SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Síða 38

SunnudagsMogginn - 25.04.2010, Síða 38
38 25. apríl 2010 L ögð hefur verið fram þingsálykt- unartillaga um að hefja bólu- setningar gegn HPV-veirusmiti á öllum 12 ára stúlkum. HPV- veiran sem veldur leghálskrabbameini smitast við samfarir og því er hægt að tala um sýkinguna sem myndast af völdum hennar sem kynsjúkdóm. Lítil umræða hefur þó verið um þennan sjúkdóm, sem innan Evrópusambandsins veldur næstalgengasta krabbameini í kon- um á aldrinum 15-44 ára. Hann er þó ástæða þess að konur eru hvattar til að fara reglulega í krabbameinsskoðun frá 20 ára aldri. Tillagan var lögð fram hinn 25. mars síðastliðinn af Steinunni Valdísi Ósk- arsdóttur, þingmanni Samfylkingarinnar, en málið bíður þess enn að vera flutt á Al- þingi. Þegar hafa bólusetningar verið hafnar á Norðurlöndum að Íslandi og Finnlandi undanskildum. Veirusmitið er ekki sýnilegt með neinu móti og virðast líkurnar á að veiran kom- ist inn í viðkvæmar frumur leghálsins mestar þegar stúlkur byrja að stunda kyn- líf. Segir í tillögunni að talið sé að hún valdi um 70% allra leghálskrabbameina í heiminum, um 73% í Evrópu og 60% til- vika hér á landi. Segir ennfremur að á hverju ári deyi þrjár konur af völdum leg- hálskrabbameins hér á landi og 17 ný til- felli greinist. Landlæknisembættið hefur einnig tekið saman að hagkvæmara sé til lengdar fyrir samfélagið að bólusetja ungar stúlkur fyrir veirunni á móti þeim kostnaði sem hún veldur samfélaginu. Hafa rannsóknir sýnt að einhverjar fyrirburafæðingar megi rekja sem afleiðingu af veirunni. Tíðni mest undir þrítugu „Hingað til hafa það nær eingöngu verið dætur lækna sem hafa verið bólusettar fyrir veirunni hér á landi,“ segir Reynir Tómas Geirsson fæðingar- og kven- sjúkdómalæknir og yfirlæknir á Kvenna- deild Landspítalans. Reynir segir að þær bólusetningar hafi ekki verið borgaðar af ríkinu heldur foreldrunum sjálfum. „Bólusetningin kostar 90.000 kr. og getur hver sem er beðið um að fara í svona bólu- setningu, en það hafa kannski helst verið læknar sem hafa sent dætur sínar í þetta því þeir hafa vitað af áhættunni af veiru- smitinu þegar þær byrji að stunda kynlíf.“ Veiran greinist í yfir hundrað stofna. Af þeim eru um 40 sem smitast við samfarir og 15 sem valda leghálskrabbameini. Eru það helst tveir stofnar af þeim, svonefndar HPV-16 og HPV-18 veirur, sem eru al- gengasta orsökin. Þeir stofnar valda ekki sýnilegum einkennum en síðan eru til aðrir stofnar af veirunni sem valda kyn- færavörtum. Kristján Sigurðsson, yfirlæknir Leit- arstöðvar Krabbameinsfélags Íslands, seg- ir að vegna þess hve reglulega íslenskar konur séu skoðaðar hafi dregið verulega úr dánartíðni og nýgengi (nýjum grein- ingum) á leghálskrabbameini. Hann segir að síðan að leit hafi hafist árið 1964 hafi dregið úr nýgengi um 64% og dánartíðni hafi dregist saman um 83%. „Tíðni HPV- sýkingar og forstigsbreytinga er þó hæst meðal ungra kvenna undir þrítugu, en það er einmitt sá hópur sem hefur verið hvað latastur að mæta í skoðun.“ 300 í keiluskurð á ári Í krabbameinsskoðunum er leitað eftir frumubreytingum í leghálsi sem í flestum tilvikum eru afleiðingar af HPV- veirusmiti. Þessar breytingar nefnast for- stigsbreytingar ef þær greinast áður en krabbamein myndast. Forstigsbreyting- arnar skiptast í vægar breytingar, sem hverfa í meira en 60 % tilvika, og alvar- legri forstigsbreytingar sem geta orðið að leghálskrabbameini. Kristján segir að um 80% kvenna smit- ist af veirunni einhvern tíma á ævinni en að í flestum tilvikum losi ónæmiskerfið líkamann sjálft við veirusmitið. „En þegar það gerist ekki getur það valdið þessum forstigsbreytingum. Þá þarf konan að koma á nokkurra mánaða fresti í eftirlit þar sem fylgst er með hvort þær hverfi eða versni. Ef forstigsbreytingarnar þróast í Kynsjúkdómurinn sem enginn Þingsályktunartillaga bíður þess að vera tek- in fyrir um að bólusetja skuli allar 12 ára stúlk- ur gegn HPV-smiti og leghálskrabbameini, en sjúkdómurinn getur valdið fyrirburafæð- ingum. Hér er sögð saga konu á þrítugs- aldri. Árný Elínborg Ásgeirsdóttir D rífa Baldursdóttir er 29 ára þriggja barna móðir sem eign- aðist eitt barna sinna fyrir tímann af orsökum sem rekja má til keiluskurðar. Hún segist þakklát fyrir það að 5 ára dóttir sín sé á lífi og heil- brigð í dag. „Það var fyrir algjöra tilviljun að leghálsinn í mér var athugaður þegar ég gekk með miðdóttur mína,“ segir hún. Féll í yfirlið „Meðgangan hafði gengið ágætlega fyrir utan einhverjar blæðingar sem gerðu mig reyndar frekar áhyggjufulla. En síðan þeg- ar leið á meðgönguna fór ég að verða mjög orkulaus. Svo var það einu sinni að ég var að skoða íbúð með manninum mínum sem það leið yfir mig. Mig svimaði mikið eftir það og ég fann fyrir mikilli ógleði. Í mæðraskoðun stuttu eftir þetta mæld- ist ég mjög lág í járni og kallaði ljósmóðirin þá til lækni. Fyrir tilviljun var Hildur Harðardóttir á vakt en hún hefur einmitt tekið þátt í rannsóknum vegna leghálsbil- ana af völdum keiluskurða. Hún hafði ekkert áhyggjur af járninu, sem ég var á þeim tíma stórhneyksluð á, heldur hafði hún meiri áhuga á því að ég hafði farið í keiluskurð og sama ár og ég varð ólétt, að- gerð vegna fósturláts. Eftir að hún hafði skoðað leghálsinn sendi hún mig í legháls- mælingu.“ Drífa segist ekki hafa verið í sérstöku meðgöngueftirliti vegna keiluskurðarins frá upphafi meðgöngu, eða hafi henni ver- ið sagt frá þeirri áhættu á sínum tíma sem hún tæki með því að fara í keiluskurð. „Auðvitað hefði það ekki breytt því hvort ég hefði farið í keiluskurðinn eða ekki, en mér finnst að það ætti nú að segja manni frá því að þetta geti valdið legháls- bilun á meðgöngu. Ég meina, margir reykja sígarettur þó það standi stórum stöfum á pakkanum að það geti drepið. Fólk sleppir því kannski ekki að reykja við það, en er samt sem í sífellu minnt á áhættuna sem það er að taka. Síðan er ég ólétt og ég veit ekki einu sinni af áhætt- unni sem keiluskurðurinn hefur skapað. Ég veit að ég er ekki sú eina sem hefur lent í þessu. Ég held í dag úti síðunni fyrirbur- ar.is þar sem ég hef rætt við margar konur sem segja sömu sögu.“ Hreyfði sig ekki í mánuð Þegar Drífa fór í leghálsmælingu kom í ljós að leghálsinn var farinn að styttast eins og vaninn er þegar stutt er í fæðingu. Þá var hún aðeins komin rúma 6 mánuði á leið. „Ég hafði samt ekki fundið neina verki eða samdrætti sem er vaninn þegar um fyr- irburafæðingar er að ræða. En það er víst einnig einkenni á leghálsbilun sem orsak- ast m.a. af keiluskurðum að það koma engir samdrættir. Þetta gerðist allt svo hratt. Þegar ég kom síðan í aðra legháls- mælingu eftir viku var leghálsinn búinn fullstyttast og farinn að opnast eins og hann er í byrjun fæðingar. Okkur var sagt að það væru miklar líkur á að ég myndi fæða fljótlega. Ég var strax lögð inn á með- göngudeildina og mátti bara liggja. Fyrsta nóttin var ótrúlega erfið. Ég var í herbergi með konu sem var gengin fulla meðgöngu. Það var bara eitt tjald á milli okkar og meðan hún talaði um barnið sem hún væri að fara að eignast við gestina sína, var ég dauðhrædd um að ég væri að fara að missa barnið mitt. Ég var á því tímabili með- göngunnar að lífslíkurnar voru ekki mikl- ar ef það myndi fæðast þarna.“ Við tók mánaðarlega í sjúkrarúminu hjá Drífu. „Ég trúi því varla svona eftir á, hvað þetta var stuttur tími sem ég lá þarna, mánuður er ekki svo langur tími þannig séð. Mér fannst þetta vera óratíma að líða þá. Ég mátti ekkert standa upp úr rúminu nema til að fara á klósettið og þurfti ég að liggja með hærra undir fótunum síðustu vikurnar. Það komu stundir þar sem mig langaði bara helst að fæða strax og svo var ég auðvitað að deyja úr samviskubiti yfir því að hugsa svona. En það var bara svo erfitt að liggja kyrr svona lengi. Ég fékk aðeins að fara í hjólastól upp á vökudeild þar sem þau sýndu mér tækin sem barnið mitt þyrfti að vera í fyrstu vikurnar.“ Fæddist í 29. viku Drífa segir að þegar dóttir þeirra fæddist hafi það ekki verið svo mikið sjokk þegar hún hafi verið sett í hitakassa á vökudeild- Var dauðhrædd um að missa barnið mitt Drífa Baldursdóttir ásamt börnum sínum þremur.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.