur sem veitir forstöðu Center of European Policy Studies, seg- ir einfaldlega: „Bíðið eftir úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar og útskýrið svo fyrir Bret- um og Hollendingum að á Íslandi sé raunverulegt lýðræði.“ Hann segir það muni skapa óvissu um tíma ef þjóðin felli samningana um Icesave og vísast muni lánardrottnarnir tveir beita nokkurri hörku. „Svo munu allir setjast aftur við samningaborðið og knýja fram nýtt samkomulag.“ Ekki er hægt að lesa það úr orðum hagfræðinganna að það sé heimsendir ef samning- arnir verða felldir, eins og ráðherrar ríkisstjórnarinnar gefa gjarnan í skyn. Ragnar Árna- son, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, bendir á að ekki muni reyna að marki á greiðsluþol ríkissjóðs út á við fyrr en á árunum 2011 og 2012. „Nú þegar er fyrir hendi gjaldeyrisforði í landinu sem fer langt í að duga til að mæta þeim skuldbindingum sem þá koma til greiðslu. Afgangur á vöru/viðskiptajöfnuði, sem nú þegar er verulegur, mun að líkindum bæta þessa gjaldeyrisstöðu enn.“ Og staðan verður alvarleg ef þjóðin samþykkir Icesave. „Árlegar vaxtagreiðslur af Ice- save eru um 2,5-4% af landsframleiðslu og hugsanlega hærri ef gengi krónunnar veikist mikið,“ segir Kári Sigurðsson, lektor við Háskólann í Reykjavík. „Þá er höfuðstólskrafa innistæðusjóðs í þrotabú Landsbankans skilgreind í krónum en Icesave-skuldin í erlendri mynt. Þetta getur þýtt umtalsvert tjón fyrir Ísland ef krónan veikist jafnvel þó að hátt endurgreiðsluhlutfall fáist greitt úr þrotabúi Landsbankans. Óvissan af núverandi samn- ingi fyrir Íslendinga er því mjög mikil en það er öruggt að hann mun hafa slæmar afleið- ingar fyrir efnahag landsins.“ Og Ragnar segir meira velta á þeirri efnahagsþróun sem verði á landinu á komandi misserum og árum. „Því miður sýnist mér að flest það sem stjórnvöld hafa framkvæmt í þeim efnum á árinu 2009 og til þessa dags sé fremur til þess fallið að veikja efnahagslífið en styrkja það.“ Þar vísar hann til viðamikilla gjaldeyrishafta, falsaðs gengis, stórkostlegra skattahækk- ana og mikillar óvissu og ótta sem ríkisstjórnin hafi skapað um rekstrarskilyrði fyrirtækja á komandi misserum og árum. „Allt þetta dregur mjög verulega úr þrótti atvinnulífsins og vilja manna til að fjárfesta hér á landi. Það er fyrst og fremst arðvænlegt efnahagslíf sem gerir okkur kleift að afla gjaldeyris til að greiða skuldir okkar og skapa þjóðinni lánstraust út á við.“ Og varnaðarorðin eru alvarleg: „Verði ekki fljótlega söðlað um og tekin upp skynsamleg efnahagsstefna hér á landi sem skapar grundvöll fyrir öflugu efnahagslífi og hagvexti á nýjan leik er greiðslufall ríkissjóðs í einhverri mynd nánast óhjákvæmilegt. Icesave breyt- ir engu um þetta grundvallaratriði.“ Dregið úr þrótti atvinnulífsins „Í ljósi alls þessa sem að framan greinir hef ég ákveðið á grundvelli 26. greinar stjórnarskrárinnar að vísa hinum nýju lögum til þjóðarinnar.“ Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í yfirlýs- ingu í tilefni af því að hann vísaði Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Þetta hefur áhrif á ýmsar efnahags- stærðir. Það er alveg ljóst þegar málinu er teflt í svona uppnám og óvissu eins og nú er framundan með þessari þjóð- aratkvæðagreiðslu.“ Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra um ákvörðun forsetans. „Við erum eins og ABBA við hliðina á sumum þessum böndum. Verðum fínir í kúrekastíg- vélunum, syngjandi ástarljóð.“ Aðalbjörn Tryggvason, söngvari Sólstafa, sem leika munu á þunga- rokkshátíðinni Wacken. „Engin spurning, við munum að sjálf- sögðu setja upp stuðla á þjóðar- atkvæðagreiðsluna.“ Hans Martin Nakkim, sölu- og markaðsstjóri veð- bankans Betsson.com. „Málið er að við megum aldrei vera sáttir, við höfum ekki efni á þess hátt- ar hugsunarhætti. Við þurfum helst alltaf að vera með 120% fókus, ef sú tala er til, á hlutunum til þess að þeir gangi upp hjá landsliðinu.“ Ólafur Stefánsson um vonir og vænt- ingar hans til íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu. „Munurinn á okkur er helst sá að ég hef alltaf verið reglumaður og hann er eitthvað frægari en ég.“ Magnús Theodór Magn- ússon fæddist sama dag og rokkkóngurinn Elvis Presley. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.