SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Page 36

SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Page 36
36 25. apríl 2010 A f hverju gengur þetta svona hægt?“ var yfirskrift mál- þings, sem haldið var 21. apríl á vegum Stofnunar stjórn- sýslufræða, námsbrautar í kynjafræði og blaða- og fréttamennsku um konur, kosningar og fjölmiðla. Á málþinginu kynnti greinarhöfundur rannsókn sína til meistaraprófs í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands, þar sem skoðuð var fjölmiðlaumfjöllun um alþingiskosningarnar 2009 í Frétta- blaðinu og Morgunblaðinu. Spurt var hvort fjölmiðlaumfjöllun um stjórnmálakarla og -konur hefði verið í samræmi við kynjahlutföll frambjóðenda og staðsetningu þeirra á framboðs- listum. Svo var ekki. Stjórnmálakonur fengu of litla umfjöllun miðað við fjölda þeirra sem voru í framboði og stjórn- málakarlar fengu þar af leiðandi of mikla umfjöllun, ef þannig er hægt að komast að orði. 30/70 reglan „Það er eiginlega alveg sama hvers kon- ar fjölmiðill er skoðaður og á hvaða tíma; karlar eru alltaf í meirihluta,“ seg- ir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, sem hefur tjáð sig í ræðu og riti um konur og karla í fjöl- miðlum. Í sama streng tekur Hilmar Thor Bjarnason fjölmiðlafræðingur. Hann segir að sama hlutfallið birtist ítrekað, svokölluð 30/70 regla, sem felur í sér að hlutur kvenna fer sjaldan yfir 30% í fjölmiðlum og hlutur karla fer þannig sjaldan undir 70%. „Evrópskar rannsóknir hafa leitt í ljós svokallað glerþak. Með því er átt við að fjölmiðlaumfjöllun um konur fer sjaldan yfir 30% og í því sambandi skiptir engu máli hvort um er að ræða fréttir, aug- lýsingar eða afþreyingarefni.“ Hilmar Thor hefur unnið að rannsóknum þar sem fram hefur komið að Ísland er í engu frábrugðið öðrum Evrópulöndum; „Glerþakið“ fyrirfinnst einnig hér á landi. Leitað á toppinn Sigrún Stefánsdóttir, doktor í fjölmiðla- fræði og dagskrárstjóri Rásar eitt og tvö, segir að það sé rík vinnuhefð á íslensk- um fjölmiðlum að leita á toppinn. „Það er alltof oft talað við forstjórann eða ráðherrann í staðinn fyrir að ræða við þann sem hefur raunverulega með málið að gera. Þessi tilhneiging fjöl- miðlafólks að fara beint á toppinn er eitt af því sem stuðlar að þessari mismunun kynjanna, því karlar eru oftar í efstu stöðum,“ segir Sigrún. Að sögn Sigrúnar átta karlar sig að öllu jöfnu á því hversu miklu máli það getur skipt að koma reglulega fram í fjölmiðlum. En öðru máli gegni um konur. „Mér finnst oft eins og konur skilji ekki hvað fjölmiðlar eru þýðing- armikið verkfæri til þess að ná völdum. Það getur verið erfitt að fá konur til við- tals og oft þarf að dekstra þær. Frétta- menn búa við mikla tímapressu og hafa einfaldlega ekki tíma til að dekstra fólk.“ Sýnileiki, vald og ávinningur En gæti ástæða þessa verið sú að meiri kröfur séu gerðar til kvenna varðandi frammistöðu í fjölmiðlum? „Fullkomn- unarárátta háir mörgum konum. Þær halda að þær þurfi að líta út eins og feg- urðardrottningar og vita alla skapaða hluti. Það er mesti misskilningur, það sem skiptir máli er sannfæringarkraftur, málefni og útgeislun. Konur breyta því ekki að hraði er mikilvægur þáttur í fréttavinnslu og þær verða einfaldlega að aðlagast því. Fréttamenn eru ekki í aðstöðu til að breyta vinnubrögðum sín- um. Konur sem ætla sér að komast áfram verða að læra á þennan miðil og skilja að sýnileiki í fjölmiðlum er vald og ávinningur,“ segir Sigrún. „Það kom einstaka sinnum fyrir hér áður fyrr að það var erfitt að fá konur í viðtöl,“ segir Karl Blöndal, aðstoðarrit- stjóri Morgunblaðsins. „Mín tilfinning er sú að það hafi að- allega verið vegna fullkomnunaráráttu. Karlarnir voru miklu fremur tilbúnir að láta vaða og tjá sig um hvað sem var. En það hefur verið hamrað svo mikið á konum í gegnum tíðina með þessu að ég held að það hafi hreinlega haft hvetjandi áhrif.“ Síkvartandi femínistar Silja Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræð- ingur telur að sýnileiki stjórnmála- kvenna í fjölmiðlum hafi áhrif á fram- gang kvenna í stjórnmálum. Að hennar mati eru fullyrðingar um að konur vilji ekki koma í viðtöl þjóðsaga. „Ég hef neitað að koma í viðtöl og það var fyrst og fremst vegna þess að ég taldi mig ekki hæfa til að fjalla um við- komandi málefni. Svarið sem ég fékk frá blaðamanninum var: „Þið kellingarnar eruð allar eins og svo eruð þið femínist- arnir alltaf að kvarta.“ En eruð þið fem- ínistarnir alltaf að kvarta? „Við höfum bent á að margt megi betur fara í þess- um efnum.“ „Það skiptir miklu máli að fjölmiðlar gefi rétta mynd af stjórnmálaþátttöku kvenna,“ segir Siv Friðleifsdóttir, þing- maður Framsóknarflokksins. „Það er mikilvægt fyrir þá sem fylgjast með fjöl- miðlum til þess að fá upplýsingar um það sem er að gerast í samfélaginu. En það skiptir líka miklu máli fyrir börn og unglinga að sjá konur gegna ábyrgð- arstöðum í stjórnmálum til jafns við karla. Mér hefur stundum fundist fjallað um mig og aðrar stjórnmálakonur á fremur undarlegan hátt,“ segir Siv sem af fjölmiðlum hefur meðal annars verið kölluð „sykursæt“, „hin glæsilega“ og Konur, kosningar og fjölmiðlar Fjölmiðlar gegna mik- ilvægu hlutverki við að skapa ímyndir af körl- um og konum. Margir hafa orðið til þess að benda á að konur fá minni og annarskonar umfjöllun en karlar. Það á einnig við í stjórnmálum. Skiptir máli að fjölmiðlar end- urspegli stjórnmála- þátttöku beggja kynja og er raunhæft að gera þá kröfu að þeir end- urspegli samfélagið? Anna Lilja Þórisdóttir Kynjahlutföll stjórnmálafólks í fréttum og umfjöllunumMorgunblaðsins* *Sýndur er fjöldi frétta, ekki fjöldi viðmælenda. 15% Stjórnmálakonur 40% Stjórnmálakarlar 45% Stjórnmálakonur og -karlar Kynjahlutföll stjórnmálafólks í fréttum og umfjöllunum Fréttablaðsins* *Sýndur er fjöldi frétta, ekki fjöldi viðmælenda. 8% Stjórnmálakonur 54% Stjórnmálakarlar 38% Stjórnmálakonur og -karlar Í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu Kynjahlutföll sérfræðinga og álitsgjafa varðandi kosningarnar og kosninga- baráttuna 3% Konur 97% Karlar 35 30 25 20 15 10 5 0 Fjöldi frétta í báðumblöðumsem fjölluðu umkosningarnar og kosningabaráttuna og kynjahlutföll viðmælenda Karlar Konur Bæði Ljósir litir tákna stjórnmálafólk, dökkir litir tákna viðmælendur sem eru ekki stjórnmálafólk 15 19 4 2 14 7

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.