SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Blaðsíða 48

SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Blaðsíða 48
48 25. apríl 2010 É g er alltaf logandi hræddur um að ég fari að nöldra þegar ég tala um íslenskt mál. Samt hef ég lýst því margoft að ég kjósi fremur skemmtilega umræðu en nöldur um móðurmálið. Eitt sem ég tek eftir þegar ég hlusta á útvarp er að viðmæl- endur útvarpsmanna sletta stundum ótæpilega. Þeir tala um að þessi eða þessi sé ‘sensitífur‘; og þeir ræða um ‘event‘, ‘budget‘, ‘infrastrúktúr‘ og ‘pólitísk statement‘. Mér finnst þetta óþarfi. Orðið innviðir á t.d. betur við hjá okkur en infrastrúktúr. Halldór Blöndal, fyrrverandi ráðherra og alþingisforseti, er smekkmaður á ís- lenskt mál. Honum finnst Íslendingar stundum tala móðurmál sitt eins og út- lendingar og bendir m.a. í því sambandi á „skjöldótta hestinn“. Þegar Íslendingar tala um skjöldóttan hest hefur samband þeirra við íslenska málhefð rofnað. Sennilega þyrftum við að lesa fleiri bækur til að styrkja málkenndina. Ég sá í þýðingu, sem reyndar er afar vönduð að flestu leyti, talað um „hóf“ á kú. Seinna í sömu þýðingu voru reyndar komnar á hana klaufir. Þarna „sparkaði“ líka hesturinn í manninn. Ég tók örlítinn kipp og hugsaði: Slægur hestur slær (með afturfótunum) en sparkar ekki. Og þó! Kannski að það sé í lagi að hann sparki. Til öryggis hringdi ég í skagfirskan hesta- mann. Svar hans var þetta: „Hestar geta sparkað, lamið og slegið.“ Dæmum ekki of fljótt og harkalega! Í annarri þýðingu var „lamb rúið“. Átt var við að skinn hefði verið tekið af (dauðu) lambi (lambið var flegið/fláð), og skinnið sett yfir annað lamb (sem hafði misst móður sína) til að venja það undir móður dauða lambsins. Þarna þekkti þýðandinn semsagt ekki muninn á sögn- unum að flá og rýja. Í sömu þýðingu var talað um „reyfið“ af nýfædda lambinu þar sem átt var við „skinnið“. Reyfi er sam- felld ull af kind sem búið er að rýja. Svo er það þessi tilhneiging til fábreytni í orðalagi. Nú „koma menn inn á“ allt mögulegt (en minnast t.d. ekki á það eða víkja að því). Og margt fólk (ekki „mikið af fólki!“) er „meðvitað um“ svo margt og margt (þar sem vel mætti t.d. gera sér grein fyrir sömu atriðum). Börn eru jafn- vel meðvituð um kyn sitt. Já, og nú er „unnið með“ flesta hluti. Kennarar vinna með börn (í þolfalli), aðrir vinna með sögur, og enn aðrir vinna með heilsuna. Svo er allt „í gangi“, ekki bara bíllinn, heldur líka fundurinn og viðræðurnar. Orðasambandið „að vera að“ eða „vera ekki að“ ræður nú ríkjum. „Við erum ekki að sjá Snæfellsjökul,“ sagði leikarinn í símaauglýsingunni um daginn. Hann sagði semsagt ekki: „Við sjáum ekki Snæ- fellsjökul.“ Sundfélagi minn sagði mér í vetur að hann hefði hringt í tiltekið fyr- irtæki og spurt eftir forstjóranum. „Hann er ekki að svara mér,“ sagði símastúlkan þegar hún hafði reynt að ná sambandi við yfirmann sinn. Félagi minn var ekki ánægður með þetta orðalag. En nú er hann látinn, þessi mæti maður, og þá hef- ur fækkað um einn þeim sem unna móð- urmálinu. „Hvenær var ekki við snúið?“ stóð í fyrirsögn í víðlesnu dagblaði. Þarna var rætt um efnahagsmál og sagt eitthvað á þá leið að hrunið mikla hefði verið orðið óumflýjanlegt eftir árið 2006. Fyrirsögnin truflaði mig. Ég hefði viljað hafa þarna sögnina að verða en ekki sögnina að vera: Hvenær varð ekki við snúið? Hér er nefnilega merkingarmunur. Tökum hlið- stætt dæmi: Manninum var ekki bjargað; manninum varð ekki bjargað. Síðari setn- ingin merkir að ekki hafi tekist að bjarga manninum. Fyrri setningin segir okkur að enginn hafi hirt um að bjarga mann- inum. Í Hákonar sögu gamla er á einum stað talað um miður vandaða menn og sagt að „mjög voru þeir óspakir í ránum laun- stuldum“. Mér flaug sem snöggvast í hug að ég væri farinn að lesa rannsókn- arskýrsluna frægu. „Við erum ekki að sjá Snæfellsjökul“ ’ Þegar Íslendingar tala um skjöldóttan hest hefur samband þeirra við íslenska málhefð rofnað. „Við erum ekki að sjá Snæfellsjökul,“ sagði leikarinn í símaauglýsingunni um daginn. Hann sagði semsagt ekki: „Við sjáum ekki Snæfellsjökul.“ Morgunblaðið/Árni Torfason Tungutak Baldur Hafstað bhafstad@hi.is Lesbók B æði íslenskir og erlendir ljós- myndarar sýna verk sín á há- tíðinni jafnt inni sem úti. Hér eru taldir upp þeir ljósmynda- viðburðir sem Listahátíð býður upp á og á næstu opnu er svo viðtal við bandaríska ljósmyndarann Cindy Sherman. Untitled Film Stills Ónefnd kvikmyndaskot eða Untitled Film Stills er ein þekktasta myndaröð bandarísku listakonunnar Cindy Sherm- an og gerði hana eina af þekktustu ljós- myndurum Bandaríkjanna. Hún verður sýnd í Listasafni Íslands. Raunveruleikatékk Myndir eftir Daníel Þorkel Magnússon, Eggert Jóhannesson, Gunnar Rúnar Ólafsson, Hlyn Hallsson, Ieva Jerohina, Ingva Högna Ragnarsson, Kristleif Björnsson, Óskar Hallgrímsson, Pétur Thomsen, Silju Sallé, Spessa, Veru Páls- dóttur og Vigfús Sigurgeirsson verða sýndar á veggjum í miðborginni. Thomsen & Thomsen Portrettmyndir og umhverfismyndir frá Reykjavíkursvæðinu frá tveimur mis- munandi tímum eftir tvo ljósmyndara, þá Pétur Thomsen eldri (1910–1988), og sonarson hans Pétur Thomsen yngri (1973) verða sýndar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Annað auga Annað auga heitir sýning í Listasafni Reykjavíkur Kjarvalsstöðum á ljós- myndaverkum úr safneign Péturs Ara- sonar og Rögnu Róbertsdóttur. Á sýning- unni verða verk eftir íslenska og erlenda myndlistarmenn sem nota ljósmyndir í verkum sínum og verk skoðuð í sam- hengi við ljósmyndaverk í sam- tímalistum. Í safni ófullkomleikans Unnar Örn J. Auðarson byggir innsetn- ingu utanum samansafn af gripum sem fengnir eru að láni úr geymslum ljós- mynda-, skjala- og minjasafns Reykja- víkur. Sýningin verður í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Efnaskipti Anna Líndal, Guðrún Gunnarsdóttir, Hildur Bjarnadóttir, Hrafnhildur Arn- ardóttir og Rósa Sigrún Jónsdóttir hófu feril sinn undir merkjum hefðbundinnar þráðlistar, en hafa á seinni árum fært sig yfir á hið víða svið blandaðrar tækni eins og sjá má á sýningu þeirra í Listasafni Reykjanesbæjar. Moral Dilemmas og Inside Out Tónlistarmaðurinn David Byrne hefur unnið sér orð fyrir ljósmyndir sínar á síðustu árum. Hann verður með tvær myndaraðir á Listahátíð, aðra þeirra í götugluggum í mið- bænum og hina í gluggum Hafn- arhússins í Tryggvagötu. Situations and other Photo Works 1974-1982 Sýningin, sem verður í i8, tekur fyrir tímabil á ferli Sigurðar Guðmundssonar þegar hann fékkst eingöngu við gerð verka sem hann útfærði í ljósmyndum, en leit á sem skúlptúra og ljóðlist. Equivocal the Sequel Katrín Elvarsdóttir sýnir í Gallerí Ágúst ný ljósmyndaverk sem eru sjálfstætt framhald af sýningunni Equivocal á sama stað fyrir tveimur árum. Nekt Hinn þekkti suðurafríski ljósmyndari Gary Schneider sýnir í Listasafni Reykja- víkur Hafnarhúsi ljósmyndir af þrjátíu nöktum kven- og karllíkömum í raun- stærð sem teknar eru með sérhæfðri tækni. 111 Verk 111 eftir þau Mariu Dembek og Rob- in McAulay samanstendur af ljós- myndaseríum, teknum á filmu af í Berlín árið 2009. Sýningin verður í Kling og Bang Breiðholti. Ljósmyndir á Listahátíð Ljósmyndun og ljósmyndum verða gerð góð skil á Listahátíð í ár. Yfirskrift ljósmyndahluta hátíð- arinnar er Raunveruleikatékk eftir stærsta við- burði hennar og haldnar verða tuttugu sýningar þar sem áhersla er lögð á margbreytileika mið- ilsins og stöðu ljósmyndunar í dag. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ein mynda Davids Byrnes.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.