SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Blaðsíða 20

SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Blaðsíða 20
20 25. apríl 2010 birtingarmynd á því ástandi sem nú er. Varaformaðurinn farinn, þingflokks- formaðurinn farinn og persónur og leik- endur í skýrslu rannsóknarnefndar Al- þingis hvergi sjáanlegir. Bjarni er bara með þetta einn í fanginu og hann stóð al- gjörlega undir þessari miklu pressu, sem sýnir, að mínu viti, mikinn styrk hans.“ Ýmsir höfðu á orði, að það væri ein- kennilegt að Kristján Þór Júlíusson, sem bauð sig fram til formanns flokksins á landsfundi í mars í fyrra, hefði ekki lýst yfir stuðningi við Bjarna nú. Kristján fékk um 40% atkvæða á fundinum í fyrra, en Bjarni 58%. Margir rifjuðu upp orð Krist- jáns frá 29. mars á landsfundinum í fyrra, þegar niðurstaða í formannskjörinu lá fyrir, en þá sagði hann m.a.: „Ég munstra mig í áhöfn Bjarna Benediktssonar,“ og „lagði áherslu á að flokksmenn stæðu saman um þann ágæta og góða dreng sem Bjarni Benediktsson væri“, eins og stóð í Morgunblaðinu hinn 30. mars í fyrra. Með munstruninni var Kristján Þór að vísa til þess að hann gat þess í ræðum sín- um, þegar hann bauð sig fram til varafor- manns og svo til formanns, á landsfund- inum í fyrra, að hann hefði eitt sinn verið skipstjóri á litlum bát. Ólíklegt er talið að Bjarni lýsi yfir stuðningi við einhvern einn tiltekinn frambjóðanda í varaformannssætið, enda liggur ekki fyrir hver eða hverjir muni sækjast eftir embættinu. Samstarf hans og Kristjáns Þórs á Alþingi og í þing- flokknum er sagt hafa verið mjög gott, frá því að Kristján Þór „munstraði sig á bát Bjarna“. „Þeir hafa verið mjög samhentir og það hefur enginn skuggi fallið á þeirra samstarf,“ segir þingmaður og bætir við að vel megi vera að Bjarni teldi að flokk- urinn stæði sterkar að vígi með varafor- mann af landsbyggðinni. Ekki eru þó allir sammála um að rétt væri að kjósa Kristján Þór sem varafor- mann, því fer fjarri. Ákveðinnar tor- tryggni virðist gæta í hans garð og þó- nokkrir viðmælendur voru þeirrar skoðunar að Kristján Þór væri fyrst og fremst að hugsa um eigin stöðu og hvern- ig hann gæti tryggt hana sem best. Þau sem töluðu með slíkum hætti héldu því fram að útilokað væri að Kristján Þór færi fram gegn Bjarna. Hann vissi vel að hann hefði enga stöðu í það, en hann væri að öllum líkindum að draga það að lýsa því yfir að hann væri enn í áhöfn Bjarna, til þess að skapa sér betri stöðu sem varaformannskandídat. Kristján Þór væri mikið fyrir einleiki, héldi spilunum þétt að sér og gæfi sig ekki upp. „Hann er bara tækifærissinni, svo einfalt er það,“ sagði sjálfstæðismaður. Hef ekki græna glóru Sjálfur segir Kristján Þór að þegar hann var spurður fyrir viku, hvort hann hygð- ist bjóða sig fram gegn Bjarna, þá hafi engin ákvörðun legið fyrir hvenær og með hvaða hætti nýr varaformaður flokksins yrði kjörinn. „Umræðan hófst bara strax, án þess að ákveðið hefði verið hvernig flokkurinn ætlaði að fara í gegn- um þetta. Ég hef alltaf sagt það, að þegar þú ert í þessari stöðu í pólitík, þá geturðu aldrei svarað svona spurningum með jái eða nei, ekki nema þú hafir engan áhuga yfir höfuð á því að takast á við einhver krefjandi verkefni,“ sagði Kristján Þór. Aðspurður á sumardaginn fyrsta, hvort hann hygðist fara fram gegn Bjarna á landsfundinum í júní, sagði Kristján Þór: „Ég ekki hugmynd um það, ekki græna glóru. Það er hárrétt, sem þú segir, ég munstraði mig í áhöfnina hjá Bjarna á síðasta landsfundi og ég er þar. Ég vil taka það skýrt fram að yfir samstarfi okkar Bjarna frá því fyrir landsfund í fyrra og allar götur síðan hef ég ekki nokkurn skapaðan hlut að kvarta. Heldur þvert á móti. Við höfum bara getað treyst hvor öðrum.“ Kristján Þór var spurður hvort hann myndi sækjast eftir varaformennsku í flokknum og sagði að hann svaraði þeirri spurningu á sama hátt og þeirri fyrri. „Ég er búinn í tvígang að bjóða mig fram í forystustörf fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en það þýðir ekki það að ég sé tilbúinn með samskonar yfirlýsingar einn, tveir og þrír, ef eitthvað er að breytast í forystu- sveitinni. Ég þarf bara að hugsa mína stöðu, hugsa um stöðu flokksins og hvað hann getur lagt af mörkum til að bæta þetta þjóðfélag,“ sagði Kristján Þór. Krafan um konur til ábyrgðar Margir benda á að ekki megi gleyma um- ræðunni um kynjahlutföllin og uppi eru raddir um að kjósa verði konu í varafor- mannsembættið. En vilji Hanna Birna ekki taka að sér varaformennskuna, þá telja flestir að úr vöndu sé að ráða. Ein- hverjir hafa nefnt Ólöfu Nordal við mig, en þeir eru ekki margir. Mun fleiri nefna Kristján Þór og Hönnu Birnu. Ákveðið var á þingflokksfundi Sjálf- stæðisflokksins á miðvikudag að Ragn- heiður Elín Árnadóttir tæki við for- mennsku í þingflokknum, en hún var varaformaður hans. Þá var ákveðið að Ólöf Nordal kæmi ný inn í stjórn þing- flokksins og verður hún ritari hans. Við þessa skipan munu a.m.k. margir telja að tekið hafi verið tillit til krafna kvenna í flokknum um aukna ábyrgð. Bjarni efndi til opins fundar í Valhöll í hádeginu á miðvikudag undir yfirskrift- inni Sameinum krafta – byggjum upp og var fullt út úr dyrum. Þar flutti hann ávarp í upphafi fundarins og svaraði síðan spurningum fundarmanna í klukkutíma eða svo. Auðheyrt var á fundarmönnum eftir fundinn að þeim þótti formaðurinn hafa staðið sig vel. Var þetta fyrsti fundur Bjarna í fundaröð um allt land, sem hann hyggst halda með sjálfstæðisfólki á næstu dögum. Einn sagði við mig eftir fundinn á mið- vikudag að það væri rétt ákvörðun að halda landsfund í sumar og kjósa þar varaformann. Ekki hefði verið skyn- samlegt að fara í varaformannskjör fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Sveit- arstjórnarmenn vildu skiljanlega hafa at- hyglina hjá sér í aðdraganda kosning- anna, þeir vildu hafa frið og það væri ekki við því að búast að átök um varafor- mannsembættið yki fylgi flokksins. Þetta sjónarmið hefði komið skýrt fram á mið- stjórnarfundi. Illugi Gunnarsson, Bjarni Benediktsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Þingflokksformaðurinn farinn, varaformaðurinn farinn, formaðurinn einn eftir. Morgunblaðið/Golli Ekki er talið að ljóst verði hver eða hverjir sækist eftir varaformannsembættinu í Sjálfstæð- isflokknum fyrr en eftir að niðurstaða liggur fyrir í sveitarstjórnarkosningunum sem verða hinn 29. maí nk. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hefur verið orðuð við embættið, en hún hefur ekkert gefið upp um eigin vilja. Kristján Þór Júlíusson, sem bæði hefur sóst eftir varaformanns- og formannsembættinu, segist nú ekki hafa „græna glóru“ um hvað hann muni gera. Ólöf Nordal og Ragnheiður Elín Árnadóttir eru nú komnar í forystu þingflokksins. Hanna Birna Kristjánsdóttir Kristján Þór Júlíusson Ólöf Nordal Ragnheiður Elín Árnadóttir Óvissa fram í júní
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.