SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Blaðsíða 48

SunnudagsMogginn - 10.01.2010, Blaðsíða 48
48 10. janúar 2010 Í hrunadansinum síðastliðið vor sam- einaðist Alþingi á 120 ára afmæli Þórbergs Þórðarsonar 12. mars um hina fyrstu opinberu íslensku mál- stefnu að tillögu Íslenskrar málnefndar. Mennta- og menningarmálaráðherra fylgdi stefnunni úr hlaði í jólabókaflóðinu með 44. Riti ráðuneytis síns (www.is- lenskan.is) og tók undir með Alþingi að nú skyldi nota íslenskuna til alls. Enginn hef- ur orðið til andmæla og því stendur upp á ráðherra að hrinda stefnunni í fram- kvæmd, m.a. með því að láta kenna börn- um á Íslandi jafn mikið í móðurmáli sínu og tíðkast meðal nágrannaþjóða (sem þýð- ir að auka þarf vægi móðurmálskennslu í grunnskólum úr 16,1% í 28,7% eins og í Danmörku), bæta íslensku aftur við skyldunám kennaranema og láta stofnanir á vegum og í eigu ríkisins setja íslenskt notendaviðmót í allar tölvur. Allt eru þetta eðlileg verkefni sem kosta lítið og engin pólitísk andstaða er við – nema hugsanlega almenn tregðulögmál kerfisins við að inn- leiða nýja stefnu. Helstu atriði íslenskrar málstefnu njóta almenns og víðtæks stuðnings meðal okk- ar sem tölum íslensku. Því er það umhugs- unarvert hvers vegna var ráðist í þau mál- þing og skýrslugerð sem góðærisstjórnin hrinti af stað í kjölfar lagasetningar um málnefndina árið 2006. Í eðlilegu árferði ætti flest sem þarna var hnykkt á (og ítrek- að á 202 ára afmæli Jónasar Hallgrímssonar í haust) að vera hluti af hinum sameig- inlegu og oft óskráðu forsendum sem líf okkar byggist á. Þær forsendur ganga lengst í skrifuðum siðaboðum sem banna að fremja morð, stela, ljúga og girnast það sem aðrir eiga. Ólíkt lögum um brot á þeim boðum er það ekki á valdi ríkisins að refsa fólki sem brýtur gegn málstefnunni – ekki frekar en ríkið grípur inn í með refsivendi sínum í trúmálum og ástalífi eins og tíðkast víða enn í veröldinni. Að sjálfsögðu er það ekki á lýðræðislegu ríkisvaldi að skipa fólki hvaða tungumál það kýs að nota í samskiptum sínum. En það er á valdi ríkisins að veita öllum jöfn tækifæri í menntakerfinu á við það sem tíðkast í öðrum ríkjum á sama menning- arstigi til að þroska færni í móðurmáli sínu þannig að tungumálið nýtist þeim sem best í leik, starfi og öðru námi. Án málþroska á móðurmáli eru aðrar leiðir til þroska grýttar og torsóttar. Það er líka á valdi rík- isins að gera þeim sem hingað flytja kleift að læra íslensku þannig að þau geti tekið þátt í því samfélagi sem hér þrífst. Þegar útrásarvíkingaskipin voru á sem mestri siglingu með feng sinn um heims- höfin kviknaði sú hugmynd að betra væri að tala ensku en íslensku á fjölþjóðlegum vinnustöðum fjármálafyrirtækja og að menntakerfi ríkisins ætti að koma til móts við þessa nýju málþörf. Samskipti og skýrslur banka og stórfyrirtækja voru á ensku og áttu þannig að auðvelda hin margslungnu alþjóðlegu umsvif (sem svo voru kölluð áður en í ljós kom að um blöndu af viðskipta-, landnáms- og ráns- ferðum var að ræða, líkt og á víkingaöld hinni fyrri sem lauk með falli Haralds harðráða í orrustu gegn Englandskonungi við Stanforðabryggjur – eftir rismikinn feril Haralds sem hófst á auðgunarferð í austurveg). Þegar málhugmyndir banka- manna komust í hámæli á gróðaárunum varð mörgum svo heitt í hamsi að tals- menn enskunnar óttuðust um líf sitt – á meðan allt annað lék enn í lyndi og áður en búsáhaldabyltingarmóðurinn rann á landsmenn. Sú hugmynd að hægt væri að skipta um tungumál líkt og föt til að þjóna Mammoni kom við kvikuna í fólki og réðst að sjálfsmyndinni löngu áður en Mammon sjálfur datt úr tísku. Andlega kreppan hefði orðið enn dýpri ef tungu- málið hefði tapast til viðbótar við pen- ingana. Tilraunin að ræna þjóðina tungu sinni á sviði verslunar og viðskipta var eitt dæmi af mörgum um það siðrof sem varð í góð- ærinu, þegar víkingarnir héldu að allt væri leyfilegt nema ríkið bannaði þeim það sérstaklega. Og jafnvel þá reyndu þeir að kaupa sér lagabreytingar. Til allrar hamingju svaf málfarseftirlitið ekki á verðinum heldur brást strax við með hinni góðu vinnu sem skilaði sér í þeirri íslensku málstefnu sem mennta- og menningarmálaráðherra er nú vonandi í óða önn að innleiða – sem ábyrgðarmaður stefnunnar. Í samræmdu prófi í Álftamýrarskóla. Höfundur segir að samkvæmt íslenskri málstefnu þurfi að auka vægi móðurmálskennslu í grunnskólum úr 16,1% í 28,7% eins og í Danmörku. Morgunblaðið/Eyþór Siðbót tungumálsins Án málþroska á móðurmáli eru aðrar leiðir til þroska grýttar og torsóttar. Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Þ að var kalt í veðri og svalur sjór þegar fimm fræknir sund- kappar stungu sér til sunds í Reykjavíkurhöfn á nýársdag árið 1910 og syntu fyrsta Nýárssundið. Margir fylgdust með sundinu og rómuðu hetjulund kappanna. Mikil íþróttavakning varð á Íslandi á fyrsta áratug liðinnar aldar. Sundið naut vinsælda. Víða var sjósund stundað, ekki síst í Reykjavík. Sund Lárusar Rist yfir Oddeyrarál á haustmánuðum árið 1907 vakti þjóðarathygli. Árið eftir efndu verslunarmenn til kappsunds í Kópavogi. Ári síðar, þann 1. ágúst 1909, var vígður sundskáli í Skerjafirði. Að byggingu hans stóð Sundskálafélagið Grettir sem stofnað var árið áður. Það félag var hlutafélag sem Ungmennafélag Reykjavíkur átti stærstan hlut í. Við vígsluna var efnt til kappsunds. Sigtryggur Eiríksson sigraði þá bæði í 100 m og 500 m sundi. Annar í báðum sundunum varð Stefán Ólafsson frá Fúlutjörn og þriðji, einnig í báðum sundunum, varð Benedikt G. Waage sem síðar varð þjóðkunnur fyrir störf sín að íþróttamálum. Formaður Sundskálafélagsins var Sigurjón Pétursson sem síðar var kennd- ur við Álafoss. Hann var þekktur glímu- kappi en í reynd fjölhæfasti íþróttamaður landsins. Hann og nokkrir félagar hans stunduðu sund daglega í sjónum hjá Slippnum í Reykjavík og höfðu með sér félagsskap sem þeir kölluðu Óragur. Þessi sundiðkun þeirra félaga var undanfari Nýárssundsins. Undir forustu Sigurjóns boðaði Sundskálafélagið til fyrsta Nýárs- sundsins í Reykjavíkurhöfn þann 1. jan- úar 1910. Þeir félagarnir í forustu félags- ins höfðu strengt þess heit að þreyta kappsund á nýársdag hvernig sem blési og frysi. Það eitt væri til skilið að sjór væri auður við land. Guðjón Sigurðsson úrsmiður gaf fagran silfurbikar til að keppa um. Bikar þessi var ýmist kallaður Grettisbikarinn, Nýársbikar Grettis, Nýársbikarinn eða einfaldlega Grettir. Sá átti að hljóta bik- arinn til eignar sem ynni hann þrjú ár í röð. Keppendurnir fimm voru Stefán Ólafsson frá Fúlutjörn, Sigurjón Sigurðs- son, Benedikt G. Waage (síðar forseti ÍSÍ), Sigurjón Pétursson og Guðmundur Kr. Guðmundsson sem árið eftir varð einn af atkvæðamestu keppendunum á íþrótta- móti UMFÍ. Allt voru þetta þekktir sund- menn, harðgerðir menn og köldu vanir. Fjöldi manns var mættur til að fylgj- ast með sundinu þrátt fyrir að kalt væri í veðri. Hitinn var 0 stig bæði ofansjávar og neðan. Útsynningur var og gekk á með éljum. Það var því fremur ófýsilegt að leggjast til sunds í sjónum. Sundið var aðeins 50 metrar milli bryggna í höfninni. Blaðið Lögrétta segir svo frá þann 5. janúar að sundkapparnir hafi varpað sér til sunds „útaf bæj- arbryggjunni og svámu að trébryggju sem skotið var út í sjóinn; bilið milli bryggjanna var 50 stikur“ (rúmlega 25 faðmar). Stefán Ólafsson var langfljótastur. Hann synti á 48 sek. sem þótti gott í úfn- um sjó og köldum. Enginn tími var gefinn upp á öðrum keppendum en úrslitin í sundinu urðu þessi: 1. Stefán Ólafsson 48,0 sek. 2. Benedikt G. Waage 3. Guðmundur Kr. Guðmundsson 4. Sigurjón Sigurðsson 5. Sigurjón Pétursson Þegar sundmennirnir höfðu klæðst Nýárssundið fyrir 100 árum Mikil íþróttavakning var á Íslandi á fyrsta ára- tug liðinnar aldar. Sund naut vinsælda. Sjósund var víða stundað og keppt í því. Ingimar Jónsson ingimarj@ismennt.is Lesbók Myndlistarsýningin Carnegie Art Award 2010 var opnuð í Listasafni Íslands á föstu- dagskvöldið. Þar eru sýnd verk 23 norrænna listamanna, sem allir vinna út frá mál- verki eða hugmyndum um málverk á einn eða annan hátt. Listamennirnir eru valdir úr hópi 148 sem tilnefndir voru, af gagnrýnendum og sérfræðingum á sviði myndlistar í heimalandi sínu. Að þessu sinni hlaut Kristján Guðmundsson fyrstu verðlaun sýning- arinnar, fyrstur Íslendinga, en Egill Sæbjörnsson á einnig verk á sýningunni. Kastali-í-anda, 2009, eftir sænsku listakonuna Kristina Janson. Hún hlaut önnur verðlaun fyrir. Unnið út frá málverkinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.