SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Blaðsíða 16
16 25. apríl 2010
N
ú er hafið tímabil sýninga á veg-
um dansskólanna, en þær eru
jafnan haldnar eftir hverja önn.
„Þetta er gluggi, þar sem nem-
endur fá tækifæri til að koma fram á sviði,
sem er gríðarleg reynsla og gaman fyrir þá,“
segir Nanna Ósk Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri DanceCenter Reykjavík.
Vorsýning DanceCenter Reykjavík var
haldin 18. apríl í Salnum í Kópavogi. „Yf-
irskriftin var Frelsi og með því vísuðum við í
einstaklings- og tjáningarfrelsið,“ segir
Nanna. „Þemað í atriðunum var í þá átt.
Við sérhæfum okkur í jazzfönki, hip-hopi,
street, breaki og modern. Við vorum einnig
með sambland af nútímadans og jazzfunki
eða módernfönkatriði, ballettatriðum og
magadans, til að sýna breiddina. Þá erum
við komin með sterka breakdans-kennara,
sem sýndu listir sínar.“
Nanna segir að lagt hafi verið upp með að
skapa skemmtilega fjölskylduskemmtun.
„Við vorum svo heppin að einn af kennurum
skólans, Júlí Heiðar, vann nýverið söng-
keppni framhaldsskólanna ásamt Krist-
mundi Axel. Þeir tóku lagið Komdu til baka,
sem hefur hreyft við fólki.“
Þátttakendur voru frá sex ára aldri og allt
upp 35 ára og yfir. „Það var gaman að sjá
hvað krakkarnir lögðu mikið á sig,“ segir
Nanna. „Þó að þetta sé áhugamannasýning,
þá er mikið lagt upp úr því að hún sé fag-
mannleg í alla staði.“
Sýningarhópur skólans kom einnig fram,
en hann nefnist Rebel og stendur saman af
strákum og stelpum, sem dansa blöndu af
jazzfönki, street, hip-hopi og breakdansi. Til
að undirstrika fjölbreytnina er einnig komið
inn á ballett og nútímadans.
„Þá vorum við líka með fimleika á sýning-
unni, því ég vil tengja dansinn við íþrótta-
hreyfinguna og var m.a. sjálf í Gerplu á yngri
árum,“ segir Nanna. „Í fimleikunum er t.d.
lagt mikið upp úr aga. Oft er talað um að
dansinn sé listgrein, og víst fellur hann und-
ir það en hann er líka íþrótt þar sem keppt
er í dansi og þekki ég það grasrótarstarf vel
þar sem ég keppti sjálf sem barn. Þetta er
mín sýn á dansinn og til að leggja áherslu á
það í dansskólanum urðum við fyrst til að fá
virta danshöfunda og dómara úr dansþátt-
unum „So You Think You Can Dance?“ Í
íþróttunum er lagt mikið upp úr heil-
brigðum gildum og ekki síður að þar séu á
ferðinni heilsteyptir einstaklingar, það er
lykilatriði.“
Að sögn Nönnu verður dansskólinn á
fleygiferð í sumar og hefst dansgleðin fyrir
alla aldurshópa 1. júní í Reykjavík, Kópavogi
og Garðabæ, sjá dancecenter.is.Stelpur sem dansa jazzfönk og atriðið bar yfirskriftina Transformia.
Glatt á hjalla hjá Gerplustelpunum.
Vill tengja
dansinn
íþróttum
Rebel-sýningarhópurinn, Linda Ósk, Tanja og Júlí Heiðar í tilþrifamiklu atriði sem nefnist Creep.
Bak við tjöldin
Ljósmyndir: Eggert Jóhannesson eggert@mbl.is
Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is