SunnudagsMogginn - 14.03.2010, Page 4

SunnudagsMogginn - 14.03.2010, Page 4
4 14. mars 2010 Skömmu áður en Khyra litla lést gerðu yfirvöld í skóla nokkrum í Birmingham at- hugasemd við hegðun og ástand sjö ára gamals drengs, sem einnig var á framfæri An- gelu Gordon og Junaids Abu- hamza. Ekki fæst upp gefið hvort hann er bróðir Khyru. Kennarar veittu því athygli að drengurinn virtist alltaf vera svangur, talaði helst ekki um annað en mat. Hann var líka óvenju rýr í holdum og þegar hann tók upp á því að leita að mat í skápum og stela af diskum bekkjarfélaga sinna höfðu yfirvöld í skólanum sam- band við Gordon. Lagt var til að drengurinn hitti næring- arfræðing en Gordon mátti ekki heyra á það minnst. Sagði börn sín hafa nóg að bíta og brenna. Rýr í holdum og alltaf soltinn Kista Khyru heitinnar Ishaq borin inn í mosku í Birmingham fyrir útförina. Þ að var nægur matur til í húsinu. Kjöt, brauð, ávextir, sætindi. En það var aðeins ætlað fullorðna fólkinu, börn- in sex höfðu ekki aðgang að eldhús- inu sem var kirfilega læst frá morgni til kvölds. Væru þau staðin að því að stela sér bita var þeim refsað harkalega, látin hírast úti í kuld- anum, sett í ískalt bað, gengið í skrokk á þeim eða þau neydd til að troða í sig þangað til þau köstuðu upp. Börnin voru hvorki á mun- aðarleysingjahæli né upptökuheimili, heldur á sínu eigin heimili hjá móður sinni og stjúp- föður í Birmingham á Englandi. Svona gekk heimilislífið fyrir sig þangað til eitt barnanna, hin sjö ára gamla Khyra Ishaq, lést í maí fyrir tveimur árum. Banamein henn- ar var sýking af völdum vannæringar. Móðir hennar, hin 35 ára gamla Angela Gordon, og stjúpfaðir, hinn 31 árs gamli Junaid Abuhamza, voru nýverið fundin sek um manndráp og á föstudag dæmdi hæstiréttur Birmingham- borgar þau til fangavistar. Ábyrgð móðurinnar er talin meiri og mun hún sitja bak við lás og slá í fimmtán ár að lágmarki áður en skilorð kem- ur til álita. Abuhamza var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir þátt sinn í þessu ógeðfellda máli. Parið var aftur á móti sýknað af ákæru um morð af yfirlögðu ráði. Dómurinn var kveðinn upp með hliðsjón af bágu andlegu ástandi bæði Gordons og Abuhamza. Parið gekkst einnig við því að hafa svelt og misnotað hin börnin fimm en tvö þeirra voru nær dauða en lífi þegar lík Khyru litlu fannst. Hún var aðeins sautján kíló að þyngd og hafði tapað 40% líkamsfitunnar. Á mögrum líkama hennar voru hvorki fleiri né færri en sextíu áverkar eftir barsmíðar, ísböð og vegna þess að hún hafði verið pínd til að troða í sig mat. Hvorki Gordon né Abuhamza sýndu svipbrigði meðan dómurinn var kveðinn upp. „Það er óviðeigandi að halda því fram að börnin hafi liðið fyrir vanrækslu,“ sagði dóm- arinn, Roderick Evans, á föstudag. „Vanræksla er nefnilega ekki nægilega sterkt orð til að lýsa meðferðinni sem börnin sættu. Þau voru miklu frekar fórnarlömb skipulagðrar refsingar á heimilinu sem var hrollvekjandi í hörku sinni og grimmd.“ Faðir hans barði systur hans til bana Í máli dómarans kom fram að Abuhamza bæri ábyrgð á þessu fyrirkomulagi, sem hann hefði sjálfur búið við í æsku, en Gordon hefði gengið því möglunarlaust á hönd. Eigi að síður taldi hann ábyrgð Gordon meiri, þar sem hún væri móðir barnsins sem lést. Vitni báru að Abuhamza þjáðist af geðklofa og barn að aldri hefði hann horft á föður sinn berja systur sína til bana. Gordon glímdi við mikið þunglyndi þegar dóttir hennar dó. Í dómsorðinu er getið um ríka trú Abuhamza á „illa anda“ og að Gordon sé hreinskilin manneskja en ákaflega háð mönnunum í lífi sínu. „Hún er með mat á heilanum og virtist ekki geta skilið að enda þótt það gæti hafa verið viðeigandi að hún grennti sig átti það alls ekki við um börnin sem voru að vaxa úr grasi,“ seg- ir í dómsorðinu. Sex mánuðum áður en Khyra litla andaðist hafði móðir hennar dregið hana út úr skóla með þeim orðum að hún hygðist kenna henni sjálf. Nágranni, sem varð vitni að kennslu- stund, fullyrðir að börnunum hafi verið refsað harkalega þegar þau rak í vörðurnar þegar for- eldrarnir hlýddu þeim yfir. Félagsmálayfirvöld stungu nokkrum sinnum við stafni á heimili fjölskyldunnar en hittu aldrei börnin, þau voru alltaf að hvíla sig. Nágranni fjölskyldunnar heldur því fram, að sögn dagblaðsins The Guardian, að Khyra hafi sést tína upp brauðmola af jörðinni sem ætlaðir voru fuglunum. Annar nágranni minnist þess að hafa séð Khyru sofandi í fangi móður sinnar tveimur dögum fyrir andlátið. Gordon úðaði vatni framan í dóttur sína til að vekja hana en hún sýndi engin viðbrögð. Khyra hefði verið átak- anlega beinaber. Enn einn nágranni kvaðst hafa séð Khyru á stjákli í garðinum skömmu fyrir dauða sinn, veiklulega á nærfötunum. Lögreglumaðurinn Sean Russell, sem rann- sakaði málið, kom fyrir dóminn og lýsti því að átakanlegt andlát Khyru litlu og aðstæður allar hefðu grætt jafnvel hörðustu lögreglumenn. „Það var fólkið sem átti að vernda Khyru sem varð henni að bana,“ sagði hann. Sveltu dótt- ur sína í hel Par á Englandi sak- fellt fyrir manndráp Khyra litla Ishaq var bara sjö ára þegar hún lést af völdum vannæringar fyrir tæpum tveimur árum. Junaid Abuhamza og Angela Gordon eins og teiknari hæstaréttar í Birmingham lýsir þeim. Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Meinafræðingurinn sem fékk það erfiða hlutverk að kryfja lík Khyru Ishaq upplýsti dómara á sínum tíma um það að hann hefði aldrei upplifað annað eins. Dr. Roger Mal- colmson fullyrti að hann hefði ekki í annan tíma orðið vitni að slíku þyngdartapi og hjá aumingja stúlkunni. „Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt. Í þessu til- felli er ég sannfærður um að sýkingin sem dró Khyru til dauða hafi verið af völdum van- næringarinnar. Bana- meinið getur ekki verið af neinum öðrum toga,“ sagði hann. Aldrei séð annað eins www.noatun.is Nóttin er nýjung í Nóatúni Hringbraut Austurver Grafarholt Nú er opið 24 tíma, 7 daga vikunnar í þremur verslunum Nóatúns

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.