SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Page 27
25. apríl 2010 27
Í
sambandi við áttati ára føðingardag
Vìgdisar Finnbogadóttir, varð stað-
fest, at Føroyar ynskja at stuðla
byggingini av Vígdis Finnbogadóttir
stovninum til æru fyri fyrrverandi forseta
Íslands, sagði í frétt sem sendiskrifstofa
Færeyja í Reykjavík sendi frá sér á dög-
unum.
Vinir okkar og frændur á eyjunum
fögru tóku sig sem sagt til – enn einu sinni
– og gerðu góðverk. Gunvør Balle, sen-
dikvinna Færeyja hér á landi tilkynnti
gjöfina, andvirði 19 milljóna króna, á há-
tíðarsamkomunni í Háskólabíói á afmæli
forsetans fyrrverandi. Féð er ætlað í
byggingu húss undir starfsemi Stofnunar
Vigdísar.
Lögþing Færeyja leggur fram 150.000
færeyskar krónur árlega í þrjú ár og
nokkur fyrirtæki leggja einnig fram fé,
alls 375.000. Það eru Atlantic Airways,
Framherji, Føroya Banki, Smyril Line og
Tryggingarfelagið Føroyar. Allt fyrirtæki
sem hafa mikla tengingu við Ísland, beint
eða óbeint, og öll samþykktu strax að taka
þátt, segir Balle. Heildarupphæðin er
825.000 kr en færeyska krónan hefur
sama verðgildi og sú danska.
Hugsað stórt
Balle leist strax mjög vel á þegar hugmynd
um að styrkja stofnun Vigdísar kviknaði
og henni þykir í raun ótrúlegt hve hugsað
er stórt í stofnuninni. „Mér fannst allar
áætlanir mjög áhugaverðar, til dæmis
með færeyska tungu í huga. Þetta er ekki
bara íslensk stofnun heldur alþjóðleg og
aðstandendur hennar vilja auðvitað að
hún tengist sem flestum tungumálum,“
segir Balle í samtali við Morgunblaðið.
Vigdís hefur unnið svo mikið í þágu nor-
rænnar menningar, segir ræðismaðurinn,
að mikilvægt sé að öllum Norðurlanda-
málunum sé gert hátt undir höfði í stofn-
uninni.
Færeyingar eru miklir aðdáendur Ís-
lendinga, segir Gunvør Balle; ekki síst
vegna þess hve menningin blómstri hér
alla tíð og hve menntun sé gert hátt undir
höfði. Færeyska skólakerfið sé mjög lítið
miðað við íslenska háskólasamfélagið,
eins og nærri má geta, en hún vonar að
sterk stofnun Vigdísar geti orðið stökk-
pallur fyrir Færeyjar, til dæmis varðandi
ferðaþjónustuna; „með kynningu á fær-
eyskri tungu og menningu.“
Einmitt þess vegna hafi henni þótt gott
að fá tækifæri til þess að styðja við verk-
efnið. „Svo vildum við að sjálfsögðu
heiðra Vigdísi; sýna henni þakklæti vegna
þess hve hún hefur unnið mikilvægt
starf.“
Vigdís mikils metin
Gunvør segir Vigdísi mikils metna í Fær-
eyjum. „Hún er mjög sérstök manneskja í
hugum Færeyinga. Öllum þykir vænt um
hana.“
Ræðismaðurinn segir Færeyingum
þykja mjög mikið til Íslendinga koma, að
þeim þyki vænt um frændþjóðina og vilji
gjarnan hjálpa þegar á bjátar. Frægur er
stuðningur þeirra eftir að kreppan skall á
fyrir nokkrum misserum.
Og Færeyingum þykir fádæma gott að
koma til Íslands, segir hún „Tilfinningin
er sú sama hjá öllum Færeyingum sem
hingað koma, leyfi ég mér að segja; þeir
segja ótrúlega vel tekið á móti sér og allir
vilji hjálpa þeim. Færeyingar fá hvergi
annars staðar í heiminum móttökur eins
og hér.“
Balle segir mikinn áhuga í Færeyjum að
efla samstarf við Íslendinga enn frekar en
nú er. Nefnir sem dæmi að fyrirtækin sem
áður var getið hafi mikinn áhuga á að
hasla sér frekari völl og þrátt fyrir giftu-
ríkt samstarf á mennta- og menning-
arsviðinu sé sá akur í raun lítt plægður.
Varðandi Stofnun Vigdísar dreymir
ræðismanninn líka um að færeyskir nem-
endur og kennarar í tungumálum geti
nýtt sér stofnunina og þannig orðið hluti
af stærra neti en mögulegt er í dag. „Þetta
verður ótrúlega glæsileg stofnun ef áætl-
anir ganga eftir. Möguleikarnir í framtíð-
inni fyrir okkar tungu og menningu eru
virkilega miklir.“
Sendistofa Færeyja var opnuð í Reykja-
vík í september 2007 og Gunnvör segir að
mikið hafi verið að gera frá fyrsta degi.
„Já, ótrúlega mikið. Ég velti því fyrir mér
hvernig hlutirnir gengu fyrir sig áður en
við komum! Ég veit að þeir sem voru í
forystu Færeyingafélagsins og Marentza
Poulsen [smurbrauðsdama] unnu mjög
mikið óformlega fyrir Færeyinga. Tengsl-
in á milli þjóðanna eru ótrúlega mikil og
ég skynja áhuga á að auka þau enn frekar,
til dæmis varðandi atvinnu, menningu og
pólitík.“
Hún tekur sem dæmi að þeir sem sinni
stjórnmálum í Færeyjum og starfsfólk
stofnana líti mjög hingað til lands varð-
andi löggjöf. „Það er miklu auðveldara en
horfa til Danmerkur eins og alltaf hefur
verið gert, því samfélögin eru svo ólík.“
Einu sinni til Færeyja
„Ég held að allir Íslendingar vilji koma að
minnsta kosti einu sinni á ævinni til Fær-
eyja. Fólk ferðaðist mikið út um allan
heim en það er að breytast; ég held að nú
hugsi menn meira um nágranna sína en
áður. Ég hef fundið breytingu á því á þeim
þremur árum síðan ég kom til landsins
hvernig fólk talar um gildin í lífinu. Það
skiptir miklu áhuga að hafa áhuga á ná-
grönnum sínum því við eigum svo mikið
sameiginlegt. “
Mikið samstarf er báðum þjóðum mik-
ilvægt að mati Gunnvarar. „Færeyingar
fylgjast vel með efnahagsástandinu á Ís-
landi og umræðunni um Evrópusbam-
bandið því það skiptir okkur máli hvað
Íslendingar velja í Evrópumálum. Okkar
tilfinning er sú að við séum mjög nánir
grannar og þurfum að vinna mikið sam-
an. Það er fullt af tækifærum til að efla
samstarfið enn meira en það er nú og ég
er viss um að báðir geta haft mjög gott af
því.“
Gunnvör segist oft hafa verið spurð um
bankahrunið í Færeyjum á sínum tíma,
eftir að íslenska bankakerfið hrundi árið
2008. „Ég er mikið spurð um hvað sé líkt
með hruninu í löndunum. Kannski er
aldrei hægt að segja að eitthvað sé alveg
eins en margt er sambærilegt; kæruleysi
og græðgi og svo það að allir bregðast;
eftirlitsstofnanir og ríkisstjórnin. Allir.
Allir dansa með gullkálfinum.“
Fólk heldur að allt sem atvinnulífið
geri sé rétt, segir ræðismaðurinn. „Í
stuttu máli; það sem gerðist hér er nánast
það sama og í Færeyjum. Við þurftum að
koma á fót eftirlitsstofnunum sem ekki
voru til, styrkja þær sem voru fyrir hendi
og endurkoða löggjöf; fyrirbyggja með
öllum ráðum að þetta gæti endurtekið
sig.“
Hún segist ekki hafa áhyggjur af Ís-
lendingum. „Við vitum að þið komist út
úr þessu. Þjóð sem bjó hér án hita í þús-
und ár er ótrúlega flott. Íslendingar eru
sterkir; okkur finnst Íslendingar vera
óvenju jákvæðir og nú þurfa þeir að horfa
fram á veginn.“
Gunvör Balle ræðismaður Færeyja á Íslandi. „Við vitum að þið komist út úr þessu. Okkur finnst Íslendingar vera óvenju jákvæðir og nú þurfa þeir að horfa fram á veginn.“
Morgunblaðið/Golli
Góður granni
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur barst höfðingleg gjöf frá
Færeyjum á áttræðisafmæli Vigdísar. Gunnvør Balle ræð-
ismaður afhenti stofnuninni um það bil 19 milljónir króna
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is