SunnudagsMogginn - 14.03.2010, Page 10
10 14. mars 2010
É
g á bágt með að koma því heim og saman hvernig Stein-
grímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG gat
undirritað Icesave-samninga við Breta og Hollendinga í
júníbyrjun í fyrra og boðað að í framhaldi af gerð samn-
ingsins yrði lagt fram lagafrumvarp um ríkisábyrgð á lánum, sem
Bretar og Hollendingar höfðu einhliða ákveðið að veita Íslendingum,
til þess að greiða 20.887 evrur til hvers Icesave-reikningseiganda í
Bretlandi og Hollandi.
Nú hefur verið upplýst, að þegar fjármálaráðherra tók ákvörðun
um að samþykkja drápsklyfjarnar sem Svavar Gestsson og Indriði H.
Þorláksson höfðu samþykkt í júníbyrjun 2009, þá vissi hann sem
var, að hann hafði ekki þingmeirihluta á bak við sig, til þess að ganga
frá samningum.
Hópur þingmanna úr þing-
flokki VG – hans eigin flokki –
hafði þegar tjáð honum að þeir
myndu ekki samþykkja þann
samning sem hann vildi festa í
lög.
Hann bjó yfir sömu vitneskju
úr herbúðum stjórnarandstöð-
unnar, vitneskju um að þing-
menn Framsóknarflokksins,
Hreyfingarinnar og Sjálfstæð-
isflokksins myndu ekki sam-
þykkja drápsklyfjarnar. Þetta
aftraði ráðherranum í engu, hann
óð fram, umboðslaus með öllu og
gekk frá samningi, sem þingið
tókst svo á um allt sumarið í fyrra
og reyndi að laga og bæta þann
skaða sem þegar var orðinn.
Hvað eiga svona vinnubrögð valdníðslu og yfirgangs eiginlega að
þýða? Hélt ráðherrann virkilega að hann hefði slíkan aga á þingliði
sínu, að það yrði þagað yfir vinnubrögðum hans fram í rauðan dauð-
ann?
Raunar hlýtur það að sæta furðu að það skuli ekki hafa verið upp-
lýst um þessa misbeitingu framkvæmdavaldsins, þar sem gróflega er
gengið gegn löggjafanum og valdi hans, fyrr en heilum með-
göngutíma eftir að valdníðslan átti sér stað. En á hinn bóginn ber að
fagna því, að ákveðnir þingmenn VG búi yfir slíku sjálfstæði og
sannfæringarkrafti, að þeir ákveði að upplýsa þjóðina um þau gjör-
ræðislegu vinnubrögð sem formaður þeirra hefur lagt stund á.
Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna fyrir viku verður ekki beinlínis sagt
að stjórnvöld hafi fært sér í nyt hinn eindregna boðskap þjóðarinnar
í þá veru að við höfnum þeim samningum sem Svavar Gestsson og
Steingrímur gerðu fyrir hönd þjóðarinnar. Oddvitar ríkisstjórn-
arinnar láta eins og þjóðaratkvæðagreiðslan hafi ekki farið fram og
að niðurstaða hennar skipti engu máli.
Ég hef áður rifjað upp á þessum vettvangi svör Steingríms J. Sig-
fússonar í Zetunni, umræðuþætti á mbl.is, þann 23. mars í fyrra,
þegar ég lýsti efasemdum við hann um að Svavar Gestsson væri
heppilegasti maðurinn til að leiða samningaviðræður við Breta og
Hollendinga vegna Icesave-deilunnar. Ég ætla að leyfa mér að gera
það aftur nú: „Ég treysti Svavari Gestssyni. Ég veit að hann er að gera
góða hluti og ég lofa þér því að það er í sjónmáli að hann landi – og
hans fólk – glæsilegri niðurstöðu fyrir okkur.“
Sjaldan er góð vísa of oft kveðin og við eigum ekki og megum ekki
gleyma þessari vísu fjármálaráðherrans, því „glæsilega niðurstaðan
fyrir okkur“ fól í sér viðurkenningu á 630 milljarða króna skuld við
Breta og Hollendinga með 5,5% vöxtum, sem hefði jafngilt því að um
40 milljarðar króna í vöxtum hefðu bæst við höfuðstólinn ár hvert og
ef ekkert hefði verið greitt fyrstu sjö ár afarkostatímabilsins, hefði
höfuðstóllinn verið kominn í 989 milljarða króna árið 2016. Hvernig
í ósköpunum var hægt að lýsa slíku þjóðarráni sem „glæsilegri nið-
urstöðu“?
Þann 8. júní í fyrra, þremur dögum eftir undirritun sam-
komulagsins við Breta og Hollendinga, sagði formaður samninga-
nefndarinnar, Svavar Gestsson, hér í Morgunblaðinu m.a.: „Ég held
við ráðum við þetta samkomulag. Ég held að það sé innan þolmarka
íslenska hagkerfisins.“ Dytti einhverjum Íslendingi í hug að biðja
Svavar um að passa upp á sparibaukinn sinn, barna sinna eða barna-
barna?!
Ráðherrann
var umboðs-
laus með öllu
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
’
Hvernig í
ósköpunum
var hægt að
lýsa slíku þjóðarráni
sem „glæsilegri
niðurstöðu“?
Steingrímur J.
Sigfússon
Svavar
Gestsson
7.20 Fer fram úr og hjálpa
William, sem er fjögurra ára, að
klæða sig á meðan eiginkonan
sléttar á sér hárið. Bjarni, 10 ára,
sér alveg um sig sjálfur.
7.57 Katrín skutlar okkur
William að Iðavelli, leikskól-
anum hans við Gránufélagsgötu.
8.10 Geng inn í Átak, stein-
snar frá leikskólanum. Hitti þar
Bjössa kollega minn á rakara-
stofunni. Ræktum líkama og sál
í góða stund.
9.00 Sturta. Morgunmatur í
Átaki, andlegur og líkamlegur;
skyrbúst og dagblöðin.
9.30 Komnir í Arte, rakara-
stofuna okkar. Hitum kaffi og
nokkrir félagar koma í spjall um
enska boltann og pólitíkina.
10.00 Tekið úr lás og skærin
fara á loft. Spjall við kúnnana.
12.27 Við Bjössi skreppum í
mat. Reynum alltaf að komast
burt í smá stund á bilinu tólf til
tvö. Það tekst þó ekki alltaf.
Fórum nú í Fjölsmiðjuna á Ós-
eyri, þar sem hægt er að kaupa
góðan heimilismat.
13.13 Skærin aftur á loft og
haldið áfram að spjalla. Umræð-
an um deiliskipulagið í mið-
bænum er rosalega mikil núna.
Stór hluti dagsins fer í að ræða
það við þá sem koma í stólinn;
að minnsta kosti þá fullorðnu,
yngri kynslóðin ræðir meira um
enska fótboltann.
15.15 Maður með myndavél
sest í stólinn. Vill að mikið verði
klippt. Meira spjall, um hvað
sem er; orðið er frjálst hjá okkur
og orðalagið oft verra en annars
staðar því hér eru engar konur.
18.00 Hættum að hleypa
nýjum viðskiptavinum inn um
þetta leyti en það teygist reynd-
ar oft aðeins á vinnudeginum,
t.d. ef einhver mjög síðhærður
kemur nokkrum sekúndum áð-
ur en klukkan slær sex.
19.04 Hoppa upp í ókeypis
strætó 18 metrum norðan við
dyrnar að rakarastofunni.
19.07 Geng út úr strætó
nokkra metra frá húsinu mínu.
Þrjár mínútur heim; það hlýtur
að vera heimsmet!
19.45 Síðasta bita kvöld-
verðarins rennt niður. Gengið
frá eftir matinn.
20.15 Les og syng aðeins
fyrir William. Sofna sjálfur! Oft
erfitt að halda sér vakandi ef
Everton er ekki í sjónvarpinu.
21.00 Sest við stórt púsl sem
tengdamamma lánaði okkur.
Flott skúta er að birtast.
22.30 Stend upp frá púslinu.
Gleymdi mér alveg, þetta er svo
skemmtilegt.
23.58 Þetta hefðbundna um
miðnætti: Zzzzzz skapti@mbl.is
Dagur í lífi Gísla Rúnars Gíslasonar rakara á Akureyri
Spegilmynd Gísla Rúnars Gíslasonar á Arte á Akureyri ar sem hann hefur hendur í hári blaðamanns í vikunni.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þrjár mínútur heim
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30 s: 522 4500 www.ILVA.is
TAX-FREE
HELGI
LAUGARDAG 13/03 og SUNNUDAG 14/03
OG VIÐ MEINUM ÖLLUM VÖRUM!
AF ÖLLUM VÖRUM
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
2
0
0
9
V
ir
ð
is
a
u
k
a
s
k
a
tt
u
ri
n
n
e
r
re
ik
n
a
ð
u
r
a
f
v
ið
k
a
s
s
a
n
n
.
G
ild
ir
fy
ri
r
a
lla
r
vö
ru
r
ív
e
rs
lu
n
,
n
e
m
a
á
IL
V
A
k
a
ffi
.
A
ð
s
já
lf
s
ö
g
ð
u
fæ
r
rí
k
is
s
jó
ð
u
r
s
in
n
v
ir
ð
is
a
u
k
a
s
k
a
tt
a
f
þ
e
s
s
a
ri
s
ö
lu
.
V
e
rð
læ
k
k
u
n
in
e
r
a
lf
a
ri
ð
á
ko
s
tn
a
ð
IL
V
A
.